Skinfaxi - 01.08.1985, Síða 12
Hvaö gleymdiiöu
skónum?
Guömundui Gíslason
Eins og flestum er í minni gekk
Reynir Pétur Ingvarsson eftir
hringveginum kringum landið í
sumar, sér til ánægju og einnig til
að safna peningum til byggingar
iþróttaleikhúss á Sólheimum.
Vakti þessi ganga hans mikla
athygli og hrifningu landsmanna,
og urðu margir til að heita á Reyni
og einnig að gefa gjafir beint. Því
fannst Skinfaxa tilvalið að heim-
sækja Reyni og spjalla stuttlega
við hann, og fer það spjall hér á
eftir.
Sæll og blessaður Reynir! Já
komdu sæll. Heyrðu nú fór verr
ég gleymdi gönguskónum mínum
heima. Hvað er þetta maður
gleymdirðu þeim, jæja þú getur
labbað með mér hérna um svæðið
á þessum sem þú ert í. Já, ég reyni
að fylgja þér eftir. Hérna sérðu nú
hvar íþróttaleikhúsið verður. Svo
grunnurinn er kominn. Já nú á að
fara að slá upp veggjunum. Hvað
verður þetta nú stórt? Það verður
á tveimur hæðum. Já svo þú labb-
aðir hringinn til að safna pening-
um til að byggja þetta hús? Já, en
fyrst og fremst mér sjálfum til
gleði og ánægju. Fólk má ekki
gleyma þvi að ég gerði þetta fyrst
og fremst fyrir mig, því þetta er
mikil sálarhvíld. Hefur fólk hald-
ið að þú hafir eingöngu gert þetta
til að safna peningum? Já mér
finnst það. Heyrðu sagðistu vera
frá UMFÍ? Já, þekkirðu það? Já
aðeins. Veistu að UMFI hefur
sinn fána. Já, blár með hvítum
krossi í eins og niður í Þrasta-
lundi. Þann fána vill ég að Vest-
firðir taki upp þegar þeir klofna
frá. Heldurðu að þeir klofni frá?
Já ég er viss um það, og þá eiga
þeir að nota þennan fána. Heyrðu
þú ert að fara núna í ferðalag er
það ekki? Jú ég er að fara til Fær-
eyja á fimmtudaginn, en fyrst
flýg ég til Egilsstaða og fer þaðan
til Seyðisfjarðar. Þú ætlar þá ekki
að labba austur? Nei ekki alla
leið, en ég ætla að labba frá Egils-
stöðum til Seyðisfjarðar. Ég verð
að fara snemma af stað til að
missa ekki af skipinu. Heyrðu
Reynir meö steininn frá UMFÍ.
Ljósm UMFÍ/GG.
komdu inn við skulum fá okkur
kaffi. Við löbbuðum inn í húsið
þar sem Reynir Pétur býr og hann
hellir á könnuna.
Nú skiptum við um umræðu-
efni og fórum að ræða nokkur
áhugamál Reynis.
Reynir þú safnar fánum er það
ekki? Jú aðeins. Áttu marga? Já
ég á nokkra, bæði stóra og litla.
Hvaða fánar eru þetta þarna í
horninu? Þetta eru fánar frá olíu-
félögunum. Ég flaggaði þeim um
daginn og þá kom fólk sem hélt
að hér væri selt bensín, en við
seljum ekki bensín hér. Svo þú
plataðir fólkið aðeins. Já. Það er
íþróttafélag hérna er það ekki?
Jú, það heitir Gnýr. Hvenær var
það stofnað? Ja það eru nokkur
ár síðan, 1982 held ég. Og þú ert
í þvi félagi. Já já. Horfirðu á
íþróttirnar í sjónvarpinu? Já ef
það eru hjólreiðar, því það er
gaman að horfa á þær. Þú hefur
ekki viljað hjóla hringinn frekar
en að labba hann? Nei, við vorum
ekki vissir um hvort einhver hefði
gert það áður, og svo er miklu
skemmtilegra að labba. Jæja
12
SKINFAXI