Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 13

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 13
Reynir ég þakka þér kærlega fyrir spjallið og kaffið, en nú verð ég að þjóta aftur í bæinn og þú að fara að taka þig saman fyrir ferð- ina til Færeyja. Heyrðu annars veistu hvað Færeyjarnar eru margar? Já þær eru 18, en það hlýtur að vera mikið af litlum skerjum líka. Já, jæja ég óska þér góðrar ferðar og skemmtunar í Færeyjum og vertu blessaður. Vertu blessaður og þakka þér fyrir komuna og guð fylgi þér. Fánarnir er hann flaggaöi. Ljósm. UMFÍ/GG. Sumcnhátíö UÍA Veistu svarið? Sumarhátíð UÍA var haldin helgina 26.—28. júlí s.l. er það seinna en verið hefur undanfarin ár. Því nú varð að fresta henni vegna veðurs þegar hún átti að vera, en það var sömu helgi og forseti íslands kom til Austur- lands. Keppt var í mörgum íþróttagreinum m.a. sundi, borð- tennis, kappgöngu, knattspyrnu, ratleik og svo í frjálsum íþróttum. Þar sigraði íþróttafélagið Höttur á Egilsstöðum með miklum yfir- burðum hlaut 303 stig en næsta félag sem var Súlan frá Stöðvar- firði hlaut 168 stig og svo í þriðja sæti varð Huginn frá Seyðisfirði með 141 stig. Volvo-bikarinn sem veittur er fyrir besta afrek á Sum- arhátíð hlaut ung stúlka úr Hetti fyrir að stökkva 1.58 m. í há- stökki, en hún er aðeins 14 ára gömul. Keppnin í frjálsum íþrótt- um var Meistaramót UÍA 14 ára og yngri. Á sunnudeginum var sérstök hátíðardagskrá, og skemmtu þar m.a. Jón Páll og Hjalti „Ursus“ Árnason við mikla hrifningu þeirra yngstu. Veðrið var mjög gott á sunnudeg- inum en það helliringdi á laugar- deginum, en það kom ekki að sök hátíðin tókst vel og komu um 400 gestir sem er nú mun minna en áður. Spurningar: 1. Hvaða spendýr geta flogið? 2. Hver heimsálfanna er minnst? 3. Hvað þýðir orðið biblía? 4. Hvað eru Færeyjarnar marg- ar? 5. Hvað eru margir strengir í hörpu? 6. Hvernig er rúbín á litinn? 7. Hvaða ár var Njálsbrenna? 8. Hver var fyrsti ráðherra ís- lands? 9. Hvenær tók Ríkisútvarpið til starfa? 10. Milli hvaða sveita er Mosfells- heiði? 11. Hvað heitir stærsta stöðuvatn Skagafjarðarsýslu? 12. Hvað eru 0 gráður á Celsíus margar á Fahrenheit? 13. Hvað er Eiffel-turninn í París hár? 14. Hvað eru mörg núll í millj- arði? 15. Hvað nefnist andstæða verð- bólgu? íþrf. Höttur gengur fylktu liöi inn á svæöiö. Ljósm. UÍA. SKINFAXI Svör á bls. 29. 13

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.