Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 14

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 14
Skákþáttur í fyrsta sinn í 23 ár tefldi ís- lendingur á millisvæðamóti. Þau eru liður í heimsmeistarakeppn- inni; fyrst koma svæðamótin, þá millisvæðamótin, þaðan liggur leiðin í áskorendakeppnina, áskorendaeinvígin og þá fyrst er komið upp að fótskör meistar- anna, Karpovs og Kasparovs. Friðrik Ólafsson tefldi á milli- svæðamótinu í Stokkhólmi 1962 en síðan hefur enginn Islendingur komist svo langt þar til nú. Margeir Pétursson tók mótið alvarlega og naut sín uppi á svið- inu í ráðstefnuhöllinni í Biel. Enginn keppandi lék eins marga leiki og hann; enginn notaði jafn mikinn tíma á skákirnar og eng- inn var eins lengi í „sviðsljósinu". Það kom í minn hlut og Braga Kristjánssonar að vera Margeiri til fulltingis og skoða með honum biðskákirnar. Sjaldan áttum við frí. Sumar skákirnar fóru marg- oft í bið og á endanum voru bið- stöðurnar orðnar 21 i 17 umferð- um. Samtals lék Margeir 1.024 leiki í mótinu, sem er liðlega 60 leikir að meðaltali á skák. Glæsi- legur sigurvegari! Annars gekk taflmennskan ekki nógu vel. Allar þessar löngu og erfiðu skákir settu strik í reikn- inginn einkum vegna þess að Margeir var yfirleitt að berjast fyrir lífi sínu. Átti oft peði minna í krappri vörn og þurfti að vanda Maigeii á millisvœöamóti Jón L. Ámason sig sérlega vel. Þessar skákir tók- ust reyndar vonum framar en á milli komu slæmir skellir. Á heildina litið tefldi Margeir of „passívt“ og bar of mikla virð- ingu fyrir andstæðingunum. Fékk að lokum 7 v. og 14. sæti af 18 keppendum. Mótið var firna-skemmtilegt á að horfa. Fjögur efstu sætin gáfu þátttökurétt í áskorendakeppn- inni, sem haldin verður í Frakk- landi í haust. Margir voru um hit- una og í lok mótsins var allt á suðupunkti. Soveski stórmeistar- inn Rafael Vaganjan varð reyndar öruggur sigurvegari og Banda- ríkjamaðurinn Yasser Seirawan varð annar. Um hin tvö sætin var grimmlega barist. í síðustu um- ferð fór margt öðruvísi en ætlað var. Filippseyingurinn Torre tap- aði fyrir Ungverjanum Sax og Hollendingurinn John Van der Wiel beið lægri hlut fyrir Nigel Short, Englandi, sem þar með náði honum að vinningum. Þetta leiddi til þess að sovéski stór- meistarinn Sokolov hreppti 3. sætið en Torre, Short og Van der Wiel verða að heyja aukakeppni um fjórða sætið. Lítum á skákina, sem skipti sköpum varðandi lokaniðurstöð- una. Hvítt: Nigel Short Svart: John Van der Wiel Sikileyjarvörn. I.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4 4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 a6 6.Be2 e6 7.0-0 Be7 8.a4 0-0 9.Be3 Dc7 Hefðbundin leikjaröð er 9- Rc6. Nú tekst hvítum að reka nagla í drottningarvænginn. 10.a5 Bd7?! Il.f4 Bc6 12.Bf3 He8 13.g4! Óægfa svarts felst í því að kóngsriddarinn á ekki annan reit en d7, sem ætlaður er hinum riddaranum. Biskupstilfærslan í 10. og 11. leik var áreiðanlega hæpin. 13.-d5 15.e5 Rfd7 15.Khl Bb4 16. Bg2 Bxa5? Þetta peðsrán kostar dýrmæt- an tíma. 17. f5! Bxc3 18.bxc3 exf5 19.e6! Þannig tekst honum að rífa upp stöðuna kóngsmeginn og notfæra sér að svartur er langt á eftir í liðsskipan. 19.-fxe6 20.gxf5 exf5 21.Rxf5 Rf6 22.Bd4 Rbd7? 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.