Skinfaxi - 01.08.1985, Side 23
Norrœn ungmennavika
í Finnlandi
Fieygaibui Þoisteinsson
Dagskrá vikunnar var hefð-
bundin, menn voru vaktir kl.
rúmlega 7 með ýmsum aðferðum
sem gáfust mjög misvel. Morgun-
verður var snæddur frá kl.
8.00—9.00 og síðan tóku starfs-
hópar við. Þeir voru: Rokk- og
pop-tónlistarhópur, þjóðlaga-
hópur, leiklistarhópur, videohóp-
ur, útivistarhópur, keramikhópur
og loks hópur sem settur var til
höfuðs finnsku skógunum. Sá
hópur varð þannig til, að tveir af
Norræn ungmennavika er
haldin til skiptis á Norðurlönd-
unum. Skilyrði til þátttöku er að
vera á aldrinum 16—25 ára og
hafa áhuga á norrænu samstarfi.
Markmiðið með vikunni er að
ungmenni á Norðurlöndum komi
saman í eina viku og styrki tengsl
sín í milli og einnig milli landa
sinna.
Árla morguns hinn 19. júlí 1985
lagði 8 manna hópur frá UMFÍ af
stað með flugi til Stokkhólms.
Ferðinni var heitið á norræna
ungmennaviku í Finnlandi. Eftir
að hafa eytt deginum í Stokk-
hólmi, þá lögðum við, um kvöld-
ið, af stað með lest til Umeá og
þaðan var farið með ferju til
Vasa, þar sem við hittum aðra
þátttakendur. Þar urðu að sjálf-
sögðu miklir fagnaðarfundir hjá
þeim sem áður höfðu hist á slík-
um vikum. Síðan var haldið til
Kannonkoski, nánar tiltekið Piis-
pala þar sem dvelja átti næstu
vikuna.
Finnlandsfararnir, íremri röö frá vinstri: Anna María, Helga, Fjóla,
Kristján. Aftari röö f.v. Freygaröur, Sveinn, Ragnheiöur ogBenedikt.
Slappaö af, Sveinn, Freygaröur og Benedikt.
íslendingunum fór fram á að fá
að höggva skóg. Sú beiðni náði
fram að ganga og þá bættust fleiri
í hópinn.
Hóparnir störfuðu svo með
hléum fram undir kvöld. Hléin
sem gerð voru notuðu menn til að
skrafa saman á hverju því máli
sem hentugast þótti í það skiptið.
Víst er að tungumálakunnátta
hvers og eins var notuð til hins
ýtrasta.
Á kvöldin voru svo ýmsar upp-
ákomur, þar sem menn skemmtu
bæði sér og öðrum. Sem dæmi
má nefna landskeppni í kodda-
slag og reiptogi, kvikmyndasýn-
ingar, söng við varðeld, diskótek,
skemmtiatriði og ýmislegt fleira.
Eftir að skipulagðri dagskrá lauk
fundu menn sér svo eitthvað til að
gera frameftir nóttu og voru oft
nýsofnaðir þegar ræst var á ný.
Það sem hér á undan er upptal-
ið var rammadagskrá, sem átti sin
frávik. Einn daginn fórum við í
skoðunarferð um mið-Finnland,
skoðuðum m.a. Pyhá-Hákin
SKINFAXI
23