Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1985, Page 27

Skinfaxi - 01.08.1985, Page 27
Vísnaþáttur Skinfaxa Þá er komið að kveðjunni sem Helgi Seljan sendi Sigurði Ó. Pálssyni á Egilsstöðum, en fyrri- partar Helga voru á þessa leið: Enn fer vor um Austurland óma hörpustrengir. Undur þrái ég austur nú ungviðinu að sinna. S.Ó.P. botnar þetta snarlega og gerir úr heilar vísur sem líta svona út. Enn fer vor um Austurland óma hörpustrengir. Við það trú og tryggðaband treysta víf og drengir. Undur þrái ég austur nú ungviðinu að sinna. Best er gleði bónda sú bústörfin að vinna og til viðbótar. Undur þrái ég austur nú ungviðinu að sinna þar sem eflist ennþá trú æskudrauma þinna. Okkur bárust fleiri botnar við fyrriparta Helga. Svona vill einn nafnlaus hafa vísurnar. Enn fer vor um Austurland óm hörpustrengir. Gullið rekja geislaband glettnir álfadrengir. Undur þrái ég austur nú ungviðinu að sinna. Hitta bæði hund og kú helst mig sjálfan finna. Og gamall vinur þáttarins Kristján Jónsson frá Snorrastöð- um sendir þetta. Enn fer vor um Austurland óma hörpustrengir. Frá jöklabyggð á sævarsand sólin göngu lengir. Undur þrái ég austur nú ungviðinu að sinna. Ganga þar um byggð og bú og blessun öllu vinna. Þriðji fyrriparturinn misprent- aðist og lögðu menn því almennt ekki í hann, en sá nafnlausi botn- aði hann svona. Tinda fjalla sjaldan sjá svo er um alla firði. Eflaust hallar einhvern á ei um fall og hirði. Ef til vill voru fyrripartarnir nokkuð erfiðir að þessu sinni, enda greinilegt að það voru engir meðalmenn sem botnuðu að þessu sinni. Sigurður þakkar Helga send- inguna og sendir boltann áfram til Braga Björnssonar Lagarfelli 11 Egilsstöðum með eftirfarandi fyrripörtum. 1. Nætur vorsins ástareld undra heitan kveikja 2. Áföll mörg í ólgusjó okkar þjóðarskúta fær. 3. Húmið þéttist haustar að hvað má létta geði. Með bestu kveðju Ásgrímur Gíslason SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.