Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 28

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 28
Hvaða fugl er þama? Hugleiðing um íugla fyrir göngufólk Þoisteinn Einarsson Hvaða fuglar fljúga þarna? — Var ég spurður einn fyrstu daga ágústs af samferðarmanni við Másbúða- rhólma undan Hvalsnesi. Spóar. Hvert eru þeir að fara? Til suðlægra landa. Strax? Já, þeir fara fyrstir og þessir sjö eru að kveðja, og bráðum fer krían. Fartíminn fer að hefjast. Bráðum fara gæsirnar að hópa sig á túnum, mýrum og leirum. Bröttför r r Oddaflug gæsa tT ^ ^ 4- iX r 1 þeirra dregst þó fram eftir september og október. Frá 20. ágúst má veiða grágæs og heiðagæs, sem eru þær tvær tegundir gæsa, er hálendis verpa, og svo tvær umferðafarfugla frá norrænni varpheimkynnum, bles- gæs og helsingja en sú þriðja sem hér fer um er friðuð allt árið, margæs. Tegundirnar frá hinum norðlægari löndum fara og koma um ísland eftir hefðbundnum leiðum. Margæsin leggur leið sína um utanvert vestur- land og nælir sér i marhálm á sjávar- lónum og vogum. Sést þar á sundi. En hinar tylla sér niður á votlendi t.d. Skagafjarðar, Eyjafjarðar og Þing- eyjarsýsluna og halda síðan um fjallaskörð hálendisins til lálendis suðurlands. Helsinginn velur sér frekar vestanvert norðurland. ís- lensku varpgæsirnar deila með sér landinu. Grágæsin, sem síðustu 50 árin hefur dreifst um allt land en heldur sig neðan 300 m. hæðar með- an heiðagæsin er á mýrarflákum og sillum gilja hálendisins. Frægasta kjörlendi hennar er freðmýrarnar sunnan Hofsjökuls. Þar er áætlað að verpi 10 þúsund pör og sé stærsta gæsabyggð jarðarinnar. Kunnugir telja stofnstærðir þessara tveggja teg- unda hvorrar um sig um 80 þúsund einstaklinga. Þegar við þessa flug- flota bætast aðrar þrjár gæsategund- ir þá er fjaðrablik mikið og gæsagarg í lofti, á landi og legi. Allir þessir flot- ar leita á graslendi, þó helst á útjörð nema margæsaflotinn, sem gæðir sér á marhálmi og sjávarfitjungi. Skaða gera margir búendur of mikið úr. Á vorin i mars og apríl eru grænar ný- ræktir áberandi flugsýn og freista svangra, sem þarfnast okru til að halda á lofti 3—4 kg. líkama, knýja hann áfram og svo þroska í honum 4—6 egg. Sókn skotmanna í flotana 15. mars til 20. ágúst er bönnuð með lögum. Hér fyrr meir var ísl. gæsun- um á heiðum uppi, þegar þær voru i sárum smalað i sérstakar réttir á mið- öldum og drepnar — en álftir í sárum eltar uppi og slegnar til dauða. Ár- lega hafa fuglar hamskipti. Flestir einu sinni en sumir oftar t.d. hávella. f „sár“ lenda eingöngu andfuglar (gæsir, endur og álftir), því að hjá þeim falla flugfjaðrir allar í senn, svo fuglinn er ófleygur. Upphaf veiðitíma er miðað við (20. ágúst) að gæsir séu komnar úr sárum. Grágæs Rauðgulur goggur, einlitur Fætur bleikrauðir. Framanverður vængur ljós. Fullorðnir fuglar geta haft dökka dila að neðan en án dökkra þverráka. Skvaldrandi bæði á flugi og á jörðu. Félags- lyndir fuglar. Fylkja sér á lang- flugi í oddaflug. Skiptast á forystu til að rjúfa loftmótstöðu. Fylkingunni haldið saman með sýn til hvers annars, skvaldri og flugdyn. Stærð 76—89 cm. Bak og kviður Ijósara en annarra gæsa. Við flugtak sveiflast háis í kippum til hliðanna og þá sér- kennist lending flokks grágæsa af loftköstum, svifi og rennsli til hliða eða snöggum dýfum, — hið mesta „fjaðrafok". Heiðagæs Goggur stuttur, bleikrauður, svartur við rótina. 28 SKINFAXl

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.