Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 30

Skinfaxi - 01.08.1985, Side 30
. f í minningu Siguiöar Greipssonar Sigurður Greipsson fyrrum skólastjóri í Haukadal lést 19. júlí s.l. Með Sigurði er fallinn í valinn einhver svipmesti leiðtogi og hug- sjónarmaður sem ungmenna- félagshreyfingin hefur átt. Spor Sigurðar liggja víða og stendur ungmennafélagshreyf- ingin í ómældri þakkarskuld við hann. Hann var formaður hér- aðssambandsins Skarphéðins í 43 ár og átti stóran þátt í að gera héraðssambandið öflugt bæði á iþrótta og félagssviði. Hann sat í stjórn UMFI í 6 ár og 3 ár í vara- Þórir Þr'rgeirsson, Hafsteinn Þor- valdsson og Siguröur Greipsson aö taka á móti verölaunum HSK áLandsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1965. stjórn. Sigurður átti heiðurinn af því að endurreisa landsmót Ung- mennafélaganna. Fyrsta mótið var haldið í Haukadal 1940. Þó afrek Sigurðar hefðu ekki verið önnur en endurreisn landsmót- anna myndi nafn hans vera skráð gylltu letri í sögu ungmennafélag- anna. Landsmótin hafa vaxið að umfangi og orðið sá aflvaki er mest hefur eflt íþrótta- og félagsstarf landsbyggðarinnar. Áhugi Sig- urðar fyrir mótunum var alla tíð mikill og mætti hann á þeim öll- um eftir 1940, nú síðast á s.l. sumri. Hin síðustu ár var Sigurð- ur þrotinn af kröftum en hugsun- in var skýr og viljinn sem forðum. Hafsteinn Þorvaldsson fyrrum formaður UMFÍ sýndi Sigurði mikla ræktarsemi í veikindum hans og fylgdi Sigurði á landsmót og aðrar þær samkomur er hug- urinn stefndi til. Sigurður var mikill ræðumað- ur hann var víðsýnn og víðlesin og talaði afburða gott mál og framsetningin slík að áheyrendur hrifust með. Mér er enn í minni ræða sem hann flutti á fundi leið- toga og gesta á Landsmótinu 1975. Það var eins og heimilisvin- ur Sigurðar Geysir væri að gjósa, eldmóðurinn og krafturinn var slíkur. Eftir að hafa lokið námi í Hólaskóla hélt Sigurður til náms í Lýðháskólanum í Voss í Noregi. Síðar nam hann í þeim þekkta skóla Ollerup í Danmörku. Af miklum dugnaði og bjart- sýni byggði Sigurður fþróttaskól- ann í Haukadal og tók hann til starfa 1927. Skólinn starfaði í 44 ár undir stjórn Sigurðar, fór mik- ið orð af skólanum og leiðsögn Sigurðar. Allir þeir nemendur er ég hef hitt og þar hafa verið bera Sigurði og skólanum gott orð. Alls urðu nemendur skólans rúm- lega 800. Sigurður lagði alla tíð mikla rækt við íslenska glímu og var glímukóngur íslands í 6 ár, hann tapaði aldrei kappglímu á því tímabili. Árið 1932 kvæntist Sig- Árið 1932 kvæntist Sigurður Sigrúnu Bjarnadóttur frá Bóli í, Biskupstungum, mikilli mann- kostakonu, en hún lést 10. ágúst 1979. Þau Sigurður eignuðust sex börn, tvö þeirra dóu mjög ung, piltur og stúlka, en synirnir fjórir sem eftir lifa eru: Bjarni bú- settur í Reykjavík, Greipur, Þórir og Már, allir búsettir í Haukadal. Sigurður var kjörinn heiðurs- félagi UMFÍ 1971. Vonandi tekst ungmennafélagshreyfingunni að starfa í anda þeirra hugsjóna er honum voru svo kærar, trúnna á landið og þjóðina og viljann til að leggja góðum málum lið án þess að hugsa um endurgjaldið. Ég sendi fyrir hönd ungmennafélaga aðstandendum einlægar samúð- arkveðjur. Við minnumst Sigurð- ar með þakklæti og virðingu. Pálmi Gíslason 30 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.