Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 3
í:f
1
xséL,
Síðasta blað fékk góðar viðtökur hjá flestum, og virðist breytingin á blaðinu falla
flestum í geð, þó allir séu nú ekki ánægðir. Enda væri það skrýtið ef hægt væri að gera
öllum til hæfis. Ég vil taka það fram hér að allar þær greinar er blaðið fær sent frá
einstaklingum og eru birtar undir nafni, eru á ábyrgð höfunda, og túlka ekki endilega
skoðanir blaðsins né UMFÍ.
Eins og oftast áður er mikið starf framundan á hinum ýmsu sviðum í sumar, en nú er ekki
nema rétt ár í landsmót. Því er ástæða til að hvetja samböndin og félögin til að hefja nú
undirbúning fyrir mótið af fullum krafti svo það takist sem best. En allar framkvæmdir á
Húsavík eru í fullum gangi og gengur vel. Eins og fram kom í síðasta blaði þá hefur
UMFÍ fest kaup á nýju húsnæði sem flutt verður í einhvemtfma í þessum mánuði. Mun
það bæta alla aðstöðu til gistinga, en það húsnæði er mun stærra og hentugra en það sem
UMFÍerínú.
Þá er að minnast þess að "Göngudagur fjölskyldunnar" er núna 22. júní. Mikil herferð er í gangi hjá
ÍSÍ til að efla trímm, og verður í því sambandi dagskrá í heila viku undir kjörorðunum "Heilbrígt líf - hagur
allra". Er fyllsta ástæða til að hvetja alla til að taka þátt í þessu, ekki bara eingöngu þessa viku heldur um
ókomna framtíð.
Ég vil að lokum hvetja sainböndin og félögin að leggjast á eitt um að gera 19. Landsmót UMFÍ sem
glæsilegast, og hefja því undirbúning strax. fslandiallt
Guðmundur Gíslason
I blaðinu er
meðal annars:
Hef aldrei stundað íþróttir:.....
Krýsuvíkursamtökin...............
Spilum ánægjunnar vegna..........
Léthann æfa í sturtu.............
Knellan..........................
SKINFAXI
77. árg. 2. tbl. 1986
Útgefandi: Ungmennafélag íslands - Ritstjdri: Guðmundur Gfslason - Stjórn UMFÍ: Pálmi
Gíslason formaður, Þóroddur Jóhannsson varaformaður, Þórir Jónsson gjaldkeri, Bergur
Torfason ritari, meðstjórnendur: Dóra Gunnarsdóttir, Guðmundur H. Sigurðsson, Diðrik
Haraldsson - Afgreiðsla Skinfaxa: Skrifstofa UMFf Mjölnisholti 14, sími:91-14317 - Setning og
umbrot: Skrifstöfa UMFÍ - Filmu og plötugerð: Prentþjónustan hf. -Prentun: Prentsmiðjan Rtln sf.