Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 24
Skákþáttur Englendingurinn sem datt . ofan úr skýjunum Jon L. Amason •' ** Glenn Flear heitir 27 ára gamall Englendingur sem átti heldur betur viðburðaríka daga í London er leið að páskum. Þá var að hefjast skákmót í borginni með þátttöku þekktra stór- meistara frá sex löndum. Flear hefði mátt gera sér að góðu að fylgjast með og reyna að læra af meisturunum ef einn sovésku stórmeistaranna hefði ekki forfallast á elleftu stundu. Svo ekki stæði á stöku brugðu mótshaldarar á það ráð að biðja Flear um að taka sæti hans. Þannig atvikaðist það að Flear varð þátttakandi á þessu sterka móti, þar sem allir keppendur báru stórmeistara- nafnbót, utan hann sjálfur og Maxim Dlugy, núverandi heimsmeistari unglinga, sem þó fær væntanlega útnefningu á næsta þingi alþjóða- skáksambandsins - ásamt Margeiri okkar Péturssyni. Aldrei fyrr hafði Flear teflt í félagsskap svo sterkra skákmeistara og vitaskuld var þetta frábært tækifæri, þó svo hann hefði ekki getað undirbúið sig sem skyldi. Þama tefldu svo frægir menn sem Spassky, Larsen, Polugajevsky, Vaganjan, Ribli og Nunn, svo fáeinir séu nefndir. Róðurinn yrði áreiðanlega þungur fyrir söguhetjuna okkar, sem þar að auki hafði annað að sýsla þessa örlagaríku daga. Um mitt mót gekk hann að eiga franska skákdrottningu, Christine Leroy, og vitaskuld fékk hann skák sinni þann daginn frestað. Hveitibrauðsdagarnir urðu Flear ógleymanlegir og skákheimurinn á eftir að minnast þeirra um ókomin ár. Glenn Flear skaut veðmöngurum Bretlands skelk í bringu með því að sigra glæsilega á mótinu. Hann hlaut 81/2 v. af 13 mögulegum. Næstir komu Englendingamir Short og Chandler með hálfum vinningi minna, þá Ribli og Nunn, síðan Spassky, Portisch og Polugajevsky, þá Vaganjan og Speelman svo Larsen og næst Plaskett og lestina ráku Mestel og Dlugy. Skáksagan geymir fleiri dæmi um óvænt úrslit eins og þessi, er tiltölulega óþekktur skákmaður mætir til leiks á síðustu stundu og slær í gegn. Upp í hugann kemur skákmótið í París árið 1867, sem haldið var í sambandi við mikla sýningu í borginni. Meðal gesta á sýningunni var pólskur kaupsýsl- umaður, Simon Winawer, sem frétti fyrir tilviljun af skákmótinu og langaði til að reyna sig. Hann fékk að vera með og ekki tókst honum lakar en svo að hann náði öðru sæti og varð vinningi fyrir ofan sjálfan Wilhelm Steinitz, sem þá var óopinber heimsmeistari í skák. Sagt var um Winawer, sem átti eftir að koma talsvert við sögu á skákmótum eftir þetta, að hann hefði "dottið ofan úr skýjunum" og sú lýsing á ekki síður við um Glenn Flear. Annars vekur vaskleg framganga Eng- lendinga á mótinu athygli. Það er engu líkara er erlendu skákmeistaramir hafi einungis verið til uppfyllingar. Lítum á athyglisverða skák þar sem sjálfur Bent Larsen er í hlutverki "minni spámann- sins" sem stenst ekki vandaða tafl- mennsku Englendingsins Murray Chandler, - sem reyndar missti af efsta sætinu er hann tapaði fyrir Plaskett í síðustu umferðinni. Skákin sýnir vel þá miklu aflrænu sem staka peðið á miðborðinu býr yfir. Larsen lét undir höfuð leggjast að skorða peðið nægilega vel, eins og lærifaðir hans, Aron Nimzowitsch kenndi. Stöðuorkan leystist úr læðingi og Chandler náði undirtökunum. Á miðborðinu varð hann allsráðandi og eftir ónákvæmni Larsens tókst honum að knýja fram sigur. Hvítt: Bent Larsen Svart: Murray Chandler Tarrasch-vörn 1. c4 c5 2. g3 Rf6 3.Bg2 e6 4. d4 cxd4 5. Dxd4 Larsen brýtur meginregluna um að ekki skuli fara af snemma af stað með drottninguna. Hann þekkir andstæðing sinn og veit að hann fær tækifæri til að tefla gegn staka miðborðspeðinu. 5. - d5 6. cxd5 exd5 7. Rf3 Rc6 8. Da4 Bc5 9 0-0 0-0 10. Bg5 He8 11. e3 h6 12. Bxf6 Dxf6 13. Rc3 Be6 14. Hadl Had8 15. Hd2 Bb6 16. Hfdl? Betra var 16. Rb5 ásamt Rbd4 og skorða staka peðið kyrfilega. 16. - d4! Þessi leikur hefur áreiðanlega farið framhjá fránum augum Larsens, sem hefur Fimmfalt vald á þessum reit. Eftir 17. exd4 lokast hins vegar fyrir sjónlínu drottningarinnar eftir fjórðu reitaröðinni og svartur leikur 17. - Bg4 18. Hd3 Rxd4 o.s.fr.v. 17. Rxd4 Bxd4 18. exd4 Bg4! 19. Re4 Ef hrókurinn víkur sér undan fellur d-peðið og ef 19. f3 Bxf3 20. Hfl (20. Hf2 Bxdl) kemur 20. - Dg5! með ásetningi á hrókinn og losar sig úr leppuninni. 19. - Dg6 20. f3 Hxe4! 21. fxe4 Bxdl 22. Dxdl Rxd4! 23. Khl Ekki 23. Hxd4? vegna 23. - Db6 og hrókurinn fellur. 23. - Df6 24. e5 Dxe5 25. Bxb7 Hd6 26. Bg2 h5 Heljargreipar svarts á miðborðinu og sterkur riddari gefa honum betri stöðu og nú hyggst hann bijóta upp hvítu kóngsstöðuna. Þótt fáir menn séu eftir á 24 Skinfaxi 2. tbl. 1986

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.