Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 18
Afrekaskráin 1985 í
frjálsum íþróttum skoðuð
Guðmundur Sigurðsson fjallar um árangurínn 1985
Guðmundur Sigurðsson UMSK
Millivegalengdk
í raun er lítið hægt að segja um þessar
greinar, nema hvað Brynjúlfur Hilm-
arsson hefur hér mikla yfirburði, og þá
sérstaklega í 1500 m. Þá náði Erlingur
dágóðum tíma í 800 m. og Hannes
bætti sig mikið í báðum vegaleng-
dunum.
Langhlaup
Þó svo að árangur langhlaupara sé ekki
beysinn er þó um framfarir að ræða.
Sérlega má vænta þess að Már
Hermannsson eigi eftir að ná árangri í
5000 m. og 10000 m. sem talandi er
um.
Brynjúlfur er hins vegar langbestur í
3000 m.
Gríndahlaup
Svanhildur Krístjónsdóttir UMSK
INNGANGUR
Undirritaður mun nú í fyrsta skipti fjalla
um afrekaskrá UMFÍ í frjálsum íþrótt-
um.
í raun kemur fljótlega í ljós að skránna
skipar í flestum tilfellum sama fólkið
og í fyrra. Og því miður er alltof Iítið
um bættan árangur. Þó svo að á því séu
vissulega undantekningar.
Mun ég nú renna í stórum dráttum í
gegnum greinar og greinahópa og leitast
við að geta þess helsta.
KARLAR
Spretthlaup
Aðalsteinn Bernharðsson ber eins og
síðastliðið ár höfuð og herðar yfir aðra
spretthlaupara. Bæting hans varð þó
minni en tilstóð. Kemur þar eflaust
margt til m.a. ónóg keppni á réttum
mótum.
Erlingur Jóhannsson bætti sig í 200 m.
og 400 m. og á án efa eftir að ná langt
ef heldur sem horfir.
Að öðru leiti var árangur hálf dapur, þó
eru nokkrir einstaklingar sem gætu
vissulega náð árangri og vonandi verða
þeirra nöfn hér með á næsta ári.
Þeir félagar úr UMSE skiptu þessum
stuttu og löngu grindahlaupum bróður-
lega á milli sín.
Á Aðalsteinn án efa eftir að bæta sig
verulega í 400 m. grind ef hann fær
tækifæri til að hlaupa oftar á hveiju ári.
Boðhlaup
Þrátt fyrir að meiri áhersla væri lögð á
boðhlaupin á mótum þessa árs en oft
áður náðist ekki betri árangur.
Einna helst virtust eyfirðingar eiga
sæmilega sveit, en lélegar skiptingar
komu í veg fyrir verulega bættan
árangur.
18
Skinfaxi 2. tbl. 1986