Mánudagsblaðið - 23.01.1967, Side 6
ÚR EINU
í ANNAÐ
Góðir sjónvarpsþættir — Skólaiólk — Embætti Nor-
dals — Svei norrænni samvinnu ~ Rauða skikkjan
— SAM og L.R. — Flugfélög —
Geta ber þess, sem gott er, og á það vel við um frétta-
útsendingar sjónvarpsins. 1 s.l. viku báru af sjónvarps-
fréttir af flóðum og ófærum eystra, bæði fréttaflutning-
urinn sjálfur og myndatakan. Þá var erlenda fréttayfir-
litið skýrt, hlutlaust og vel samið, ásamt ágætum frétta-
myndum, sem sjónvarpið hafði aflað sér. Fréttastofan,
undir stjóm Emils Björnssonar, virðist ætla að vera með
öðru og miklu betra sniði en fréttastofa útvarpsins, sem
rekin er, að bezt virðist, „öðruvisi".
Ekbi skal á það deilt, þótt menntaskólanemar við Lækj-
argötu taki sér göngutúra til hressingar á morgnana í
frítímum eða kennsluhléi. En hitt er hinsvegar hvimleiður
vani þeirra þegar hópar taka sig saman til að ögra um-
ferð, hlaupa fyrir bíla, eða gera sig líklega til að stöðva
þá. Máske þykir skólatelpum þeir hetjulegir er þeir glenna
sig á götunum, en í rauninni minna þeir fremur á smá-
krakka, eem reka út úr sér tunguna í skjóli ,,pabba“. En,
svona er það, ólík gerast nú hetjubrögðin í ástalífi ung-
linganna.
Ætli hann dr. Jóhannes okkar Nordal geti annað öllu
fleiri embættum en hann hefur nú þegar. S.l. fimmtudag
skýrði Mbl. frá því, að nú væri dr. Nordal orðinn for-
máður Hugvisindadeildar Vísindasjóðs og eru þá embætti
hans orðin ærið mörg, þótt ekki verði starfskraftur dokt-
órsins dreginn í efa. Það má vera erilsamt í öllum þessum
embættum, t.d. að standa vörð um að allir bankamir séu
sem næst á hausnum, halda ríkisstjórninni í skefjum, slá
út allan lausaeyri, sem útlendingar þora að lána okkur
og gegna nær 15 embættum og ýmsum sýslunum sam-
tímis. Væri ekki ráð fyrir bilaeigendur að fá hann í „olíu-
samlagið" sitt? Við ækjum allir á flugvélabensíni innan
nokkurra daga.
Það hefur löngum verið skapozt að svokallaðri „n<>r-
rænni samvinnu“ hér í blaðinu og ekki að ástæðulausu.
Skandinavar hafa jafnan verið Skandinövum verstir og
við höfum lítt eða ekkert haft til þeirra að sækja, enda
hafa kjaftaþing okkar á norrænum fundum jafnan byggzt
á fomsögusnakki og fagurgala um frændsemi þjóðanna.
Verkin tala þó bezt og mest í Loftleiðamálinu og öllum
samskiptum Islands við SAS-samsteypuna. Hagur okkar
er fyrir borð borinn, þjóðin og félagið spottað. Nær væri
að koma samskiptum okkar við norræna frændur í eitt-
hvað heilbrigðara form en árlegar kokkteilsamkomur og
gleðiþing fulltrúanna. Satt bezt sagt, Danir em okkur
hollastir.
Þá hafa Danir afgreitt Rauðu skykkjuna, og auðvitað
okkur í hag, þvi kvikmyndara fyrirtækisins tókst vist að
ná bráðfallegum myndum af landslaginu. Það er á flestra
vitorði, að dönsk gagnrýni er ein strangasta gagnrýni
Evrópu og sagt, að bæði leikhús og kvikmyndir, sem sleppi
sæmilega í höndum danskra gagnrýnenda, sé borgið í
Evrópu og Ameríku. Hvað um það, vonandi fáum við
eitthvað af túristum út á hól danskra um landslagið okkar.
Hælt var fréttaþjónustu sjónvarpsins hér að ofan, en
eigi síður má hrósa sýningunni á kvikmyndinni um Canar-
is, sú bezta hjá stofnuninni til þessa. Með lélegri þáttum
sjónvarpsins var sá, sem sjónvarpsfræðingurinn Sigurður
A. Magnússon flutti í tilefni 70 ára afmælis Leikfélags
Keykjavíkur. Ef þetta er hugmynd SAM-s um sjónvarp og
ástæðan til þess, að hann þolir ekki og berst á móti Kefla
víkursjónvarpinu, skilur maður margt, sem áður var ekki
ljóst. Sjónvarpsþáttur SAMs um L.R. var lélegur, leiðin-
legur og akkúrat í stíl við ' „kennara-kerfið" — jafnvel
60-menningamir þoldu ekki þáttinn.
•--------*------:-------------------
Skyldi fara eins með flugfélögin og bílasölurnar. Nú
spretta upp flugfélög eins og gorkúlur á haug og kaupa
nýjar og stærri vélar á tug-milljónir. Þet.ta er eflaust rétti
tíminn til að kaupa — hagfræðingar segja útþensluna
komna á hápunkt og bráðlega fari fjárbruðlið að „slappa
af“ draga úr eyðslu ,og klondæk-kerfið hverfi á brott.
Fólkið fer eflaust að treysta bifreiðum fyrir pósti, og
engar likur á að sauðf járflutningar hef jist á ný með flug-
vélum ein" og rinu sinni var. Það væri máske réttara að
fara hægt í ö/ona fyrirtæki, eins og sakir standa.
Sjónvarpið
Surmudagur
1400 Chapel of the Air
1430 This Is the Life
1500 Golf
1600 Sports
1715 Greatest Fights
1730 G. E. College Bowl
1800 The Smithsonian. Hið
fræga safn í Washington
1830 Tele-News Weekly
1845 The Christophers
1900 News
1915 Sacred Heart
1930 News Special
2000 Bonanza
2100 Ed Sullivan
Jimmy Durante, Gwen
Vernon, Connie Francis
2200 Jim Bowie
2230 What’s My Line
2300 News
2315 „The Bride Wore Boots.“
Barbara Stanwyck. Bob
Cummings. Gamanmynd.
Mánudagur
1600 Here’s Edie
1630 Harrigan & Son
1700 „Murder without Crime.“
Dennis Price, Derek Farr.
Brezk.
1930 Andy Griffith
1855 Crusader Rabbit
1900 News
1930 Survival
2000 Milton Berle
2100 My Favorite Martian
2130 Roger Miller
Bobby Darin gestur.
2200 12 o’clock High
2300 News
2315 The Tonight Show
Buddy Hackett, Don
Cherry, Josyane Leroy
Þriðjudagur
1600 Headline
1630 Joey Bishop
1700 Sjá Sunnudag kl. 11
1830 Swinging Country
1855 Crusader Rabbit
1900 News
1915 Tele-News Weekly
1930 News Special
2000 Death Valley Days
2030 Hollywood Palace
2130 Combat
Gilbert Roland gestur
2230 I’ve Got a Secret
2300 News
2315 „The Big Lift“ Montgo-
méry Clift, Paul Douglas.
Loftbrúin til Berlínar.
Miðvikudagur
1600 Dobie Gillis
1630 Mr. Adams & Eve
1700 Sjá þriðjudag kl. 11
1830 Pat Boone
Terry Savales, MarniMixon
1855 Crusader Rabbit
1900 News
1930 Beverly Hillbillies
2000 Danny Kaye
2100 Dick Van Dyke
2130 „Inside China.“
2230 The Third Man
2315 „Highpowered Rifle."
Williard Parker, Allison
Hayes.
Fimmtudagur
1600 Coronado 9
1630 Biography
1700 Sjá miðvikudag kl. 11.
1830 Social Security
1855 Crusader Rabbit
1900 News
1915 E. B. Film
1930 Red Skelton
2030 „Friends and Neighbours."
Andy Griffith, Tennessee
Ernie Ford, Jim Nabors
(Gomer Pyle).
2130 News Special
2200 Gary Moore
Jackie Vernon, John Byner
Eddie Lawrence, Carol
Corbett.
2315 „Father Is a Bachelor"
William Holden, Coleen
Gray.
Föstudagur
1600 Big Picture
1630 Danny Thomas
1700 Sjá fimmtudag kl. 11.
1830 Candid Camera
1900 News
1855 Crusader Rabbit
1930 Addams Family
2000 Voyage to the Bottom of
the Sea
2100 Dean Martin
2200 Rawhide
Gestur Josephine
Hutchinson.
‘>300 News
2315 Sjá mánudag kl. 5.
Mánudagur 23. janúar 1967
Á veitingastööum
1.. 2. og 3. flokks staðir — Ekki allir eins — Eld
hús og vínleyfi - Búlur og skríll - dfgar og óraun
sæi — Þörf breytinga — Illska og kurteisi —
Fyllirí eða hófsemi?
Eitt af því, sem stöðugt veld-
ur undrun innlendra sem er-
lendra gesta hér á landi er það,
að við, einastir allra, teljum alla
landsmenn sjentilmenn, alla í
sama flokki, alla hegða sér eins
og vera jafnir fyrir guði og
mönnum, þótt því sé hér, eins
og í öllum löndum, víðs fjarri.
í sambandi við hótelmenningu
kemur þetta ærið einkennilega
út. Engum veitingastað, matstað
eða hóteli er leyft vínveitinga-
leyfi nema staðurinn sé „fyrsta
flokks“ hafi „fyrsta flokks eld-
hús“ og „fyrsta flokks" aðbún-
að. Þetta fáránlega fyrirkomulag
hefur ekki valdið annarri þróun
í veitingamálum okkar en þeirri,
að bæði veitingamenn og gestir
almennilegra staða eru varnar-
lausir gegn innrás drykkjulýðs,
sláandi peninga, sníkjandi vín
og, ef ekki vill betur, berjandi á
þeim, sem þeim mislíkar við,
jafnvel sáklaust fólk með öllu.
Engu eirir þessi skríll, setur
sóðasvip á allt sem hann kem-
ur nærri, spillir friði og frið-
samlegum samræðum, eys sér í
brennivínsvímu yfir nærstadda,
ekki sízt ef þeim gefst tækifæri
að ná sér niðri á þekktum borg-
urum, stjórnmálamÖnnum eða
áhrifamönnum í viðskiptalífi eða
opinberu lífi almennt. Afsök-
unin er venjulega sú, að þeir
hafa verið vertíð til sjós eða
hafa meðlimakort í einhverju
verkalýðsfélagi. En sízt er þetta
bundið við sjómenn eða verka-
menn. Siður en svo, því þar
finnast ekki síður sjentilmenn en
annarsstaðar. Engu minna af ó-
húshæfum skríl má finna í öll-
um öðrum stéttum, bókmennta-
fólki, verzlunarfólki og enn víð-
ar.
íslendingar verða að gera sér
ljóst, að við eins og allar aðrar
þjóðir erum ekki byggðar af
tómu sjentilfólki. Misjafn sauð-
ur er ekki síður hér. Öll lönd,
þá ekki sizt nágrannar okkar og
frændur, gera sér þennan mögu-
leika Ijósan, og gera ráðstafan-
ir í samræmi við það. Við verð-
um að flokka niður veitingastað-
ina, gera minni kröfur til ódýr-
ari staða, meiri til úrvals- eða
lúxusstaða. Fólki verður aldrei
bannað að fá sér staup. En ekki
allir vilja vera innan um rusl-
aralýð, né heldur brúka vín til
Laugardagur
1030 Discovery
1100 Captain Kangaroo and
Cartoon Carnival
1300 Championship Bridge
1330 Football, Wrestling
1700 E. B. Film
1730 Heart of the City
1800 Lawrence Welk
1855 Chaplain’s Corner
1900 News
1915 Coronet Films
1930 Jackie Gleason
2030 Perry Mason
2130 Gunsmoke
2230 Have Gun Will Travel
2300 News
23.15 „Virginía"
Fred Mac Murray, Made-
leine Carrol, Sterling
Hayden.
að verða hálfvitlausir, eins og of
oft er árangur vínneyzlu hér á
landi. Eftirlitið verður að auk-
ast, refsingin gagnvart afbrotum
veitingamanna í sambandi við
aldur gesta að harðna.
Einn af okkar ágætu veitinga-
stöðum er nú að verða þvílík
svínastía, að gestir, almennilegt
fólk, flýr þaðan unnvörpum, en
eftir situr sláttulýður, ræflar,
uppdópaðar kvensur, og allskyns
óhæfur skríll. Á öðrum stað er
hvergi friður fyrir ... allir erum
við jafnir... sjónarmiðinu, eins-
konar ræflaútgáfa af kínverska
fyrirbrigðinu af kommúnisma.
Það er óþarfi að telja þetta upp
eða lýsa þessu nánar. Staðirnir
þekkjast, og skynsamt fólk, sem
drekkur eitt tvö staup sér til
hvíldar eða undan mat, flýr að
betri stöðum og forðast ósköpin.
Sannleikurinn er sá, að veit-
ingamenn verða að skipta etöð-
um sínum eða stofna staði, 6em
taka á móti þeim, sem verða
vandræðamenn þegar vín er ann-
arsvegar. Vitanlega er þetta af-
arkoslur, en að ætla sér að glíma
við eða breyta mannlegu eðli og
upplagi er ekki nema draumórar
fávísra presta, sem horfa óraun-
sæjum augum á mannlifið, má-
ske öfundaraugum. Við höfum
meira en nóg af slíkum óraun-
sæjum „draumóramönnum" í at-
kvæðastöðum hér. — Það þarf
raunsæja leiðtoga til að horfa
raunsæjum augum á þeim tím-
um sem nú lifa, ekki kjökrandi
kerlingaklerka, öfgafulla vellaun-
aða postula né sjúka draumóra-
menn, fulla af eyjamennsku og
óraunsæi.
fslendingar búa við 2. og 3.
flokks fólk eins og Skandínavar,
meginlandsbúar, Bretar og vest-
urálfumenn. Því ekki að gera
sér það ljóst og hætta öllum há-
leitum, öfgafullum, óttafullum
og svokölluðum lýðræðislégum
sjónarmiðum í þessum efnum?
Það myndi bæta mikið.
Fróileiksbrot fyrir
hina menntuiu
«v- 7* "«***» w nr. m •» .
Kapítalismi í Rússlandi — Japan no. 3 í bílafram-
leiðslu — Alcatraz „friðareyjan" — Lán til Motel-
bygginga — Viðbjóður
Rússar hafa nú aukið
mjög sók ..ina í þá átt að
breyta ýmsum iðngreinum
sínum yfir í hið kapítaliska
reksturskerfi vesturheims.
Þessar upplýsingar koma
ekki frá neinum öðrum en
Evsei Li'ocrman, prófessor,
einum ' amsýnasta hagfræð-
ingi Sovétrí':janna, sem ver-
ið hefur á fyrirlestraferð í
ftalíu, og er upphafsmaður
hinnar nýju stefnu í Rúss-
landi.
1 stað algers ríkisreksturs,
hafa Rússar danfarið haf
ið þá stefnu að láta mark-
aðsöflin sjálf ákveða fram-
leiðslu ð og gróða. Sam-
kvæmt upplýsingum próf.
Libermanns hafa 674 fyrir-
tæki (framleiðsl. "yrirtæki)
þ.e. 12% af rússneskum
framL.oslufyrirtækjum, tek-
ið upp hið nýja fyrirkomu-
lag. Þessi fyrirtæki hafa
sýnt framleiðsluaukningu
um 8% á móti 5% meðal
framleiðsluaukningu hjá iðn-
fyrirtækjum, sem enn eru al-
gjörlega rekin af ríkinu.
Algjör breyting í iðnaðin-
um er áætluð í órslok 1968
en Libermann telur að hún
geti orðið fyrr.
Prófessor Liberr-ann hef-
ur lika sle^ varnagla
að Sovétríkjunun. kunni að
mista'kast eitthvað þegar
þau breyta yfir i rekstursfyr
irkomulag hins vestræna
kapitalisma. „Framtíðin"
sagði Liberman, „verður
máske ekki algjörlega að
fullu heppnuð".
★
Sl. ár varð Japan þriðja :
mesta framleiðsluland í bif-
reiðum, (Bandaríkin og V-
Þýzkaland), samkvæmt upp
lýsingum frá Automotive
International Association.
Japan framleiddi 1,8 milljón
ir bíla frá janúar til októ-
ber, en við það féllu Bretar
úr þriðja sæti.
★
Alltaf eru vinir okbar
Bandaríkjamenn jafn „sein“-
lieppnir. "’ns og kunnugt er
þá var hið illræmda og
heimsfra fangelsi Alcatr-
az — staðsett á Alcatraz-
eyjunni í San Francisco-
höfn — tekið úr notkun fyr
ir ca. t\'CÍm árum og staðið
autt síðan. A' atraz var ill-
ræm’ast allra fangelsa, en
talið hið öruggasta. Þai voru
heimamcnn eins og t.d. AI
Capone, hriðskotabyssu
Kelly og aðrir álí' c „frið-
menn“, r- -ðinnr.iar, illmnuni,
fúlmenni af verstu tegund.
Nú ’-'fur nViiviim King-
snnn-’ Banda-
FraiiihulJ á 3. síðu.