Mánudagsblaðið - 29.05.1967, Side 2
\
Mánudagsblaðið
Mánudagnr 29. maí 1967
JÖNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
FRELSI OC
UTANRÍKISMÁL
Allmargir ungir menn hér á
landi hafa farið hörðum orðum
um varnarmál þjóðarinnar eins
og nú er um þau samið við
Bandaríkin. Bera ummæli þess-
ara manna vott um mikinn ó-
kunnugleika á aðstöðu þjóðar-
innar í þessu efni.
Fyrstu þrjár aldir hins forna
lýðveldis var mikill friðartími
gagnvart öðrum þjóðum, þó að
víkingaeðlið fæddi af sér sífeld
ar innanlands deilur, en ef frá
eru tekin afskipti Ólafs helga af
kirkjumálum íslendinga, þar
sem þjóðin lét strax undan kröf
um konungs, má segja að iand-
ið hafi ekki orðið fyrir yfir-
gangi eða áleitni grannþjóða
fyrr en norskir konungar og
kirkjuleiðtogar notuðu sundur-
lyndi voldugustu ættbálkanna á
Sturlungaöld til að ná háskaleg-
um yfirdrottnunartökum á þjóð-
inni. Norðlenzkir bændur vildu
kaupa sér frið og frelsi með því
að bjóða fulltrúa konungs fébæt
ur til að fá fellda úr gildi samn
inga jarlsins íslenzka við Hákon
konung, en sú tilraun bar engan
árangur. Konungur vildi fá
frelsi þjóðarinnar lagt í fjötra
en engar smánarbætur.
Síðan liðu aldir þannig að
konungar og. biskupar norskir
og danskir höfðu raunverulega
öll völd yfir þjóðinni þar til lít
illega rofaði fyrir í myrkri og
allsherjar féflettingu þjóðar fyr-
ir tveim mannsöldrum. Samt
voru þessir valdamenn synir ná-
skyldra grannþjóða og þær báð-
ar að öllum jafnaði menntar í
samræmi við kristin dóm og
siðvenjur Vesturlanda. Samt var
frelsissviftingin svo furðulega á-
hrifamikil að handhafar hins er
lenda valds fluttu héðan ár eft-
ir ár nálega allar tegundir and-
legra og fjárhagslegra verð-
mæta.
Vamarleysi þjóðarinnar gegn
sjóræningjum var tilfinnanlegt.
Þeim kapitula lauk með Tyrkja-
i-áninu. En skömmu síðar efldist
”oti Breta svo mjög að frá dög
um Cromwells var ísland í þrjár
aldir samningslaust undir
brezkri flotavemd. Lauk þeim
þætti í síðara heimsstríðinu þeg
ar Bretar hertóku ísland og
héldu þeirri aðstöðu í' eitt ár.
Þá kom til þess vorið 1941 að
íslendingar sömdu formlega við
forseta Bandaríkjanna um full-
komna hervernd á sjó, í lofti
og á landi, þar til því stríði
lyki. Jafnframt var, vel og far-
sællega samið um verzlunar- og
viðskiptamál við Bandaríkin yf-
ir allan styrjaldartímann. Þegar
þessi sáttmáli var gerður voru
fjármál íslendinga jafnt lands-
manna yfirleitt og ríkisins í
mjög erfiðu ástandi, en þegar
sáttmálatímanum var að fullu
lokið og Hitler gersigraður voru
Islendingar í fyrsta sinn í sögu
sinni vel efnum búnir bæði ein-
staklingar og ríkið sjálft.
Skammvinn var þó sú sæla því
að auðlegð þessi hvarf á svip-
stundu og lá við almennu hall-
æri. Þá varð hin gálausa þjóð
fyrir því happi að stjóm Banda
ríkjanna efldi hinar sárkúguðu
þjóðir Vesturlanda með stór-
felldum hallærisgjöfum: Mat-
gjöfum og margháttuðum véla-
kosti og peningum til að koma
þessum merku en gersigruðu
þjóðum aftur til fullrar þátt-
töku í lífi menningarþjóða. fs,- ■
lendingar fengu úr þessum sjóði
700 milljónir á fjómm árum.
Aldrei skyldi þessi fjárhæð end-
urgreidd, heldur mynda grund-
völl að íslenzkum viðreisnar-
banka. ísland var nú orðið lýð-
veldi að verulegu leyti fyrir
margháttaða vernd og aðstoð
Bandaríkjanna eftir 1941. Þá
var gott að horfa yfir farinn
veg. Friðsæla gullöld þriggja
fyrstu frelsisáranna. Stjórnleysi
siðspilltra innlendra höfðingja-
stétta á Sturlungaöldinni, sam-
fara lævísri yfirráðasókn nor-
rænna frænda. Síðan kom alda-
löng féfletting og kúgun
norskra og danskra yfirráða-
manna. Þá kom í landvarnarmál
□ •línnnv Kosningahand.
HANDBOK i>ók Fjoivíss
FJ0LVIS1967
er komin út og verður
send til bóksala í dag
og naestu daga.
Munið að FJÖLVÍS
gefur alltaf út beztu
handbókina.
Bókaútgáfan FJÖLVÍS
Sími 21460.
um þriggja alda þögul en far-
sæl flotavernd Breta yfir At-
lantshafi norðanverðu og að síð-
ustu hin skamrrwirma en þýðing
armikla vemd Roosevelts for-
seta á Hitlerstímanum, þegar
þjóðin var með takmarkaðri
orku að ljúka aldagömlum reikn
ingsskilum við Dani.
Nú hlaut að koma til umræðu
og úrlausnar sú spurning hvort
hið nýja unga lýðveldi gæti stað
ið vamarlaust og haldið frelssi
sínu líkt og á gullaldartíma hins
fyrra lýðveldis, eða hvort ríkið
yrði með nýjum hætti að
tryggja sér vemd sterkari þjóð-
ar gegn Tyrkjaráni nýrrar ald-
ar. Gamalt samtal frá 1941 við
þroskaðasta stjórnmálamenn í-
haldsflokksins, Jón Þorláksson.
Við vorum vorið eftir þingrofið
með samherjum úr báðum
stærstu flokkunum á kosninga-
ferð um vesturland og gistum á
hlýjum vordegi hjá gömlum
þingbróður, Hákoni Kristófers-r
syni í Haga. Viðtökur voru hin-
ar beztu hjá gömlum stórbónda.
Túnið var að grænka og sól yfir
sjó og landi. Gestirnir dreifðust
um bæinn og út'á túnið. Af til-
viljun sátum við Jón Þorláksson
einir í stofu, báðir í góðu skapi
og nutum kyrrðarinnar í þessu
sögufræga góða heimili. Aldrei
þessu vant fórum við að ræða
um heimsmálin. Stríðið var í al-
gleymingi en ísland naut vemd-
ar Breta, sam höfðu hindrað
undirbúna innrás Hitlers. En
annars hafði Churchill naumast
liðsköst til að beita á íslandi, ef
á reyndi. Við Jón höfðum engar
áhyggjur..af vanda liðandi stund
ar, heldur af langri framtíð. Þá
sagði Jón. Við höfum veika
heimavörn. Ekki þyrfti nema
200 vaska og sanntrúaða bolsi-
víka í Reykjavík með skjót-
fengnum vopnabúnaði til að
gera uppreisn gegn landsstjórn-.
inni, skipa byltingarstjórn, sem
hefði þá öðlast gildi þvílíkra
mannhópa. Síðan gæti þessi bylt
Framhald á 6. síðu. ...
TRYGGIÐ YÐUR T0Y0TA
iapanska bifreiiasaían hf.
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 34470
Hver stund með Camel
léttir Iund!“
Kveikið í einni Camel og njðtið ánægjunnar
af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN
Ein mest selda sigarettan í heiminum.
MADE IN WA .
I