Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 29.05.1967, Qupperneq 4

Mánudagsblaðið - 29.05.1967, Qupperneq 4
4 Mánudagsblaðið Mánudagrur 29. maí 1967 AJAX skrífar um: ALÞINGISKOSNINGARNAR Vestfjarðakjördæmi Úrslitín þar geta orðið spenn- andi. Vegna sundurþykkjunnar í Alþýðubandalaginu er hæpið að. það haldi sínu þingsæti. Eftir síðustu kosningum að dæma virðast þó mestar likur á því að Alþýðuflokkurinn vinni það. Deilurnar milli Matthíasar og Þorvalds Garðars valda senni- lega Sjálfstæðisflokknum ein- hverju tapi. Trúlega vinnur Framsókn eitthvað á, en varla svo, að hún geti unnið þing- sæti. Það hefur flogið fyrir, að eitthvað af óánægðum Sjálf- stæðismönnum í kjördæminu muni kjósa Framsóknarlistann, strika þar út tvo efstu menn- ina, sem þeim þykja of róttækir. Sennilega verður þetta þó í smáum stíl. Nú um alllangt skeið hafa margir erfiðleikar steðjað að Vestfjörðum, og talsvert af fólki hefur flutzt þaðan í burt, aðal- lega suður. Heil byggðarlög, eins og Jökulfirðir og Hornstrand- ir hafa farið í eyði þar á meðal Hesteyri, Sæból og Látur. Þó að maður sé ekki haldinn neinni dreifbýlisrómantík er alltaf ó- sköp ömurlegt að sjá byggðir í eyði, að sjá bæjarrústir og tún, þar sem börn hafa leikið sér, fólk lifað og dáið. Eg held að þessi byggðarlög eigi eftir að byggjast að nýju, en litla trú hef ég á því, að það verði á þessari öld. Austurhluti Barðastrandar- sýslu hefur aldrei haft á sér eiginlegan vestfirzkan blæ. Við getum talað um breiðfirzku, sem er að ýmsu leyti ólík vestfirsk- unni. Þar er fólk meira upp á landið en sjóinn og sterk sam- bönd við Dali og jafnvel Snæ- fellsnes. Geiradalur, Reykhólasveit og Gufudalssveit líkjast um margt Saurbænum í Dalasýslu, sveit- ir hestamennsku og alþýðukveð- skapar og stundum brennivíns og ástafars. En núna er orðið heldur dauft í þessum sveitum. Eyjólfur í Múla ríður þar ekki lengur syngjandi um hérað, og líklega eru hinir frægu synir héraðsins, Jón Thoroddsen, Matthías Jochumsson og Gestur Pálsson hálfgleymdir. Það er helzt eitthvert lífsmark með Reykhólum, þar sem smáþorp er risið upp. En samt þykir mér þetta gamla höfðingjasetur orð- ið eitthvað lágkúrulegt, það er eitthvað lágt risið á sundlaug, tilraunastöð og traktor. Og gamla Flatey, sem fyrir einni öld var menningar- og at- hafnamiðstöð er orðin ömurleg- ur útkjálki, nærri komin'i éýði. Öðruvísi mér áður brá, þegar Ólafur Sívertsen, Gísli Kon- ráðsson, Þuríður Kúld, og Matt. hías Jochumsson gengu þar um sali. Með Guðmundi Bergsteins syni og hans fólki hvarf síðasta reisnin yfir Flatey. Múlasveit er að fara í eyði og það fækkar á Barffaströnd og Rauffasandi. í Rauðasandshreppi er einbver mest náttúrufegurð á íslandi, og þar var gest- risnasta fólk, sem ég hef fyrir hitt, og fáar eða engar sveitir á voru landi hafa alið jafn marga þjóðkunna menn. Það fjölgar heldur á Patreks- firffi, en nú orðið ríkir þar deyfð og drungi í loftinu. Það var önnur öldin, þegar Ólafur Jóhannesson réð ríkjum á Vatneyrinni og Pétur Ólafsson á Geirseyrinni. Ég held meira að segja, að Vatneyringar og Geirseyringar séu hérumbilhætt ir að yrkja skammarvísur hvor- ir um aðra, og þá er þeim í sannleika aftur farið. Hér áður fyrr töldu þeir íbúa hinnar eyr- arinnar úrhrak alls mannkyns. Tálknafjörffur er eitt af fáum þorpum Vesturkjálkans, sem er í uppgangi. Tálknfirðingar eru hættir að ganga með minnimátt. arkennd gagnvart Patreksfirði, tala jafnvel um hann með góð- látlegri fyrirlitningu og spá hon- um afturför og hnignun. Og ekki eru þeir í neinum vafa um það, hver arftakinn muni verða. Annað og daufara hljóð er í mannskapnum á Bíldudal, hann var lengi búinn a vera hálf- gerður stöðupollur. Það var öðruvísi umhorfs þar undir lok síðustu- eldar,- þegar. Pétur Thoi' steinsson var þar ókrýndur kon- ungyr,. . rak . mai'gþætian .. at- vinnurekstur og gaf meira að segja út blað á Bíldudal, Arn- firðing, og réð Þorstein Erlings- son skáld sem ritstjóra þess. Byggðir Arnarfjarffar eru að fara í eyði, en að vísu er Hanni- bal farinn að búa í Selárdal. Nú mun vera fátt eftir af galdra- mönnum í Arnarfirði, en haft er fyrir satt, að þeir hafi leik- ið þar listir sínar allt fram á þessa öld. Ég þekkti einu sinni g'amlan Arnfirðing, sem full- yrti, að hann hefði séð hest drepinn með göldrum, hestur- inn lék við hvern sinn fingur eða hóf, en þá las galdramaður- inn eitthvað kröftugt yfir hon- um og hrossið datt steindautt niður. Þingeyri stendur mjög svo í stað, en enn eimir þar eftir af gömlum fínheitum frá Proppe- tímabilimu, jafnvel svo að hún getur minnt á Stykkishólm. Meðal gamalla Þingeyringa af heldra taginu er að finna ein- hverja settlegustu framkomu á íslandi, blátt er selstöðublóðið. Á Flateyri var líka gamalt ar- istókratí hér áður, einkum Ásgeirsættin. En það aristókratí var alþýðlegra og ekki eins danskmótað og Þingeyringar. Fyrir svo sem rúmum áratug var uppgangur og bjartsýni á Flateyri, nú er þar daufara yf- ir. Suffureyri er dugleg, og telur sig ekkert fína, þó að þar í bæ sé hið glæsilega torg, sem ber nafnið Rómartorg. Suður- eyri hefur aldrei átt neina Proppa eða Ásgeira. Bolungavík hefur haldið í horfinu, að ýmsu leyti betur en ísafjörður. Hér erum við í konungsríki Einars Guðfinnssonar, sem nú er far- inn að láta til sín taka langt út fyrir takmörk Hólshrepps og jafnvel Vestfjarða. Þó að Bol- ungarvík sé kannski elzta þorp á íslandi byggir hún ekki á neinum fornum fínheitum, enda voru íbúamir áður fyrr fátækt þurrabúðarfólk, en ekki neinir stórlaxar. Bolungavík hefur allt- af verið alþýðleg, jafnvel höfð- inginn Einar Guðfinnsson hef- ur aldrei haft á sér neinn stór- bokkabrag. Nýríkahugarfarið hefur aldrei bitið hið minnsta á hann. Ég hugsa, að Einar kynni ekkert vel við selskapinn í Laugarásnum í Reykjavík eða Arnarnesi í Garðahreppi. Hnífsdalur nálgast það meir og meir að verða hálfgerð Blesugróf ísafjarðar. Og þó, þetta er ekki alveg sanngjarnt, það er hærra risið á Hnífsdæl- ligum en Blesugrófarfólki. Og þeir eiga sér lókalpatríótisma, sem ég held, að fyrirfinnist ekki í Blesugrófnni. Mér finnst alltaf einhver stíll yfir ísafirffi, jafnvel þó að mik- ið af gamla höfðingjafólkinu hafi flutzt í burtu. Enn í dag ber bærinn það með sér, að hann er gömul menningarmið- stöð. Þessi menningarbragur er ekki blándinn neinum stór- mennskutiktúrum eins og lengi vill brenna við á Akureyri. Þetta er gamall arfur. Jafnvel á blómatíð Ásgersverzlunar á seinni hluta síðustu aldar var þetta svona. Aðrir eins stórhöfð- ingjar og Ásgeirarnir báðir voru, eru sagðir hafa verið al- þýðlegir í viðmóti, þrátt fyrir mikinn hofmannabrag, einkum Ásgeirs yngra. Hann gat að vísu verið harður í horn að taka við pólitíska andstæðinga, svo sem Skúla Thoroddsen og séra Sig- urð Stefánsson í Vigur. Á þeim dögum hófst hið pólitíska of- stæki á ísafirði, sem reið þar húsum, þar til nú á síðustu ár- um, að það er mjög tekið að réna. Það er dauft yfir byggðinni við Djúp nú á dögum, Nú er þar enginn höfðingi eins og séra Sigurður í Vigur. Það er stúdia í melankólíu að koma á Súffa- vík, enginn hvalur, engir Norð- menn engar verkfallsbarsmíðar lengur. Strandasýslu hefur fátt lagzt til upp á síðkastið. Nú eru hlunnindin af grásleppunni úr sögunni í bili að minnsta kosti. Lítið lífsmark er með Árnes- hreppi síðan Regína fór frá Gjögri. og nú reikar enginn Þórbergur Þórðarson um Reykjafjörð og Trékyllisheiði og kemst í andlegt samband við náttúruna. Og lítið er um að vera á Hólmavík og í Drangs- nesi. Alltaf finnst mér meiri Husqvama SLÁTTUVÉLAR Mótorsláttuvélar Sjálfdrifnar 19” breidd Stillanleg hæð 2 ha mótor Afkastamiklar Öruggar V Handsláttuvélar Léttar og þægilegar Stillanlegir og sjálfbrýnandi hnífar sjálfstýrandi hnífar Leikur í kúlulegum. ^gmtuu eaööoii /t.f Suðurlandsbraut 16 • Reykjavik,- Simnelm: >Volver< - Simi 36200 Útibú Laugavegi 33. reisn yfir Hólmavík en Drangs- riesi, hún veit af því að hún er höfuðstaður sýslunnar. Drangs- nesfólkið hefur löngum verið fátækt og spakt ■ og einhver út- nsejabragur á mannlífinu. Það hefur stungið í stúf við sveitina í kring, en á sveitabæjunum í Kaldrananeshreppi hefur löng- um búið myndarfólk. Listi (Uþýðuflokksins Birgir Finnsson hefur nú ein- hverja möguleika á því að verða kjördæmakjörinn. Hann er ekki harður baráttumaður, en prúð- menni og vinsæll. Annar mað- ur listans er Hjörtur Hjálm- arsson skólastjóri á Flateyri, ættaður lengst inan úr Skaga- fjarðardölum, en Norðlendingar virðast sækja mjög til Flateyf- ar. Hér áður fyrr var Snorri Sigfússon um langan aldur skólastjóri þar, og gekk ber- serksgang gegn brennivíns- drykkju í Önundarfirði. Ekki er Hjörtur mótaður af aldamótaide- alisma á sama hátt og Snorri. Þriðji maður listans, Ágúst Pét- ursson á Patreksfirði, bauð sig fram á óháðum lista við síðustu sveitarstjómarkosningar og átti talsvert fylgi, en er nú aftur kominn til föðurhúsanna. Listi Pramsóknarflokksins Þar urðu mikil átök um framboðið. Sumir vildu bola Sigurvin Einarssyni burt af list- anum. En gamli maðurinn sá við öllum þeim refjum og gekk með sigur af hólmi, tryggði sér efsta sæti listans. Sigurvin er talinn yzt í vinstra armi Fram- sóknar og era ekki allir flokks- menn jafn ánægðir með það. Einkum S.Í.S.-menn mundu fremur vilja sjá hann hverfa af þingi. En Sigurvin er frem- ur vinsæll þarna vestra og frændmargur, einkum í Rauða- sandshreppi. Hefur sú ætt lengi haft forystu þar um slóðir og víðar. Bróðir Sigurvins var Kristján heitinn Einarsson for- stjóri, en á honum var stórum meiri hofmannsbragur en á Sig- urvin. Bjami Guffbjörnsson bankastjóri á ísafirði, annar maður listans, er ættaður úr Dölum, frændi Bjarna í Ás- garði. Bjarni bankastjóri er ljúfmenni og manna kurteisast- ur. Hermann Jónasson hverfur nú af þingi, en í þriðja sæti list ans er sonur hans Steingrímur Hermannsson. Hann er talinn í hægra armi Framsóknar og er ekkert sérlega vel séður af vinstri mönnum flokksins. Margt er vel um Steingrím, þetta er harðduglegur framkvæmdamað- ur og ágætlega gefinn. Hann er ekki líklegur til þess að láta flokksstjómina handjáma sig, heldur til að.láta á málin frá hlutlægu eða teknókratísku sjónarmiði. Og fjármálavit er Steingrími í blóð borið. Halldór vor á Kirkjubóli er nú settur í vonlaust sæti, en hefur sætt sig við það með tiltölulega „good grace“. Það má Halldór Framhald á 5. síðu. Krossgatan LÁRÉTT: 1 Heiffursmerki 8 Hús 10 Fínt hár 12 Ríki 13 Skammstöfun 14 Vökvar 16 Hávaffi 18 Lærdómur 19 Amboff 20 Skraut 22 Fæffan 23 Ósamstæffir 24 Hestur 26 sain«tæfflr 27 Ljósgjafinn 29 Ræflana LÓÐRÉTT: 2 Samstæffir 3 heiffarlegó verzlun 4 Erl. flugfélag 5 Hjartasjúkdómur 6 Forfaffir 7 Stórgrýti 9 Týndár 11 Stórbýli 13 Líffæri 15 Leiffl 17 Veiffarfæri 21 Haf 22 Sönglag 25 Villt 27 Kom auga & 28 Eins

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.