Mánudagsblaðið - 17.07.1967, Síða 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagnr 17. júlí 1967
Framkvæmdir hjá Ál-
féleginu í Straumsvík
Fyrir skömmu hélt íslenzka Álfélagið fund með
blaðamönnum og skýrði frá starfsemi sinni all-ýt-
arlega, auk þess, sem þeim voru sýndar þær verk-
legar framkvæmdir sem unnið er að. Tilgangur
fundarins var að kynna framkvæmdir almennt svo
og ryfja upp og fræða blöðin um alla tilhögun
verksins og framtíðaráætlanir þar í Straumsvík.
Vegna plássleysis varð grein þessi að bíða, en þar
sem hér er um svo veigamikið mál að ræða þykir
sjálfsagt að birta sem ýtarlegasta frásögn af verk
inu og er í öllu stuðst við vélritaða skýringu frá
stjórn Álfélagsins. Hér á eftir fer fyrst ávarp stjórn-
arformanns fsal á blaðamannafundinum, örlítið
stytt, en næst greinargerð um áliðjuverið í Straums-
vík.
Góðir gestir.
Ég vil fyrir hönd íslenzka
Álfélagsins bjóða ykknr vel-
komna.
Tilgangurinn með þessum
fundi er að kynna fyrir ykk-
ur álframleiðslu, eins og hún
verður í Straumsvík, og hvar
á vegi framkvæmdir við
byggingu verksmiðjunnar eru
staddar.
Álbræðslan í Straumsvík
er lokastigið í framleiðslu
hrá-áls, áður hefir boxíti ver-
ið breytt í alumina, sem í
Straumsvík er breytt í ál.
Þar til tími þykir til kom-
inn að hefja hér á landi úr-
vinnslu úr áli, verður hrá-
álið flutt til ýmissa markaðs-
landa í Evrópd.
Ég vil i því sambandi láta
þá skoðun mína i ljós, að ég
tel, að við íslendingar eig-
um, við sömu aðstæður, að
geta staðið jafnfætis nágr.-
þjóðum okkar í framleiðslu
úr áli, því að þótt vegalengd-
ir á markað séu héðan lengri,
þá er flutningur með skipum
ódýrari en með öðrum farar-
tækjum.
Eins og ‘ þið hafið séð nú
í morgun, þá eru fram-
kvæmdir við verksmiðjuna
stutt á veg komnar. Jöfnun
landsins er þó langt komin,
og verður henni lokið i
ágústmánuði. Verið er að
reisa mötuneyti, skrifstofu-
byggingu og svefnskála, en
þeir síðastnefndu verða fjar-
lægðir að framkvæmdum
loknum. í næsta mánuði
verður hafin vinna við undir-
stöður verksmiðjubygging-
anna og í október mánuði
muri vinna við stálgrindur
bygginganna hafin. Til að
gefa ykkur hugmynd um
stærð bygginganna vil ég
nefna, að steypumagn í und-
irstöðurnar nemur um 50
þúsund rúmmetrum eða svip-
að því steypumagni, sem fer
í allar byggingar í Reykjavík
á einu ári. Lengsta bygging-
in er 640 metrar að lengd eða
liðugur hálfur kílómetri.
Heildarkostnaður við ál-
verksmiðjuna verður um tvö
þúsund og fimm hundruð
miljónir króna, miðað við 60
þúsund tonna afköst.
Starfsmenn við álbræðsluna
verða um 500 talsins þegar
hún er komin í full afköst,
og verða starfsmennirnir
flestir íslendingar. Þeir sem
nú hafa verið ráðnir og ráðn-
ir verða á næstunni fara ut-
an til þjálfunar í verksmiðj-
um sem þessari i lengri eða
skemmri tíma, eftir því sem
starf þeirra: krefst.'
Tæknilegur framkv.stjóri,
Ragnar Halldórsson, verkfr.,
mun hér á eftir skýra ykk-
ur frá hvernig ál verður til,
ennfremur verða sýndar hér
tvær kvikmyndir, sem sýna
framleiðslu á áli.
Það er áætlað að virkjan-
legt vatnsafl á íslandi sé
milli 3 og 4 milljón kílóvatt,
þar af eru í dag einungis um
4% virkjuð. Þar sem álþörf-
in í heiminum vex um yfir
500.000 tonn árlega, hefur
Alusuisse hug á að færa út
kvíarnar til þess að geta full-
nægt hluta af þessari auknu
eftirspurn. Þessar tvær stað-
reyndir urðu til þess, að Al-
usuisse fyrir nokkrúm árum
sneri sér til islenzku rikis-
stjórnarinnar til að leita fyr-
ir sér um möguleika á því
að reisa áliðjuver á íslandi
á grundvelli íslenzks fossa-
afls. Viðtökur íslenzku rikis-
stjórnarinnar voru jákvæðar,
þar sem það hefur lengi ver-
ið á dagskrá, að nauðsynlegt
sé að renna fleiri , stoðum
undir íslenzkt atvinnulíf.
Viðræður Alusuisse og rík-
isstjórnarinnar leiddu til þess
að gerður var samningur
milli þessara aðila, sem var
staðfestur af Alþingi sem lög
30. apríl 1966. Svo sem kunn-
ugt er, inniheldur samning-
ur þessi meðal annars eftir-
talin ákvæði:
— Stofna skal félag að ís-
lenzkum lögum, íslenzka Ál-
félagið h.f. (ÍSAL), sem skal
byggja og reka áliðjuver við
Straumsvík.
— Landsvirkjun skal reisa
raforkuver við Þjórsá, ásamt
varaaflstöð, sem á að sjá ál-
vinnslunni fyrir raforku.
— Hafnarfjarðarbær skal
gera höfn i Straumsvík fyrir
áliðjuverið.
— Alusuisse skal leggja til
tæknikunnáttu og hefur sölu-
umboð fyrir ÍSAL.
Öll þessi ákvæði hafa þeg-
ar að meira eða minna leyti
komið til framkvæmda, sem
hér segir:
— íslenzka Álfélagið var
stofnað í Reykjavík síðastlið-
ið sumar. Formaður félags-
stjórnar er Halldór H. Jóns-
son. Hafizt var handa með
undirbúningsframkvæmdir í
Straumsvík snemma á næst-
. liðnu vori. Samningar hafa
verið gerðir við framleiðend-
ur um afhendingu helztu
véla og tækjabúnaðar og við
verktaka um framkvæmd
allra stærstu byggingaþátt-
anna. T.d. hefur verið sam-
ið við svissneskt fyrirtæki
um afhendingu aðalrafbúnað-
ar, við norskt fyrirtæki ' Um
afhendingu lyftibúnaðar, við
þýzkt fyrirtæki um jöfnun á
byggingarlóð, við hafnfirzkt
fyrirtæki um gerð grunna,
kanadískt fyrirtækí um skrif-
stofubyggingu, íbúðarhúsnæði
og mötuneyti, sænskt fyrir-
tæki um undirstöður og for-
spennta steypu, svissneskt
fyrirtæki um stálgrindarbygg-
ingu, reykvískt fyrirtæki um
vegg- og þakklæðningu o.m.
fl. Samið hefur verið við
Eimskipafélag íslands um
alla flutninga á efni til lands-
ins, og við Brunagótafélag ís-
lands um tryggingar.
— Framkvæmdir á vegum
Landsvirkjunar við Búrfell
hafa nú staðið í um það bil
ár.
Gerður hefur verið samn-
ingur við þýzkt fyrirtæki um
hafnargerð í Straumsvík.
Framkvæmdir hafa þegar
hafizt.
— Alusuisse hefur með
höndum hönnun á mann-
virkjum vegna áliðjuversins
og annast um samningsgerð-
ir vegna framkivæmda fyrir
hönd ÍSAL. Einnig hafa verið
ráðnir ýmsir starfsmenn, sem
vinna eiga við álverið að
byggingaframkvæmdum lokn-
um. Eru þessir menn nú til
þjálfunar hjá ýmsum dóttur-
fyrirt. Alusuisse til að vera
undir það búnir að annast
rekstur álvinnslunnar. Nýlega
hefur verið auglýst eftir fjöl-
mörgum vaktstjórum og verk-
stjórum, ásamt nokkrum öðr-
um starfsmönnum, sem verða
ráðnir alveg á næstunni.
Þessir menn verða einnig
við starfsþjálfun erlendis.
Mikið veltur á, að vel takist
til um ráðningu þessara
manna, því að undir þeim
*
verður að miklu leyti komið,
hversu til tekst með rekstur
þessarar stóriðju á íslandi.
Framkvæmdaáætlunin er
þannig, að gert er ráð fyrir
að helzfcu, byggingum verði
lokið á næsta sumri og verð-
ur þá hafizt handa með nið-
ursetningu rafbúnaðar, véla,
bræðsluofna og rafgreining-
ar kerjanna. Álsteypan á að
verða fullgerð í ársbyrjun
1969 til að hægt verði að æfa
starfsliðið. Að öðru leyti á
framkvæmdum að vera lokið
um leið um leið og Búrfells-
virkjunin tekur til starfa, eða
l.apríl 1969.
Fullgert á áliðjuverið að
afkasta rúmlega 60.000 tonn-
um árlega og verða starfs-
menn þá um 450 að tölu, en
afkastageta fyrsta áfanga
verður rúm 30.000 tonn.
Stækkun í full afköst fer
fram jafnskjótt og Búrfells-
virkjun hefur verið byggð í
fulla stærð, 210^000 kílóvött.
Er hugsanlegt að svo geti
orðið einu ári eftir að fyrsti
áfanginn er tekinn í notkun,
en að öðrum kosti eigi síðar
en árið 1975. Með 60.000
tonna afköstum mun áliðju-
verið nota 120.000 kílóvött.
Höfnin í Straumsvík mun
hafa 220 m langan hafnar-
garð, sem verður i senn
brimbrjótur og viðlegupláss,
með hafnarkrönum og af-
hleðslutækjum fyrir áloxíd.
Er gert ráð fyrir, að flutn-
ingaskip, allt að 30.000 smá-
lestir geti athafnað sig þar,
en síðar er möguleiki á að
stækka höfnina fyrir skip allt
að 60.000 smálestum. Áloxídið
verður í fyrstu innflutt frá
V-Afríku eða Karabíahafi
en síðar er fyrirhugað að það
verði flutt til Ástralíu. Ál-
oxídið verður flutt frá skips-
hlið á færiböndum í sérstak-
an geymi eða turn, sem tekur
30.000 tonn. Önnur hráefni,
svo sem kolskaut og kríólít
verða innflutt með skipum af
venjulegri stærð. Þau munu
og flytja hráálið i plötum og
hleifum frá áliðjunni á mark-
aði í Englandi og á megin-
landi Evrópu og/eða Ame-
ríku.
Þegar áliðjuverið í Straums-
vík verður tekið í notkun,
mun það verða eitthvert full-
komnasta iðjuver sinnar teg-
undar í heiminum, enda mun
ekkert til sparað að svo megi
verða. Mun meðal annars
verða komið fyrir sjálfvirk-
um tækjum við álvinnsluna,
sem hvergi eru í notkun
annars staðar ennþá. Það er
því von allra, sem að þess-
ari framkvæmd standa, -að
starfræksla þess geti farið
sem bezt úr hendi, en til
þess þarf, auk góðra starfs-
krafta, jákvæðan skilning yf-
irvalda og íslendinga yfirleitt
á mikilvægi þessarar nýju
atvinnugreinar fyrir íslenzk-
an þjóðarbúskap í framtíð-
inni.'
Að lokum ætla ég að leyfa
mér að vænta góðs samstarfs
við ykkur blaðamenn og
fréttamenn hér eftir sem
hingað til.
'BflAlEftrAM
Wff
IARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
SPARIfl
OG FVRIRHOFN
I Þeir sem þurfa að koma auglýs- j
I ingum eða öðru efni í Mánudags-1
| blaðið _ þurfa að koma því til |
| ritstj. í síðasta lagi á miðviku- \
j dag næstan á undan útkomudegi |
k ! k
Krossgátan
LÁRÉXT; LÓÐBÉTT:
1 Skip 1 Knattleik
5 Hrós 2 Heimsálfa
8 Ármynni. 3 Nes
9 Verkfæri 4 Klukka
10 Tau 5 Sýslur
11 Bátur 6 Jökull
12 Skott 7 í rúmi
14 Gola 9 Iðnaðarmenn
15 Sjóntækið 13 Óþrif
18 Tónn 16 Aðgæzla
20 Und 17 Öldur
21 Upphafsstafir 19 Snemma
22 Heldur sér vel 21 Brauð
24 Týnt 23 Hæð
26 Hiti 25 Skógarguð
28. Taka saman 27 Guð
29 Yfirhöfnin
30 Látinn
4
1
4