Mánudagsblaðið - 23.10.1967, Qupperneq 1
«
f
Umbúðahneyksli Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna
30 milljónir i nýja verksmiÓju - Onnur fullkomin
hefur ekki nœg verkefni - 50 milljónir i sfyrk
Þegar nú er leitað til almennings að herða ól-
ina og ríkisstjómin lýsir yfir, að nokkur harð-
indi, miðað við fyrri ár, fari í hönd, þá er ekki úr
vegi að athuga hvar bera skuli niður hnífinn, Eins
og hér hefur verið rætt og reyndar víðar, þá greip
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrir nokkm til
þess einmuna vafasama úrræðis að setja upp eig-
in umbúðaverksmiðju, þrátt fyrir þá staðreynd,
að fyrir hendi er verksmiðja fyrsta flokks, sem
ekki aðeins annar öllum þörfum íslendinga í þeim
efnum, heldur og getur tekið að sér gnótt ann-
arra verkefna ef til býðst. Þrátt fyrir almenn mót-
mæli og mótmæli þingmanna, þá hélt S.H. fast við
ákvörðun sína og keypti vélar og önnur tæki til
þessa nýja æfintýris en kostnaðurinú mun nú
vera kominn ýfir 30 milljónir króna.
Eins og alþjóð er kunnugt þá
er S.H. styrkþegi þjóðarinnar,
sem hefur undanfarin ár þegið
að gjöf eða láni, tugi milljóna
til að halda sér gangandi. Hefur
þjóðin afhent Sölumiðstöðinni
styrk með góðu geði, en hún
bjóst ekki við, að svo æfintýra-
lega væri við brugðið. Þeir, sem
fyrst töldu þetta mál tímabært,
jþ.e. að reisa umbúðaverksmiðju,
eru löngu horfnir frá þeirri hug-
mynd, enda sjá þeir að allt annað
er S.H. nauðsynlegra en að
leggja lengra út á vonlausa æfin.
týrabraut.
munu eflaust koma í veg fyrir
það, en að ana í svona vitleysu er
neðar öllu. Núverandi stjóm S.H.
með formann fjárveitinganefnd-
ar Alþingis í fararbroddi hefði
hæglega getag hætt við umbúða-
áætlun sína og nýtt fjármagn
sitt á hentugri hátt, en þar virð-
ist ekki hafa verið nokkur vilji
fyrir hendi. Þjóðin er ekki hrifin
af því, eins og tímar eru nú, að
milljónum í dýrmætum gjaldeyri
skuli kastað á glæ vegna þess
eins að nokkrir menn telja í fljót
fæmi, að þarna séu fjárhagsleg
Framhald á 5. síðu.
Hvað Jvelur
sænska lýðræ ðið?
Blóðbaðið í Nigeríu óviðkomandi Svíum — Þeir
græða ekkert á að mótmæla í þeim efnum —
Lifi hræsnin
Hvað dvelur Svíann nú? Annað eins blóðbað og nú á sér
stað í Nigeríu mun nálega óheyrt í öllum heiminum síð-
ustu 2 árin. Stjómarherinn myrðir og svívirðir Ibo-kyn-
þáttinn svo hroðalega að jafnvel blökkumennimir í Afríku
eru furðu — og ótta — siegnir. Morðin eru skipulögð, ó-
nauðsynleg en byggjast aðeins á hatri, og koma niður á
bændum, sem skildir vom eftir, þegar „uppreisnarherinn“
í Riafra flýði. Þarna er stórkostlegt blóðbað á borð við það
versta í Congo á sínum tíma þegar hinir lánlausu Belgiu-
menn hlupu frá nýlendu sinni í óreiðu.
Og hvað dvelur sænsku frelsishetjumar" nú? Sannleikur-
inn er sá, að, eins og/vant er, þá skiptir það Svia engu
máli hver gerðin er — nema þeir geti haft eitthvað gott upp
úr því sjálfir. Meðan móðins er að ráðast á Grikki — einn
af verri bleittum í bandarískri pólitískri sögu — þá elta
Svíarnir, því þeir halda að þeir fái að sleikja beinið ef
þeir dilla rófunni, en þar sem Bandaríkjamenn vilja ekki
— af skiljanlegum ástæðum — blanda sér í innanríkismál
Afríkuríkjanna, þá halda Svíar að sér höndum. Það er
löngu kominn tími til að losa okkur úr tengslum við þessa
hræsnisþjóð, slíta öllu sambandí og hætta að láta þá teyma
okkur út í úlfúð við aðalmarkaðslönd okkar.
Nú er komið í ljós, að ekki að-
eins er framleiðsla umbúðavérk-
smiðjunnar mun dýrari heldur
en þeirrar verksmiðju — Kassa-
gerðar Reykjavíkur, — sem fyrir
er, heldur og hitt, að útilokað er
að þessar verksmiðjur geti keppt,
því slíkir eru yfirburðir K.R., og
ennfremur útilokað að æfintýri
S.H. verði nokkurntíma sjálf-
bjarga. Má því heita. að hér sé
Er fegurðarsamkeppnin
hér orðin að hneyksli?
/
Óundirbúnar stúlkur sendar út — Ekkert eft-
irlit — Hnignun síðari árin — Fulltrúar ísl.
— Hver gefur umboð — engin viðurkenning
Um nokkurra ára skeið var hér haldin fegurðarkeppni, sem smátt
og smátt varð þjóðinni til sóma. Einstaka gamaldags þulir mót-
mæltu þessu, kölluðu þetta einskonar gripasýningar í líkingu við
þær sem þeir kynntust meðan þeir snerust kringum kýrhala sína í
heimasveitinni. «
sóað milljónatugum beint út í
loftið, án nokkurrar vonar um
gróða eða jafnvel spamað.
íslendingar eru nú ekki á þeim
vegi staddir, að þeir hafi nokkur
éfni á að flytja inn milljónafyr-
irtæki í vonlausa stifni og sam-
keppni. Enn þarf þjóðin aðeins
eina umbúðaverksmiðju og getur
komizt af með hana um ófyrirsjá
anlega framtíð. Miklu lakara er
þó, að fyrirtæki eins og S.H.,
sem þiggur ölmusu af ríkissjóði,
skuli leyfa sér að leggja upp í
þvílíkt æfintýri og þessa um-
búðavcrksmiðju. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna er mikið fyrir
tæki þótt rekstur þess hafi ekki
verið eins æskilegur og bezt verð
úr á kosið. Ýmsir erfiðleikar
Einar Jónsson
Einar Jónsson hóf þó fegurð-
arkeppnir upp í það veldi, að
íslenzk kvenfegurð hlaut mik-
ilsverða viðurkenningu og aug-
lýstu hinar ungu stúlkur þjóð-
ina meira en aðrar herferðiríþá
átt þjóðinni til gagns. Sumar
hafa lagt fyrir sig fyrirsætu-
vinnu og komizt all-langt á þeirri
braut, aðrar komizt til frama í
ýmsum störfum sem að fegurð
og snyrtingu lýtur.
Nýir aðilar
8-1. þriðjudag upplýsir Tím-
inn, að enn séum við að „keppa“
en nú sé ekki stuðzt við neitt
sérstakt né heldur séu hinar
ungu stúlkur undirbúnar á nokk-
urn hátt til að koma fram í
keppnum af þessu tagi erlendis.
Ekki er heldur vitað hvaðan
þessum aðilum kemur umboð til
að senda einhverjar stúlkur út
á nafn þjóðarinnar, án þess að
þær hafi nokkurt aðhald eins og
Einar og aðrir aðilar t.d. í Banda-
rikjunum veittu meðan sómi var
að slíkri þátttöku.
Aðrar umgengnisreglur
íslenzka súlkan, ekki síður en
karlmaðurinn, er óframfærin og
uppburðarlitil í eðli sínu. Is-
lendingar eru t.d. £ flestum til-
fellum ékki enn komnir á það
stig almennra mannasiða að
kynna sig á mannamótum eða
viðhafa aðrar þær sjálfsögðu
kurteisisregl'ur, sem flestar þjóð-
ir hafa tileinkað sér- Ekki er
Framhald á 5. síðu.
>
'Kynna fískalurðir?
Það yrði ekki amalegt að geta sent laglega ljóshærða stúlku í
kynnisferð til Spánar, Portúgals, Ítalíu eðo Grikklands til að auka
sölu á þessari útflutningsvöru okkar — í sama stíl og Danir aug-
lýsa eplin sín. — Slík auklýsing myndi vekja geysiathygli, ekki
síst ljóshærðu stúlkurnar sem þeir suðrænu dá svo mjög. Því ekki
fara nýjar leiðir í viðskiptum okkar, fylgjast með breyttum tím-
um? Sjá grein um þetta á 6. síðu.
Ný frystihús - Engin verkefni
- Ekkert hráefni - Hvað langt
á að ganga?
Neyðaróp frystihúsanna út um landið er algjört.
ÖU kvarta þau urn hráefnisskort og öll virðast þau
ekki hafa nein verkefni að ráði. Þrátt fyrir þetta.
ástand er búið að byggja tvö ný frystihús í Vest-
mannaeyjum, sem ekkert hafa að gera, og víða
annars staðar eru ný slík hús 'í byggingu. Suður
í Keflavík er m.a. eitt frystihús, sem nú er notað
sem kjötgeymsla og ýmislegt annað „gagn“ er
fundið fyrír þessar dýru byggingar.
Mönnum verður aS spyrja: ar Kveldúlfur teymdi borgar-
Hvað er um að vera? Hve lengi stjómina í verksmiðjubyggingu
á svona ráðleysi að ganga hjá út £ Örfirisey vegna þess, að síld
fyrirtækjum, sem þiggja fé úr kom EINU SINNI inn á sundin
almenningsvasa? Eins og tímar hér. Það er eins gott að hafa
eru og eins og útlitið virðist einhverja gát á þessum málum
vera, þá er margt annað þarfara nú, því þjóðin í heild og ríkis-
en að vasast í nýjum byggingum. stjórnin sérstaklegji, verður nú
Þess er krafist að þjóðin leggi að að halda á því fé, sem næst inn.
sér og það er sjálfsagt, en gera með sæmilegum hætti. Gildir
verður þó þá kröfu, að á þessum þetta ekki sízt um frystihúsin,
mánuðum sé ekki eytt i neitt sem virðast ekki skilja breytta
Örfiriseyjaræfintýri eins og þeg- tíma.
í BLAÐINU ( DAG
* Útilegumenn á íslandi fyrir 60 árum. — Stór-
merkt bréf Jóns söðlasmiðs. — Bls. 4.
Ragnar í Smára og heimsmenningin. —
KAKALI — bls. 3.
* Tveir þjóðarleiðtogar. — Jónas Jónsson frá
Hriflu, 2. síða.
* Bátar til sölu eða leigu. — Sjómenn skrifa,
á 5. síðu.
^ Stríðið við Hagkaup — leiðari.
* Úr einu í annað — Sjónvarp — Saltfiskux
og sölutækni — og margt fleira.