Mánudagsblaðið - 23.10.1967, Síða 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagnr 23 oktobcr I961?
BRÉF JÓNS JÓNSSONAR
frá Hlíðarendakoti til séra Jóns Jónssonar
prófasts á Skútustöðum.
Bréfritarinn, Jén Jónsson, var fceddur í Eyvmdarholti undir Eyja-
fjöttum áríð 1828. Hann lcerði ungur söðlasmíði, var oftast kallaður
Jón Söðli og vanalega kenndur við Httðarendakot í Fljótshttð. Jón var
maður fríður sýnum og hinn gervilegasti, en gcefumaður var hann eng-
inn. — Þegar enski ríthöfundurinn William Morris ferðaðist hér um
land, var Jón fylgdarmaðm hans; þótti Morris mikið til um hann og
hélt trýggð við hann til csviloka. — Kunnastur er Jón frá Hlíðar-
endakoti fyrir trú sína á tilveru útilegumanna í óbyggðum; var sú
trú hans svo skýr og ákveðin, að hann leitaði styrks frá alþingi til þess
að fara herferð á hendm þeim upp að Stórasjó.
Síðustu ár ævi sinnar var Jón mjög hrumur. — Hann mun hafa
dáið í átthögum sínum skömmu eftir það er hann lét rita bréf þetta.
Reykjavík, 10. apríl, 1905-
Vclæruverðugi hcrra prestuir!
Ég hef fengið bréf frá hr.
Nikulási Þórðarsyni á Kirkjulæk
í Fljótshlíð; hann er kunnugur
ykkur Mývetningum, hefur verið
einn vetur á Grímsstöðum á
FjöIIum. Hann segist hafa feng-
ið bréf frá merkum manni í
Eyjafirði og segist vera full-
trúa um, að útilegumenn séu
lagztir á fé ykkar Mývetninga,
og ráðleggur hann mér að leið-
beina ykkur. Það er velkomið, að
ég geri það, því það er engum
manni kunnara en mér.
Ég hef leiðbeiningu frá pers-
ónu, sem hefur sagnaranda; hún
hefur oft komið á stöðvar þeirra,
og það á gandreið. Það er þá
fyrst að segja ykkur, að þið
þurfið ekki að Icita i Ódáða-
hrauni, því að hún tófa bítur
ekki nærri greninu. Þeir, sem
stela af fé ykkar, eru úr Stóra-
sjó og Köldukvíslarbotnum, svo
er Kaldakvísl undir Hágöngum,
og þar skammt frá er byggðin,
sem kölluð er Köldukvislbrbotn-
ar. Þeir eru í félagi úr Stóra-
sjó að stela fé ykkar. Þeir fara
í miðjum ágústmánuði, velja allt
það bezta úr fé ykkar og koma
aftur um höfuðdag. Þeir eru al-
veg óhræddir að stela fé ykkar,
því að Ódáðahrauni er allt kcnnt.
Það er ekki gaman að eiga við
þessa útilegumerm, því að þeir
eru rammgöldróttir. Sá, sem
ferðinni ræður, heitir Kolur, og
við hér í Reykjavík köllum hann
Kol stóra; hann er þrjár álnir
og tíu þumlungar á lengd og
vegur 28 fjórðunga; hann er
rammgöldróttur, hcfur sagn-
aranda og huliðshjálm og
sést hér aldrei á götunum, en
sést oft i verzlunum. Hann er í
pcysu, sem ekki vinnur á kúla
og ckki neitt. Hann er svo rik-
ur, að hann á belg af vetur-
gömlu tryppi, fullan af gullpen-
ingum; hann hefur fjögra manna
afl, en þó getur hann ekki hreyft
belginn nema tveir menn hjálpi
honum; og þetta er allt gróði frá
forfcðrum hans. Svona eru allir
útilegumenn sterkríkir.
Ekki þýðir að setja vörð, því
að þeir setja myrkur yfir sig og
féð. Eina ráðið fyrir ykkur er
að fá tvo galdramenn ríöandi á
gandreið og fá menn hér úr
Ueykjavík með afturhlaðninga.
Það cr úr Reykjavík fimm tíma
ferð á gandrcið upp að Stóra-
sjó og Köldukvíslarbotnum. —
Stóri-Kolur er búinn að búa um
sig í holu í jörðinni. Þorgrímur
Jónsson, glímumaðurinn mikli,
fór eftir bciðni Kols stóra að
ganga frá hreysinu; hann lét
grafa þrjár mannhæðir, og svo
hcfur hann vatn undiir og hlemm
ofan yfir stóran, og allt múrað
að; svo þarf ekki annað en kippa
frá einni loku og þá fara allir
á kaf, scm á hlemminn stíga.
Þorgrímur var að því hcila viku
og fékk 800 krónur fyrir. Hann
veit vel um peningana, og hvað
þeir cru miklir. Líklega væri
bezt að fara sncmma í júnímán-
uði, en það er verst að ná i
menn að vestan með gandreið.
Það er ekki furða, þó að ykk-
ur hafi vantað fé í margar ald-
ir, því að þetta er voðalega
grimmt. Kolur stóri er minn
skæðasti óvinur; hann veit, að
ég er að hvetja til Icitarinnar,
og hann hefur nú sent mér nú
í mörg ár scndingu, hverja á fæt-
ur annarri, en þcssi persóna að
vestan (Galdra-Þrúða), tckur á
móti öllum sendingum fyrir mig,
svo að þær hafa ekki getaðgcrt
mér nokkurt mein.
r
Okeypis athugun
bifreiðalíósa
fyrir félagsmenn F.Í.B.
Til þess að auka öryggi vetraraksturs mun
Ljósastillingastöð F.Í.B. að Suðurlands-
braut 10, Reykjavík, framkvæma endur-
gjaldslaust athugun á bifreiðaljósum hjá
félagsmönnum dagana 18.—31. október frá
kl. 8—19 alla virka daga, nema laugardaga.
Þegar nauðsynlegt reynist að stilla ljós
eða lagfæra þau, verður sú þjónusta veitt
gegn venjulegu gjaldi.
Félagsmenn eru beðnir að framvísa félags-
skírteini við skoðunina.
' FÉLAG ÍSLENZKRA
BIFREIÐAEIGENDA.
HAT FIAT
■ . ir . y
Skoðið FIAT — 124.
Nýjasta FIAT-bifreiðin á markaðnum í sýn-
ingarglugga vorum að Laugavegi 178.
Davíð Sigurðsson hf.
Þetta má ekki svo tU ganga
lengur; þctta er hraustasta kyn-
slóðin í landinu, og væri gott
að hún blandaðist saman við
okkur. Það er engin Ieið að yf-
irvinna þá, ncma fá galdramenn
að vestan úr Arnarfirði, ríðandi
á gandreið, víst tvo á gandreið.
Kolur stó<ri hefur sagnaranda,
gandreið, huliðshjálm og peys-
una. Hann hcfur þrjá varghesta,
brúnan, gráan og rauðan, sem
þjóta upp Bakarabrekkuna með
strákana. Hann verzlar á Eyrar-
bakka og í Reykjavík. Gestur á
Hæli er hans verzlunarmaður.
Þeir sækja við frá Stórasjó í
Skriðufellsskóg og rciða hann
allan á gandreið; það má leggja
á gandrcið tíu hesta- — En öll
þessi mikla fjárvöntxm úr Árn-
nessýslu cr eftir útilegumenn úr
Arnarfellsjökli. — Kolur stóri á
um tuttugu börn, tvö börn á ári
hverju, og er ekki nema hálf-
fimmtugur.
Fyrir jólin var haldin veizla
hjá huldupresti, og þar kenndi
margra grasa. Þar voru álfar,
mennskir menn, byggðarmcnn,
tröll og dvergar. Það, sem tók
þó yfir alit, var bcrgrisi úr Blá-
felli, Bergþór að nafni. Hann var
átján álnlr á hæð og digur tíu
og vær álnir. Hann er það gam-
all að hann sá Sigurð Fáfnis-
bana og Brynhildi, og hann sagði
að Sigurður væri sá fallegasti
maður, scm hann hafði séð og
hún sú fallegasta. Þar var og
Hrefna kona hans, sem á heima
hinumcgin við Hvítárvatn. Þau
voru alltaf að kýtast eins og
hjón, sem kcmur illa saman.
Ég bið þig að Iesa bréf þctta í
heyranda hljóöi, svo að þið gct-
ið tckið þctta mál til íhugunar,
því að það er ykkar mesta vel-
ferðannál, Mývetninga. Ég fann
aldrei Pétur á Gautlöndum í
Reykjavík, en Iáttu ekki hjá líða,
að hann fái að sjá það, því að
hann er tregur á að trúa, að
þeir væru til. Hver veit, ncma
mér gangi betur í sumair við f jár-
lagancfndina heldur en seinast.
Tryggvi Gunnarsson vildi ryðja 5
allar áttir nema til mín, því að
hann kann ekki að halda á lands-
ins fé. — Svo fer ég að slá botn-
inn í þctta bréf, prestur minn,
og bið ykkur að taka þetta mál
til íhugunar.
P-S. — Bergrisinn segist hafa
þá réttu trú á Þór og Óðin, bölv-
aði Ólafi Tryggvasyni, Ólafi
helga og Þorgeiri Ljósvetninga-
goða, en hrósaði Hákoni Hlaða-
jarli. Og skessugarmarnir eru svo
stórar, að þær eru fimm og hálf
alin á hæð, en tröllkarlarnir sjö
álnir; dvcrgamir ein og hálf al-
in og verða 150 ára gamlir. Pils-
Sölubörn \
sem vilja \
| selja Mánu- \
| dagsblaðið i \
I úthverfum \
\ geta fengið \
I það sent \
\ heim \
in, sem skessugreyin eru í, eru
f jórtán álnir á vídd — og þetta
er sitt hvort kyn. Ég hef séð
pilsin, og þær sendu gripi þeim,
sem saumuðu. Þær eru alltaf
í skinnbjálfum, garmarnir aima.
Stóri Kolur gaf þeim pilsin.
Kolur stóri drekkur oft fjóra
potta af brennivíni á dag og fer
um fjöll og fimindi ríðandi á
gandreið og hefur kvénfólk, hvar
sem hann getur, eins og djöftd-
óður andskoti.
Þinn einlægur
Jón Jónsson söðlasmiður
frá Hlíðarendakoti.
Krossgátan
LÁRÉTT: LÓÐRÉTT:
1 Nýtt land 2 Forsetnihg
8 Grannir 3 Tóbak
10 Ósamstaeðir 4 Ull
12 Skelfing 5 Löstur
13 íþróttafélag 6 Sagnorff
14 Sleipir 7 Atrenna
16 Tilbáðu 9 Vatnsból
18 Þreyta 11 Hringa
19 Taug 13 Ástundunarsamur
20 Lengdarmál 15 Mjúk
22 Sinjun 17 Kvenmannsnafn
23 Ósamstæffir 21 Veiki
24 Ófriffur 22 Ræningi {
26 Atviksorð 25 Fúi
27 Herbergi 27 Fangamark
29 Högninn 28 Verzlunarmál
1,5 miijón
Radionette-útvarps og sjónvarpstíeki eru seld í Noregi —
og tugir þúsunda hér á landi.
Radionette-tækin eru selá í yiir 60 lörídum.
Þetta eru hin beztu meðmæli með gæðum þeirra. '_
BETRl HLJOMUR - TÆRARI MYNDIR
Fcstival Séksjon
Fcstival Sjalusl
Grand Fcstival
Kvintctt Hi-Fi
Stcreo Gulvmodcll
Dueit Scksjon
Festlval Bordmotlell
Kvlntctt Hi-Fi Stcreo Seksjon
— RADIONETTE-verzlunin, Aðalstræti 18 —
GÆÐI OG FEGURÐ