Mánudagsblaðið - 25.09.1972, Síða 3
fc&átttKÍagtíj' 25, sept. 1972
Mánudagsblat&ð
3
Þeaar klerki varð
i messunm
Óvíða í heiminum er kristni-
hald jafn heiðarlegt og hrekk-
laust og á íslandi. Víðast annars
staðar er kristnin útbíuð í stjórn-
málabrölti, kynþáttaofstæki eða
kynferðisöfgum, svo nokkuð sé
nefnt. Öruggast er að sneiða
vandlega frá erlendum söfnuð-
um.
í ágúst kom ég við í Dóm-
kirkjunni í hnattferð minni og
var séra Óskar þar, og fórst vel
að vanda. Þó verð ég að undan-
skilja ummæli hans nm kirkju-
leg efni og hefi sjaldan heyrt
þvílíkar rökvillur frá svo reynd-
um manni í prédikunarstól.
Presturinn var eitthvað að
þusa út í allra handa isma, komm
únisma, fasisma og þvílíkar öfga-
stefnur í trúar og stjórnmálum.
Benti hann á hve indæl jörðin
yrði, ef kirkjan hefði meiri áhrif
í heimsmálum. Ég varð að sitja
á mér, til að biðja klerk ekki
um að endurtaka þessa speki. Eitt
það furðulegasta sem ég hefi
heyrt.
KIRKJUVALDIÐ
Nærtækasta dæmið um kirkju-
vald er ofríki kaþólsku kirkjunn-
ar hér á miðöldi/m, þegar kirkj-
an óvirti landslög, svo jaðraði
við borgarastyrjöld. Kirkjan sveik
út allar eignir landsmanna, sem
falar voru, í skiptum fyrir far-
miða til PARADÍSAR. Dana-
kóngur rændi síðan kirkjuófétið
og tók það landsmenn aldir að
kaupa sig útúr klípunni. Annað
dæmi um kirkjuofstæki er hið
margumtalaða ÍRLAND, þar sem
kaþólskir og mótmælendur ber-
ast á banaspjót í Jesú nafni,
þ. e. hreinu trúarofstæki.
Þá má nefna hryðjuverk kaþ-
ólsku kirkjunnar á miðöldum,
bæði í Evrópu og Ameríku, þar
sem menningu Inka var útrýmt
svo gjörsamlega, að vísindamenn
standa uppi fáfróðir um þessi
efni.
S.-AFRÍKA
Óvíða er nútíma landi stjórn-
að svo algjörlega af kirkjunni
sem í S-Afríku. Þar er Kalvín-
ista-kirkjan í öruggum sessi, fá-
um til gleði eða gagns. Þessi trú-<
flokkur er ábyrgur fyrir hina
margfrægu apartheid- — að-
skilnaðar- — stefnu. Kalvínistar
eru nær eingöngu Búar, afkom-
endur hollenzkra Iandnema, 3/5
af hvítum íbúum S-Afríku. Þessi
öfgaflokkur hefur því sett mark
sitt á þetta land og ekki hlotið
lof umheimsins svo orð sé á
gerandi. Allir eiga t. d. að reyna
að apa eftir siði frumstæðra úlf-
aldareka á eyðimörkum Egypta-
lands fyrir 4 þúsund árum, og
lagalega séð er bannað að aka
bíl í S-Afríku á sunnudögum,
ekki má sjá bíómyndir, né iðka
íþróttir (þ. e. a. s. ef einhver tel-
ur mörkin), happdrætti eru talin
„syndsamleg", en maður má sóa
sínu síðasta centi í hestaveðreið-
ar. Sjónvarpið hefur verið bann-
að af þessu „guðhrasdda fólki" í
heilan mannsaldur, þótt flest
svertingjaríki hafi fengið sjón-
varp fyrir löngu. Fólk, sem leig-
ir í blokkum sem kirkjan á, má
ekki þurrka ryk eða regndropa
af bíl sínum, hvað þá skipta um
dekk, á sunnudögum, og kven-
fólki er bannað að ganga í bux-
um alla daga vikunnar. Lögregl-
an ók 50 km til að sekta bónda,
sem plægði á sunnudegi eftir 5
mánaða þurrka.
Þetta eru dæmi um sæluríki
kirkjunnar, séra Óskar.
Viggó Oddsson
Jóhannesarborg
SKRÝTLA
— Hvenær megum við vænta
friðar í heiminum?
— Þegar Stalín segir ekkju
Framcos þau tíðindi á deyjanda
degþ að hann hafi sannfrétt, að
Hitler hafi verið myrtur við
jarðarfor Mussolinás.
Hauststemning
Þetta kvæði birtist í sjómannabiaðinu Víkingi árið 1968. Vík-
ingur er í litlu upplagi og hefur kvasðið því væntanlega farið
framhjá mörgum, sem gaman hefðu haft af. Því birtum við það
hér.
Kveður nú sumar og komið er haust,
kœnunni legg ég til vorsins í naust.
Allan þann afla sem báturinn bar
burðnöi landifólktð hér — og þar.
Fái ég vonbráðar togaratúr,
tek ég það fram yfir beitingaskúr.
Hver verður þénustan, sjáum vtð senn;
sjómannsins happdrcetti reynist það enn.
Fara skal þangað, sem fisksceld er mest,
fylla þar dekkið og sérhver;a lest.
Stíma svo þaðan í hvelli til Húll,
hamingján góða — ég verð alveg tjútt.
Þar skal nú djammað og dansað af list;
detta svo út af í scelunnar vist.
Hrífandi meyjarnar hrista mig til,
hressingu bjóða, — já eins og ég vil.
Spyr ég að vonum, þá haldið er heim,
hvar verði landað og þar ncesta „geim".
Ennþá er framundan himinn og haf;
halelúja — ef fer ég í kaf.
Hátt þegar aldan til himinsins rís,
hafskip má líkja við örsmáa flís.
Þá verða sumir í sjómennsku mát,
— sjálfur ég legg ekki árar í bát.
Kristinn Magnússon
ÞAÐ ER HAGKVÆMT
AÐ FLJÚGA Á HAUSTIN
Haustfargjöldin
eru þriójungi lægri
Flugfélagið býður fljótustu
og ódýrustu ferðirnar
til Evrópulanda með fullkomnasta
farkosti nútímans.
Hinrt 15. september taka haust-
fargjöld Flugfélagsins gildi.
Um 30% afsláttur er veittur
af venjulegum fargjöldum til
allra helztu borga Evrópu.
í 50 manna hópferð til
Skandinavíu fljúgið þér næstum
fyrir hálfvirði.
FLUGFELAG /SLAJVDS
P