Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Side 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Side 14
23. júlí frá öðru skipi í Drangál 10—11 stig. 25. ti 27. júlí austan Langaness 10 stig. 2. ágúst við Seley 7 stig. 4. ágúst á Grímseyjarsundi 8% stig. 7. ágúst á Grimseyjarsundi 8V2 stig. 10. ágúst út við ís Skagagrunni 0 stig. 12. ágúst út við ís Skagagrunni 0 stig. 13. ágúst Sporðagrunni 6 stig. 15. ágúst Skagafirði 11 stig. 15. ágúst Grimseyjarsundi 9 stig. 16. ágúst við Hólmasker (Skagafirði) 9 stig. 19. ágúst 6 sjóm. út af Skallarifi 9 stig. 19. ágúst Kálfshamarsvík 10 stig. 19. ágúst Hofsgrunni (þar var túnfiskur, síli, ufsi, þorskseyði) 11 stig. 20. ágúst 8 sjóm. út af Skallarifi 8V2 stig (ísinn far- in þaðan fyrir stuttu). 25. ágúst Skagagrunni (grynnra) 9 stig. 29. ágúst Horni (4 sjóm. undan) 9 stig. 29. ágúst ísafjarðardjúpi 9,6 stig. Með tilliti til margra undanfarinna sumra er þetta mesti sjávarhiti við Norðurland á síldveiðitímabilinu, sem ég man eftir og hefi ég þó stundað mælingar á síldveiðum um 15 ára skeið. Árið 1943 komst hitinn í sjó aldrei yfir 7 stig. Mælingar þessar benda ótvírætt á það, að Golfstraum- urinn hefir verið afai' sterkur við Norðurland í sum- ar, og þá helzt við ströndina; finnst mér því að hann hafi algjörlega ráðið um síldargöngur í fyrravor og sumar, ennfremur sé það styrkleika hans að kenna, hvernig fór um veiðina. Sú er skoðun mín, að okkur sé mjög nauðsynlegt, að fá gott hafrannsóknaskip af fullkomnustu og beztu gerð. Það er vart sæmandi fiskiveiðiþjóð, sem byggir mestalla afkomu sína á sjávarútvegi og á áhugasama fiskifræðinga, að geta ekki boðið þeim út til starfa nema við hin verstu skilyrði, eða út á þau skip, sem litils gagns er hægt að vænta frá. Á þessari tækn- innar öld, er hægt, — og það verður gert, fyrr eða síðar, með ötulu starfi vísindamanna —, að fá lesið úr leyndardómsbók sjávar, jafnvel undirdjúpanna, svo að hið mikla áhættustarf útgerðarmannsins og sjó- mannsins, verði minnkað, gert tryggara, og þá um leið til stöðugri þjóðarheillar. Hin hörmulega útkoma síldarflotans í sumar og þá um leið þjóðarbúsins, er öllum landsmönnum kunn. Hefðu engar kauptrygginar átt sér stað í sumar, til fiskimanna, væri útkoma hlutasjómannsins á þessa leið: Taki maður meðal aflaverðlaun alls flotans, sem varð á skip kr. 46000.00, verður hlutur úr því ca 900 krónur; þar frá dregst fæði, sem er nú í dýrtíðarlandi voru ca. kr. 400 pr. mánuð og lágt reiknað. Verða þá eftir tveggja mánaða starf ca 100 krónur fríar, eða sem svarar 4 kg. af rjómabússmjöri eða 8 kg. af I. fl. diklakjöti, sömuleiðis viku herbergisleiga í höfuðborg- inni. Gera menn sér það Ijóst, að 200 kg. af síld þarf til vöruskipta svo að fáist 1 kg. af rjómabússmjöri, enn- fremur 80 kg. af síld, fyrir 1 kg. af I. fl. diklakjöti eða þá 675 kg. af bezta fóðurefni heimsins í stað viku húsa- skjóls? Þegar ósamræmið er orðið svona mikið, er engin furða, þótt maður spyrji: Hvað lengi getur þetta eða þessu líkt staðist og hverjar verða svo afleiðingarnar? Sjómannslífið er í flestum tilfellum, að minnsta kosti líf fiskimannsins, mjög áhættusamt hvað afkomu snert- ir. Sama er að segja um útgerðarmanninn. Oll verk þessara aðila eru háð hinum duttlungafullu náttúruöfl- um, allt þeirra líf er áhættulíf, en þó um leið spennandi og ábyrgðarmikið. Eitt hið ágætasta í nýbreytni umliðins og yfirstand- andi tíma, til aðstoðar og eflingar síldveiðunum, er síldarleit í flugvélum, og eiga hvatamenn þessa máls miklar þakkir skilið. Vonir okkar fiskimanna verða því bjartari, sem við finnum betur skilning alls þorra manna á þessu mikla velfei'ðarmáli. Þar sem mig brestur þekkingu til þess að benda á hina réttu leið, ásamt því hvernig fljótast verði bætt úr, um aðbúð að flugmönnum okkar, hvað flugvélateg- undir, lendingarstaði og öryggi þeirra viðkemur, leyfi ég mér hérmeð að skora á þá, sem hafa til þesara mála mesta og bezta þekkingu, að skrifa um það í Víking hið allra fyrsta. Ég veit að reynsla undanfarandi ára hefir sýnt starfsmönnum hvað réttast er i þessu efni og á hvern hátt er bezt að framkvæma það, sem gera þarf. Ég vona fastlega að vinur minn, Sveinn Benedikts- son, framkvæmdarstjóri Ríkisverksmiðjanna, láti nú sannast, að það, sem ég lofa, leyfist mér að fram- kvæma. Hverri síldarleit í flugvél sé stjórnað af vönum síldarmanni, skipstjóra, og ráði hann leitinni að öllu sjálfur, aðeins í náinni samvinnu við flugstjóra og veiðiflotann. Náist þetta, tel ég vel farið og málinu borgið á þann hátt, sem við óskum, veiðimenn. Þegar síld bregst á hinum vanalegu stöðum, þarf sannarlega að stækka leitarsvæðið, hefja flugið lengra til hafs, svo að sjóndeildarhringurinn verði ekki eins takmarkaður. Það gæti orðið til þess, að aflaleysisárin yrðu færri. Finndust nýjar síldarstöðvai', er gæfu með- al ársveiði, mundi það sanna kost flugsins og hin hörmulega tapveiði hverfa. Væri þá miklu borgið og unnið í rétta átt. Vonandi kemur allt þetta með tíð og tíma og einbeittum vilja þeirra, sem þessum mál- um ráða. Sannarleg þörf er á því, að flugvélarnar hafi góðar talstöðvar, ásamt öllum hlustunar- og siglingartækjum. Ennfremur er nauðsynlegt að fundin sé beppileg bylgjulengd fyrir þær að vinna á. Það er ómögulegt að binda þær við sömu bylgjulengd og skipin hafa; þar eru svo tíðar truflanir. Eins er með öll viðskipti þeirra við landstöðvar. Siglufjörður þarf að tilkynna alltaf á sama tíma og sömu bylgju þegar flug hefst til síld- arleitar, svo að allir geti hlustað þá og fylgst með úr því, ef um leit er að ræða. Annars má segja að loftskeytastöðin á Siglufirði hafi framkvæmt með áhuga og einstakri lipurð allt er að þessum málum lýtur, og afkastað miklu, eins og annir hljóta að vera miklar á þeirri stöð að sumrinu, en þó hefir mikil töf orðið af því hversu talstöðvarútbúnað- ur flugvélanna hefir verið lélegur og þær bylgjubundn- ar. Þetta þarf að laga. Það væri æskilegt að Siglufjarðarradíó kallaði allar síldartilkynningar til skipa sem oftast út, en þó á viss- um tíma, ef því verður við komið. Ég legg mikla áherzlu á allt þetta vegna þess, að öll þau skip, sem stundað hafa síldveiðar undanfarandi stríðsár, hafa enga loft- skeytamenn sem hlusta að staðaldri, heldur mann, sem 174 V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.