Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Síða 24
Það benda ýmsar líkur til þess, að hér sé laumu- farþegi um borð, skipstjóri góður! ★ Einhvern tíma var það, að Bjarni Thorarensen amt- maður sagði sögu, sem áheyrendum þótti í meira lagi mergjuð, og spyr einhver þeirra hann að, hver hafi sagt honum þessa. Þá segir Bjarni: „Það var maðurinn, sem hefur kjaftinn í kring um állt höfuðið“. En maðurinn var Oddur Hjaltalín, læknir. ★ Líklega hefur þetta gerzt, er þeir Oddur voru sam- tíða í Kaupmannahöfn, og sýnir það, að Bjarna hefur fundizt til um túlann á Oddi; mun þó ekki hafa kallað allt ömmu sína. Eru hér s' nishorn af nokkurum mergj- uðum svörum Odds, eða ófáguðum gamanyrðum. Einu sinni var hann beðinn að vitja sjúklings, en var þá einhvern veginn illa fyrir kallaður og sagði: „Þó það stæði þriggja þumlunga nagli í auganu á drottn- ingunni, þá færi ég ekki fet“. ★ Þessa vísu kvað Oddur einu sinni við síra Eyjólf Gíslason, í bróðerni og vinsemd, því þeir voru góð- kunningjar: „Eyjólfur prestur, allra verstur, enga skynsemd bar. Biblíuhestur, hrossabrestur heilagrar kristninnar. ★ Maður nokkur átti tal við Odd og klifaði lengi á hinu sama, þangað til Oddi leiddist og mælti: „Ég vildi að þú værir horfinn svo langt ofan fyrir helvíti, að djöfullinn sæi þig ekki í bezta kíki“. Til slíkra svara og þvílíkra hefur vin hans, Bjarna Thorarensen, rekið minni, er hann kvað hinn fræga snilldaróð eftir hann látinn, og þetta erindi þar á meðal: Amæli því enginn Oddi Hjaltaiín Orð þótt hermdi hann Er hneyksluðu suma, o. s. frv. ★ En hann gat líka verið orðheppinn, án þess að vera klúryrtur. Það sýnir þessi saga: Fyrri kona hans var dönsk og hét Dorothea Borne- mann. Faðir hennar var fyrirliði í her Dana. Hann var andaður er Oddur bað stúlkunnar; var hann þá við háskólann, að stunda nám sitt í læknisfræði. Var bróðir hennar þá fyrir svörum með henni, mikilsháttar maður, vandaður og guðrækinn. Honum gazt miður að ráðahagnum fyrst í stað og fann það helzt til, að syst- Á FRÍVÁ ur sinni mundi leiðast vistin á íslandi, svo afskekkt sem það væri. „Haldið þér þá að guð sé síður þar en hér?“ mælti Oddur. Þetta svar líkaði Bornemann vel, og kvaðst eigi mundu standa á móti ráðahagnum, er biðillinn væri þannig innrættur. ★ Lseknir nokkur hafði þá venju að láta sjúklinga þá, er til hans komu, afklæðast í herbergi, sem var á milli biðstofunnar og iækningastofunnar. Dag einn kemur al- klæddur maður í dyrnar á lækningastofunni, en lækn- irinn rak hann umsvifalaust fram fyrir og skipaði honum að afklæðast. Eftir litla stund kemur maður- inn berstrípaður inn í lækningastofuna með blað í hend- inni, hneigir sig og segir: „Ég er hérna með reikning fyrir kirkjugjöld". ★ — Þú varst úti að skemmta þér með einhverjum kvenmanni í gærkveldi. Það hefur líkast til kostað skilding? — Tvö hundruð krónur! — Ekki meira! — Nei, hún hafði ekki meira á sér. ★ — Ef þér akið svona ógætilega oftar, verðum við neyddir til að taka af yður ökuskírteinið. — Það skiptir engu máli, herra lögregluþjónn. — Ég hef ekkert! ★ — Hvað er tvíkvæni? — Það er, þegar einhver ratar tvívegis í sömu ógæfuna. ★ — Hvers vegna ert þú að taka spegilinn úr bílnum? -—• Mér þykir það vissara. Konan mín ætlar að aka. ★ Sparsemi. Móðirin (við skólastjórann): Ég vona, að tvíburarnir fái að sitja saman. Þeir hafa ekki nema eihn vasaklút. ★ — Sú stúlka, sem ég kýs mér til eiginorðs, verður að hafa kýmnigáfu í ríkum mæli. — Auðvitað. Annars tæki hún þér ekki. ★ Jónatan prófessor var boðinn í veizlu. Þegar skipað var til sæta var honum skákað í virðingarsæti við hlið húsmóðurinnar. A borðinu beint á móti þeim var stór, steikt gæs. Nú vildi prófessorinn reyna að vera fynd- inn, hóf upp raust sína og sagði brosandi: — A ég nú að sitja hjá gæsinni, góðir hálsar? — Þegar er hann hafði sleppt orðinu, datt honum í hug að þetta gæti misskilizt og mælti: — Ég á auðvitað við steiktu gæsina! 1B4 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.