Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Page 12
Rólegt skipalœgi við Kekova, nálœgt Finitze skýlir „Little Vigilant“. Hún er 70 feta löng meö hjálparvél. Meö þessari snekkju fór höfundurinn og félagar hans þangaö sem bronsaldarflakiö liggur. Skipverjar fundu þarna borg hinna dauöu — kalksteins- grafir voru þar hundruöum saman í hinum fjarlægu hliöum Tyrklands. hundruð árum lengur en nokk- urt skipsflak, sem fundizt hefur. Sérfræðingar hafa staðfest álit Örþreyttur ejlir langa köfun. Kemal Aras skipstjóri hvílir sig á þilfari áður en liann fer úr kafarabúningnum. Köfun eftir svampi er ekki eftirsóknarverö scgir höf- undurinn. Kafarinn óttast kafaraveikina. Að kafa of ofl, of djúpt eöa of lengi getur orsakaö lömun eöa dauöa. Pcgar upp kemur athugar kafari líkama sinn jafn gaumgœfilega og kappakstursmaður at- hugar bílinn sinn. okkar. Dr. Rodney Young for- stöðumaður deildar í fornleifa- fræði Forn-Grikkja og Rómverja við háskólann í Pensylvaníu, lýsti því yfir að hinn mótaði kop- ar væi'i alveg sérkennilegur fvr- ir síðari hluta bronsaldar. Dr. Erik Sjöqvist prófessor í forn- leifafræði Forn-Grikkja og Róm- verja við háskólann í Princeton komst að því að rýtingsbrot og spjótsoddur voru einkennandi fyrir vopn frá Kýpur frá 14 og 15 öldum fyrir Kristsburð. Skipsflakið veldur heilabrotum. Nútímamenn vita sáralítið um skip og verzlun bronsaldar. Við vonum að brátt aukist sú vit- neskja. 1 næsta leiðangri er ætl- unin að rannsaka í smáatriðum hið forna flak við Cape Geli- donya. Hvers konar skip var þetta? Hvernig leit það út og hvernig sigldu hinir fornu sæ- farar? Hvaða þjóðflokki var ætlunin að færa verzlunarvarninginn? Að loknum viðkomum á strönd- inni. Var þá ef til vill ætlunin að fara með koparinn til fólks sem stóð á hærra menningarstigi ? Mun efnafræðileg hreingerning á viðkvæmum hlutum sem enn er ekki vitað um til hvers voru, leiða í ljós silfur og gull í farmi, sem fyrir þremur árþúsundum hlýtur að hafa jafngilt konung- legu lausnargjaldi. Ótal margar spurningar koma mér í huga, meðan ég bíð óþolin- móður eftri svörum sem kunna að liggja á 90 feta dýpi undan hinni klettóttu strönd Tyrklands. Þrátt fyrir óþolinmæðina er ég þakklátur, því skipstjórinn ympraði af tilviljun á atriðum, sem urðu til þess að flakið fannst. Hefði það ekki skeð er ekki víst að neinar spurningar hefðu vaknað. (Höfundur Peter Throclcmorton í National Geograpic, maí 1960). Grímur Þorkelsson þýddi. 188 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.