Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Side 16
Sjómannaþátturinn Á frívaktinni Sjómannaþátturinn í útvarp- inu „á frívaktinni“ hefur verið vinsæll um langa tíð, meðal þeirra sem á sjónum eru og þeirra er til þeirra hugsa. Þátt- urinn byrjaði á tilraunastigi ár- ið 1956, en er nú orðinn fasta- þáttur klukkustund í hverri viku. Stjórnandi þáttarins hefur verið frá byrjun Guðrún Erlendsdótt- ir, að fráskildu stuttu tímabili, er hún var við fyrri hluta lög- fræðiprófs við Háskóla Islands. Guðrún er dóttir Erlends Ólafssonar bátsmanns á m/s Esju, en hann hefur um ára- tugaskeið stundað sjómennsku á fiskiskipum og farskipum, og lengst af sem bátsmaður. Þar sem Guðrún á tvær systur, aðra gifta hér, en hina við störf á bókasafni í Kanada, en engan bróðir, má með nokkrum sanni segja, að hún hafi tekið upp þráð- inn að hafinu úr föðurleifð, með starfi sínu við þáttinn, þótt fað- ir hennar sé einnig á sjónum. Sjómannablaðið Víkingur leit- aði upplýsinga hjá henni og ræddi við hana fyrir stuttu síðan um starfsemi þáttarins. Já, auðvitað er það raunveru- lega þannig, segir Guðrún, að vegna þess að pabbi hefur lifað og hrærst við sjómennsku allt sitt líf frá því hann var 14 ára gamall, og mamma lifað hlut- skipti sjómannskonunnar allt sitt hjónaband, að við systurnar eins og önnur sjómannsbörn, höfum mótast að meira eða minna leyti af áhrifum frá haf- inu og sjómennskunni. Svo þetta er ekki alveg eins fjarlægt starf fyrir kvenfólk, eins og maður gæti ímyndað sér. Nei, ég hef alla tíð haft ánægju af þessu starfi. Það hefur eins og eðlilegt er sínar hversdags- legu hliðar, þegar til lengdar lætur, en allt í gegn eru hinar fleiri, er gefa því ánægju og gildi. Kemur mikið af bréfum og símskeytum til þáttarins? Já, það er svo ótrúlega mikið, hér er t. d. pósturinn í morgun, og Guðrún tekur stóran bunka af bréfum og símkeytum og tel- ur. Jú, það eru 98 bréf og skeyti! Og er hún hefur tekið upp, sem sýnishorn fyrir spyrjanda þrjú bréf af handahófi kemur í ljós, að í tveimur þeirra eru þrjár og fjórar kveðjur frá sama skipi. Og hvað kemur þá mikið af bréfum, svona til jafnaðar á mánuði ? Það er dálítið breytilegt. Lang- mest berst að á vetrarvertíðinni, þá kemst bréfafjöldinn upp í allt að 1.000-á viku! En á milli ver- tíða lækkar talan allmikið, en þó gæti ég trúað að meðaltalið myndi vera að jafnaði um 500 á viku. Er þá ekki mikil vinna, að komast í gegnum þetta allt sam- an og raða því niður? Jú, sannleikurinn er sá, að að það liggur ótrúlega mikil vinna í því, að lesa öll þessi bréf Gu'örún Erlendsdóttir stjórnandi sjómannaþád' hún lýkur á nœsta ári og veröur þá fimmti kv< hér yfir GuSrún viS hljóönemaborSiS, t. d. fy’ hefur aSsetur. NeSst t. h. útsýni úr starfsh og skeyti, og síðan að samræma óskirnar eins og hægt er við lög- in sem um er beðið, og loks að finna viðkomandi lög í hljóm- plötusafni útvarpsins. En er þá mögulegt að koma öllum þessum kveðjum og ósk- um á framfæri í þessum þáttum ? Nei, því miður kemur nú stundum fyrir að ekki er mögu- legt að koma öllu fyrir, þó að ég reyni að dreifa því yfir á þættina. Og margir hljóta að vera óánægðir yfir því, að heyra ef til vill aldrei þá kveðju lesna eða það lag leikið, sem þeir ósk- uðu eftir. Og þó reyni ég að taka svo mikið sem frekast er hægt, að ætlast til að fólk geti hlustað á í einu, þannig að ekki verði þó aðeins um þurran nafnalestur að ræða. í nær öllum tilfellum reyni ég að koma afmæliskveðjum að á réttum tíma, og öllu því er ég stundum þykist ráða af innihaldi bréfanna, að haft geti persónu- legt gildi fyrir viðkomandi aðila. Eru bréfin dálítið mismunandi að innihaldi, þannig að þau geti gefið slíkt til kynna? Já, það kemur nokkrum sinn- um fyrir, að ég fæ persónuleg bréf, þar sem viðkomandi skýrir mér frá einkamálum, og í hvaða sambandi sé beðið um ákveðið VÍKINGUP.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.