Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Side 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Side 20
Þegar „Ernestme” strandaði 30 ára gömnl harrnsaga Skúli fógeti fórst á sunnanverð- um Reykjanesskaga skömmu eftir miðnætti hinn 10. apríl Strandsögu þá, sem hér verður sögð, sagði mér Páll Joensen, en árið 1930 var hann 1. vélstjóri á færeysku skonnortunni „Ernestina“ frá Klaksvik. „Ernestina" var 2ja siglu skip, 194 br. tonn að stærð, með 100 ha. Bolin hjálparvél. Páll var um tíma 3. vélstjóri á m.s. Skeljungi á árinu 1947, og sagði mér þá allýtarlega frá strand- inu og þeim atburðum, sem því voru samfara. Færeyingar hafa á liðnum ára- tugum misst marga menn í sjóinn við ísland. Á skútum sínum sóttu þeir á tslandsmið, bæði vetur og sumar og mun sú sjósókn oft hafa verið harðsótt, þegar illa viðraði. „Ernestinu" bar upp á sker, undir hamrabelti, nokkru austan við Sel- vog í hríðarveðri og náttmyrkri. Fleiri færeyisk skip voru og hætt komin þessa nótt á sömu slóðum, en náðu sér frá landi aftur. Frásögn Páls er gott dæmi þess, hve æðruleysi og þrautseigja geta hjálpað þeim, sem í nauðum eru staddir. Svo gef ég Páli orðið. Þann 20. marz 1930 var skipið að veiðum á Selvogsbanka. Eftir há- degi hvessti af ASA með slyddu- éljum. Var þá skipinu lagt til með rifuðum seglum, þannig að það sneri stefni til lands, og vélin stöðvuð. Skipstjórinn sagði 1. stýrimanni, sem var á verði, að allt myndi vera i lagi framundir miðnætti, með þeim hraða, sem hann taldi þá vera á skipinu, og lét 1. stýrimaður þau ummæli skipstjóra ganga til 2. stýri- manns, sem tók við vakt af honum kl. 1800. Um kl. 2100 gefur skipstjóri 2. stýrimanni skipun um að mæla dýp- ið. Var það þegar gert og kallar 2. stýrimaður að því loknu niður til skipstjóra, sem staddur var í káet- unni, að dýpið væri 60 m. Segir þá skipstjóri 2. stýrimanni að undirbúa vendingu, en Páli segir hann að setja vélina þegar í gang. Meðan Páll var að undirbúa gang- setningu vélarinnar, er hrópað fram- a naf skipinu, að brim og snjór sjá- ist framundan á stjómborða. Gaf skipstjóri þegar skipun um að leggja skipinu undan, þar sem landið var rétt við stjórnborðsbóg og vélin ekki komin í gang. Þegar vélin hafði gengið í 2—3 mínútur eftir ágizkun Páls, með hægri ferð, tók skipið niðri að fram- an með snöggu og þungu höggi og sneri þá stefnið til lands. Menn og munir köstuðust til og allt sem ekki var naglfast fór þegar úrskorðum. Mikið brim var um- hverfis skipið og gengu ólög yfir það með stuttu millibili, en fram- undan og uppi yfir skipinu sást ó- glöggt í snæbarið hamrabelti og var því þegar séð, að ekki myndi land- takan auðveld. Þar sem stefnið reis töluvert úr sjó, söfnuðust skipverjar saman fram á skipinu fyrst í stað, en síðar fóru flestir þeirra upp í sigluna. Allir tóku skipverjar örlögum sín- um af mikilli stillingu, enda Færey- ingar miklir trúmenn og fátt mun haldbetra í mannraunum, en þegar saman fara karlmennska og vilja- þrek, sem byggt er á einlægri trú. Þar sem ekki náðist í neina flug- elda til að gefa með neyðarmerki, en þeir voru geymdir í káetunni, sem þegar eftir strandið fylltist af sjó, bað 1. stýrimaður Pál um að fara aftur í vélarrúm og reyna að ná þar í „tvist“, svo hægt væri að kveikja bál og vekja með því móti athygli annarra skipa á strandinu. Páli tókst að komast aftur í vél, en þar var þá þegar kominn mikill sjór og náði Páll því ekki í „tvist- inn“. Er hann ætlaði upp, varð hann tvisvar að snúa við aftur, sökum ólaga er gengu yfir, en komst þó að lokum við illan leik fram á til fé- laga sinna . Fór nú Páli að gerast kalt, enda illa búinn og veður vont. Einn af hásetunum fór þá úr þykkri ullar- peysu, sem hann var í og færði Pál í hana. Telur Páll, að það hafi orðið til að bjarga lífi sínu. Annars voru skipverjar allir vel búnir, og margir í sjóstökkum. Allir voru og með björgunarbelti. Reynt var að koma út stórbátn- um, sem stóð á stokkum aftan við framsiglu. Gekk illa að losa bátinn, því bæði var, að hann var þungur og að erfitt var að standa að verk- inu, þar sem miðþilfarið var oftast undir sjó. Allt í einu reið stórbrot yfir skip- ið, reif upp bátinn og kastaði hon- um fram af skipinu, en mönnunum sópaði sjórinn fram í stefni, og lá þar hver um annan þveran þegar aftur fjaraði. í þessu ólagi tók fyrsta manninn fyrir borð, var það ungur piltur, Henry að nafni. Flaut hann skammt frá bakborðsbóg. — Var reynt að bjarga honum, en án árangurs. Faðir hans, aldraður maður, Elías að nafni, sem var háseti á skipinu, kallaði til sonar síns: „Farðu í guðs friði, sonur minn, ég kem bráðum á eftir þér“. Elías reyndist sann- spár, því hann var einn þeirra, sem fórust. Eftir þetta klifu flestir skipverja upp í reiða framsiglunnar, en fimm fóru út á bugspjótið, sem reis hátt úr sjó. Voru það, auk Páls, 1. stýri- maður, Johann Högnesen, og þrír hásetar. Páll og einn hásetanna, Siska Jac- obsen, voru fyrst í stað í netinu undir bugspjótinu, sneru saman og reyndu að halda hita hvor á öðrum, eftir því sem þeir gátu. Þar kom þó, að netið slitnaði nið- ur. Komst Siska upp á framenda bugspjótsins og hélt sér í framstag- inn, en Páll náði í millistaginn og gat haldið sér þar. Lágu þeir á grúfu og kræktu fótum saman undir bug- spjótinu. Einhverju sinni er brotsjór reið yfir skipið, svo að bugspjótið fór í kaf, losnaði Johann af því, en hann hafði verið næsti maður fyrir aftan Pál og haldið sér í millistaginn með honum. Honum tókst þó að hanga í stagnum og hrópaði á hjálp. Þegar hér var komið, var Páll orð- inn svo stirður og dofinn af kulda, að honum var um megn að hreyfa sig. Tveir menn komu þá ofan úr reiðanum og tókst að ná tökum á öxlum Jóhanns, en um leið reið ann- ar brotsjór yfir og færði að nýju alla, sem á bugspjótinu voru, í kaf. Urðu mennirnir að sleppa tökuninn af Jóhanni, til þess að geta haldið sjálfum sér. Missti þá Jóhann af millistagnum, féll niður á keðju undirstag, og lá þar síðan þversum, örendur. 196 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.