Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Blaðsíða 1
Efnisyfirlit
Bls.
Afli og launatckjur .............. 89
Sjávarútvegur og fiskiðnaður ..... 90
Drýpur sorg (minningarkvæöi .... 93
Gísli J. Johnsen áttræður ........ 94
,-'
Víðsvegar að úr veröldinni ....... 96
Kostungurinn ...................... 98
Um heimsliöfin sjö............... 102
Ellert Kr. Schram (minningargrein) 104
Siglinganámskeið í Osló ......... 105
Bókin um „Hafið" ................. 106
Húsráð ........................... 109
Þorskveiðar við Grænland ........ 110
Veðuráhrif á fiska ............... 111
Frívaktin ........................ 112
Félagsmáladálkur ................. 114
Nýr bátur til Kcflavíkur.......... 115
Nýbakaður (smásaga) .............. 116
/-'
Fiskveiðiáform Rússa.............. 117
Af annarra snærum ............... 118
/—'
Botnvarpan........................ 119
Víða er pottur brotinn ........... 119
r~->
Skólahúsbruninn á Möðruvöllum .. 120
★
FORSÍÐUMYNDIN:
Að ofan teikning í réttum stærðar-
hlutföllum af aflamagni pr. einstakl-
ing sjómanna nokkurra þjóða. Teikn-
inguna gerði Haukur Sigtryggsson
fyrir „Sjóvinnunámskeiðið". Á neðri
myndinni eru piltar frá „Sjóvinnu-
námskeiðinu 1961“, ásamt kcnnurum
og nokkrum gestum, á skemmti- og
fræðslufundi í fundarsal Slysavarna-
félags Islands. Haukur Tryggvason
tók báðar myndirnar.
Sjómannablaðið
VÍKINGUR
Útgefandi: F. F. S. í. Ritstjóri: Halldór
Jónsson. Ritnefnd: Guðm. H. Oddsson,
form., Þorkell Sigurðsson, Henry Hálf-
dánsson, Halldór Guðbjartsson, Jónas
Guðmundsson, Egill Jóhannsson, Akur-
eyri, Eyjólfur Gíslason, Vestmanna-
eyjum, Hallgrimur Jónsson, Sigurjón
Einarsson. Blaðið kemur út einu sinni
í mánuði og kostar árgangurinn 100 kr.
Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu
11, Reykjavík. Utanáskrift: „Víkingur“.
Pósthólf 425. Reykjavík. Sími 156 53.
— Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Sjómannablaðið
VlKINGUR
ÍJttjeiandi: Farmanna-
oíj Finiiimannanamband íslands
Ritstjóri
Halldór Jónsson
XXIII. árgangur-------
Afli og launatekjur
Hannes á horninu ritar grein
í Alþýðublaðið þann 19. febrúar,
sem ber yfirskriftina: Ríkar
stéttir hafa gripið vopn fátæks
fólks og notað til glæpsamlegra
athafna. Þar beinir hann meðal
annars orðum sínum til yfir-
manna á vélbátaflotanum.
Ég finn mig knúinn til að
svara þessu með nokkrum orð-
um, þar sem svo mjög er hallað
réttu máli, að manni finnst
fremur tilgangurinn vera að
sverta þá menn í augum fjöld-
ans, sem öðrum fremur afla
þjóðinni tekna, en að bera sann-
leikanum vitni.
Verkfall þessara aðila stóð
einungis vegna þess að þeir undu
því ekki að kjörin væru stórlega
skert en ekki vegna hroka og
skefjalausrar græðgi eins og
Hannes kemst svo smekklega að
orði. Kröfur þær sem settar eru
fram í upphafi samninga geta
verið mikið frábrugðnar því sem
um er deilt þegar komið er út í
vinnustöðvun.
Enda var sú raunin hér, það
var ekki deilt um neinar nýjar
kröfur, heldur aðeins reynt að
halda því sem áunnizt hafði.
Að lokum sömdu yfirmenn á
vélbátaflotanum, uppá lakari
kjör sér til handa en þeir áður
höfðu. Á ég þar við lækkun á
fastakaupi. og lækkaðan hundr-
aðshluta af heildaraflaverðmæti.
En þó að fiskverð hafi nokkuð
hækkað getur það verið breyti-
legt, og hafa sjómenn enga hlut-
deild í ákvörðun þess, en verða
að búa að því sem af öðrum er
ákveðið.
Greinarhöfundur segir að laun
þessara manna séu 100—200
þúsund krónur jafnvel aðeins
eina vertíð.
Það er rétt að laun afburða
fiskiskipstjóra geta orðið mikil,
en það er víðsfjarri að þetta
eigi við um fjöldann.
En þá væri fróðlegt að kynna
sér liver verðmæti sá maður hef-
ur fært þjóðarbúinu, sem hefur
100 þúsund krónur í laun yfir
vertíðina.
Eftir því sem næst verður
lcomizt munu laun skipstjóra á
línu- og þorskanetaveiðum hafa
verið sem næst 5% af heildar-
verðmæti aflans miðað við það
verð sem útgerðarmaður fékk
fyrir aflann.
Hins vegar var verð það sem
hlutur sjómanna var reiknað eft-
ir mikið lægra og hlutur skip-
st.jóra úr því verði var sem næst
81/2%.
Því hefur hver sá skipst.jóri,
sem hefur haft 100 þúsund krón-
ur í laun, skilað afla að verð-
mæti um 2 milljónir króna.
En iivei't er svo söluverðmæti
þessa afla í erlendum gjaldeyri?
Ég held að sá skipstjóri sé
ekki oflaunaður heldur væri okk-
ur hagur í að eiga þá sem flesta.
Tryggvi Sigurgeirsson.
89
V í KINGUR