Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Blaðsíða 26
Reykjavík, 28. janúar 1961.
Það hefur einhvern veginn kom-
izt inn í höfuðið á mér sú hugmynd,
að ykkur væri ekki á móti skapi,
að fá aðsendar greinar 1 blaðið. Það
er ekki ætlun mín að gera ykkur
til geðs í þeim efnum í þetta sinn!
í þess stað vil ég benda ykkur á
eitt eða tvö atriði til að „fullnýta“
möguleika innan ritstjórnarskrif-
stofunnar. í fyrsta lagi væri það
skemmilegur fróðleikur, og gæti
jafnvel verið þarflegur, að birta
skrá yfir sambandsfélög F.F.S.Í.,
ásamt nöfnum stjórnar hvers fé-
lags og meðlimatölu þeirra. Ég geri
tæplega ráð fyrir, að það sé nauð-
synlegt fyrir mig að geta þess, að
kvenfélögin, sem sköpuð eru úr rifi
karlfélaganna, eins og Eva gamla
forðum daga, eigi að fylgja með.
Sjómenn hafa orð fyrir að vera
„stimamjúkir við stúlkurnar", svo
þetta er auðvitað sjálfsagt.
Hitt atriðið, sem ég hef í huga,
er gömul hugmynd hjá mér, en hef-
ur ekki fengið áheyrn til þessa. Það
VITIÐ ÞÉR — ?
— að í 200 grömimun af hænueggjom
eru 24 grömm af eggjahvítuefni, en í 200
grömmum af sjávarfiski eru hins vegar 36
grömm af lífrænu dýraeggjahvítuefnl.
er, að Víkingur birti stuttorðar
fréttir af nýjum lögum og laga-
breytingum, sem varða sjómennsku
og siglingar. Helzta mótspyrnan
gegn þessu hefur verið sú, að þetta
yrði of langt mál, og kæmi ekki fyrr
en eftir dúk og disk í mánaðarblaði
eins og Víkingur er. Ég vil svara
því til, að sé málið langt, má ann-
að hvort endursegja það í stuttu
máli, eða geta aðeins helztu og
veigamestu atriða þess. Málið verð-
ur skýrara með því, að sleppa öll-
um málalengingum. Að það komi of
seint stenst ekki. Betra er seint en
aldrei. T. d. mun nú vera til umræðu
á Alþingi frumvarp um breytingar
á sjómannalögunum og/eða lögum
um skráningu skipverja. Hvað það
er, veit ég ekki, en er forvitinn, og
það ættu allir sjómenn að vera.
Fleira skylt þessu hefur mér
stundum komið til hugar, en man
það ekki sem stendur, og læt því
þetta nægja.
Sennilega yrði þetta aukið starf
fyrir ritstjórann, en ég hef enga
samvizku af því!
Jón Eiríksson.
*
Við þökkum Jóni Eiríkssyni skip-
stjóra kærlega fyrir þær ábending-
ar, sem fram koma í bréfi hans.
Við höfum margoft hugleitt þessi
mál, en aldrei orðið að framkvæmd.
Nú munum við hins vegar gera okk-
ar bezta, og höfum í þvi sambandi
„húkkað“ myndinni hér að ofan úr
„Radiotelegrafen“ danska, til þess
að hafa slíkt efni undir, en þar er
hún einmitt notuð til þess að draga
athygli að ýmsu, er heyrir undir
félagsmál.
Við munum innan skamms birta
upplýsingar um félögin innan F.F.
S.Í., en að þessu sinni birtum við
hér útdrátt um úrskurð Félagsdóms
út af skilgreiningu á deiluatriði í
kjarasamningum Vélstjórafélags ís-
lands. Stefnandi er F.F.S.Í. vegna
V.S.F.Í., en stefndi Vinnuveitenda-
samband íslands vegna Skipaútgerð-
ar ríkisins.
Dómkröfur stefnanda eru þessar:
Að dæmt verði, að taki vélstjórar
og aðstoðarvélstjórar laun í veik-
indaforföllum samkvæmt a-lið 2. gr.
kaup- og kjarasamnings aðilja frá
1. ágúst 1957, skuli þeim auk mán-
aðarkaups samkvæmt a-d-lið 1. gr.
samningsins greitt eftirtalið kaup:
1) Olíuþóknun, þ. e. 10% kaupauki
skv. e-lið 1. gr. samningsins, er
vélstjórar og aðstoðarvélstjórar
starfa á olíuflutningaskipum.
2) Kæliþóknun, þ. e. 10% kaup-
auki skv. f-lið 1. gr. samnings-
ins, er vélstjórar og aðstoðar-
vélstjórar starfa á kæliskipum
og kældar vörur eru fluttar
meðan veikindaforföll, sem laun
ber að greiða fyrir, standa yfir.
3) Mótorvélaþóknun, þ. e. 4%
kaupauki skv. g-lið 1. gr. samn-
ingsins, er vélstjórar og aðstoð-
arvélstjórar starfa á mótorskip-
um.
4) Vaktauppbót, þ. e. kr. 400,00 og
kr. 800,00 á mánuði í grunn-
laun skv. f- og g-liðum 4. gr.
samningsins, er vélstjórar
ganga 10 klst. vaktir.
Dómsorð:
Stefnda er skylt að greiða vél-
stjórum og aðstoðarvélstjórum, sem
taka laun í veikindaforföllum sam-
kvæmt a-lið 2. gr. framangreinds
kjarasamnings, olíuþóknun sam-
kvæmt e-lið og mótorvélaþóknun
samkvæmt g-lið 1. gr. og vaktaupp-
bót samkvæmt f- og g-lið 4. gr.
sama samnings.
Stefndi í máli þessu, Skipaútgerð
ríkisins, hefur hins vegar eigi nein
kæliskip í förum, og ber því þegar
aí þeirri ástæðu að sýkna hann að
svo stöddu af þessum kröfulið stefn-
anda.
*
Þeir, sem kynnu að vilja lesa nán-
ar um málsmeðferð í dómnum, er
bent á að allar nánari upplýsingar
geta þeir fengið á skrifstofu Vél-
stjórafélags íslands, Bárugötu 11.
114
VÍKINGUR