Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Blaðsíða 30
Ilornafjörífur. Nýr 150 tonna bátur hefur nýlega verið keyptur til Hornafjarðar. Keitir hann „Ólafur Tryggvason“, en eigandi er Tryggvi Sigurjónsson. Átta bátar á línu og netum, er gerð- ir verða út frá Hornafirði á kom- andi vertíð, munu leggja upp hjá kaupfélaginu. — Auk þeirra munu leggja upp hjá félaginu 8—10 hand- færabátar. tleruíjörifur. Vélbátar kaupfélagsins tveir, „Mána tindur“ og , Sunnutindur", hafa hafið róðra og fengið 50 tonn fiskj- ar hvor. Síðastliðið haust var kom- ið fyrir ísvél í frystihúsinu á staðn- Vstln »g Cognac Fyrrverasdi skipstjóri hjá Cunard- skipafélaginu, Sir Ivan Thomson, hélt ræðu við skólaslit í brezkum stýrimannaskóla. Skipstjórinn er orðlagður fyrir kímnisögur sínar. Hann sagði skólasveinum meðal annars frá sjóferðum sínum á yngri árum. Hann var eitt sinn stýrimað- ur á flutningaskipi, sem búið var seglum svona til vara, hét það „Cognac“. Var skipið í förum milli Mersey og lítils bæjar í Frakklandi, sem hét Cognac. Þegar skipið var Frakklandsmeg- inn og þurfti að taka vatn, urðu þeir að sækja það í brunndælu uppi í bænum. En á meðan komust konur þar í nágrenninu ekki að. Kunnu þær þessu illa og vönduðu Bretun- um ekki kveðjurnar. Segist skip- stjórinn þá hafa lært mesta fjölda af frönskum orðum, sem ekki séu prenthæf og finnist hvergi í orða- bókum. um. Þá er hafinn undirbúningur að stofnun mjólkurstöðvar í þorpinu á vegum kaupfélagsins. Hafa verið fest kaup á húsi í þessu skyni og vélar fengnar frá Hornafirði. Telja má víst, að þessar framkvæmdir verði mjög til eflingar nautgripa- rækt í byggðarlaginu. Vonir standa til að stöðin geti tekið til starfa næsta sumar. Stöðvarljörður. Hraðfrystihús Stöðfirðinga hefur nýlega selt vélbátinn „Kambaröst" til Patreksf jarðar, en í staðinn tekið á leigu „Berg“ frá Norðfirði, 100 tonna bát. Er hann reiðubúinn að hefja veiðar strax, er sjómanna- verkfallinu lýkur. — Vélbáturinn „Heimir", sem hlutafélag á Stöðv- arfirði gerir út, fór í nokkra róðra áður en verkfallið skall á og veiddi vel, fékk 17 tonn í fyrsta róðri. — Bæði verkfallið og vondar gæftir hafa síðan hindrað róðra, og bregð- ur Stöðfirðingum mjög við frá þvi í fyrra og hittiðfyrra, er mikill land- burður var af fiski. Itrriðdulsvílí. Tveir bátar verða gerðir út á kom- andi vertíð frá Breiðdalsvík, „Akur- ey“ og „Bragi“. Var hinn síðar- nefndi nýlega keyptur þangað frá Siglufirði. Er hann 80 tonn að stærð. Gert er ráð fyrir, að Breiðdælir manni báða bátana sjálfir að mestu eða öllu leyti, og eru góðar horfur á að vaxandi útgerð muni verða jafnt sveitinni sem þorpinu til mik- illar og vaxandi hagsældar. Vórshöfn. Á síðastliðnu ári tók Kaupfélag Langnesinga móti meira magni fiskjar en nokkru sinni áður, skilaði frystihúsið 19.600 kössum. Síldar- vinnsluvélum var komið fyrir í fiski- mjölsverksmiðjunni á Þórshöfn í sumar. S.l. sumar var unnið að byggingu hafnargarðs og standa vonir til að því verki verði haldið áfram á þessu ári. Er hér um að ræða mikið hags- munamál, því eins og er geta aðeins minni skip lagzt að bryggju á Þórs- höfn. Verður því uppskipun að miklu leyti að fara fram með bátum, er flytja vörur milli skips og lands. Kaupfélufi Itellissands. Á s.l. sumri keypti félagið 110 tonna bát frá Noregi. Nefnist hann „Arnkell“. Báturinn hefur verið gerður út frá Rifi í vetur, fyrst á línu, en hefur verið með net seinni- partinn. Síðustu þrjár vikurnar hafa gæftir verið fremur stirðar. Aflinn, sem orðinn er 320 tonn, hefur verið saltaður og hertur, en félagið rekur söltunar- og skreiðarstöð. Skipstjóri á m.b. „Arnkell" er Leifur Jónsson frá Patreksfirði. Starísfrasðsla sjávarútvegs og siglinga. Hinn 5. marz síðastliðinn var hald inn í Sjómannaskólanum starfs- fræðsludagur, að kynna sjávarútveg og siglingar. Skipulagði hann Ólafur Gunnarsson frá Vík í Lóni, sálfræð- ingur Reykjavíkurbæjar. Önnuðust Skipadeild SÍS og Eimskipafélagið þar fræðslu um millilandasiglingar og nutu ágætrar aðsóknar. Voru gestir dagsins á öllum aldri, flestir þó 12—15 ára. (Úr Fréttibréfi Samvinnunnar). — Drekktu eins miki'ö og þú getur af vatni, Jumbo minn! 118 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.