Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Blaðsíða 9
úthaldsdag togaranna árið 1965 frá árinu áður úr 6.88 tonnum í 8,5 tonn. Færri togarar voru á veiðum 1965 en 1964. Verð á er- lendum mörkuðum var ekki lak- ara en árið áður. Þrátt fyrir þetta fór afkoma togaranna hríð- versnandi árið 1965. Ekki var þá minnkandi afla um að kenna. Því er ekki hægt að neita að gömlu togararnir eru orðnir ó- hagkvæmir í rekstri, en það eru ekki einu atvinnutækin hér á landi, sem eru það. Er ekki landbúnað- urinn í þrengingum, svo og iðn- fyrirtækin? Frystihúsin stöðvast hvert af öðru, jafnt þau sem hafa nægt hráefni og hin. Ástæðurnar fyrir þessu eru rekstursfjárskort- ur, sívaxandi tilkostnaður ogdýr- tíð. Hið eina, sem okkur íslend- ingum er sæmandi og hið eina sem væri í samræmi við hags- muni landsmanna allra, er að vinna að frekari útfærslu land- helginnar, svo sem að var stefnt með lögum frá 1948 um vísinda- lega verndun landgrunnsins. Það er hart til þess að hugsa, að í stað þess að vinna að fi’ekari stækkun, þá á að fara að feta sig til baka inn á þau svæði, sem áralanga baráttu þurfti til að fá friðlýst. 1 sambandi við endur- nýjun togaraflotans dettur mér í hug grein sem ég las í sjómanna- blaðinu „Víkingi," þar sem rætt er við einn okkar kunnasta tog- araskipstjóra, Auðunn Auðuns- son, en hann slær mörgum at- hyglisverðum breytingum og nýj- ungum fram. Hann bendir á, að til að bæta úr atvinnumálum norðurlands myndu 10 skuttogar- ar, sem dreift yrði á stærstu ver- stöðvarnar, bæta mikið úr. Hann segir ennfremur, að fyrir norður- landi sé sæmilegur afli frá því í marz og fram í ágúst-september, fiska Englendingar á þessum slóðum með góðum árangri, enda séu þeir svo að segja einir um hituna. Hvar eru þá okkar togar- ar? Við ættum að geta veitt þarna sæmilega eins og hinir erlendu togarar. Ég minnist þess enn- fremur, er ég heyrði um daginn, VfKINGUR að einn af okkar nýjustu togur- um hefði verið aflahæsta fiski- skip í Norðurhöfum, en samt ver- ið rekinn með tapi. Hvað veldur þessu? Mér er spurn, hvernig hægt er að láta gamla enska tog- ara bera sig, jafnvel þótt færri roenn séu á þeim. Varla getur það munað hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum. Það er alltaf verið að minnast á vökulögin. Ef þau skipta svona miklu máli, þá ætti að vera auð- velt að breyta þeim með sam- þykki sjómanna sjálfra, ef greitt væri gott kaup í samræmi við vinnutímann. Ég tel, að það sé ekki svo fráleitt að láta fara fram athugun á þessu meðal sjó- manna, en ekki fyrir milligöngu sjómannafélaganna, sem manni virðast oft fara eftir öðrum ósk- um en sjómannanna sjálfra, og er slæmt til þess að hugsa. En svo ég snúi nú að fiskveið- unum aftur, þá er flestum ljóst, sem kunnugir eru fiskveiðum okkar, hve mikil áherzla hefur verið lögð á aflamagn, en lítil á úrvinnslu hráefnis. 1 rauninni höfum við eingöngu lagt stund á það fram á þennan dag að fram- leiða hráefni, en erum ekki komn- ir á það stig að leggja áherzlu á framleiðslu fullkominnar vöru. Á þessu sviði blasa við ótal mögu- leikar, sem hingað til hafa verið lítið eða ekki nýttir. Framtíð fisk- veiða okkar og fiskiðnaðar hlýt- ur í vaxandi mæli að beinast að eflingu þeirra inn á við í stað ein- hliða áherzlu á aflamagn. Nauðsynlegt væri að koma á fót stofnun, sem hefði það verk- efni að kanna nýjar vinnsluað- ferðir og starfaði að markaðsöfl- un. Vandalaust ætti að vera að finna afurðunum markað, slíkt sem hungrið er í heiminum. — Leggja verður áherzlu á að meira verði gert að rannsóknum á fisk- veiðum, fleiri fiskifræðingar fengnir svo og fullkomin rann- sóknarskip. Stefnt verði að fullum krafti að því að endurnýja togaraflota okkar í samræmi við það, er bezt gerist, svo að hann geti stundað veiðar á fjarlægum miðum. / flestum veðrum atliafna togararnir sig við veiðarnar. Getur fyá á stundum vcrið nokkuð kaldranasamt að fást við trollið. 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.