Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 16
Bátar og íormenn í Vestmannaeyjum Óskar Eyjólfsson. „GuSrún“ 49.00 tonn. SmíSuS í Vestm.eyjum 1943. „Farsœll“ 49.oo tonn. SmíSaSur í Vestm.eyjum 1943. „Týr“ 37.00 tonn. SmíSaSur í Vestm.eyjum 1943. Óskar Eyjólfsson, Laugardal, var fæddur að Hraungerði í Vest- mannaeyjum 10. janúar 1917. Foreldrar Eyjólfur Sigurðssonog kona hans Nikólína Eyjólfsdótt- ir, bæði undan Eyjafjöllum. Ósk- ar ólst upp með foreldrum sínum og fór kornungur að róa með föð- ur sínum. Það var á „Happasæl." Síðar gerðist Óskar vélstjóri og rær með Árna Finnbogasyni á „Vin.“ 1940 kaupir Óskar part í „Tjaldi“ og hafði formennsku á honum í 10 ár. Sótti fast sjó og aflaði vel. Eftir að hann seldi „Tjald“ réðist hann á „Guðrúnu,“ liðlega 50 tonna bát. Hafði hann formennsku á henni í 3 ár. Óskar var þá aflakóngur allar vertíð- irnar í röð. Setti hann met í afla- magni, því aldrei fram að því hafði annar eins afli komið upp úr einum bát, eins og hjá Óskari. Hann fór ekki troðnar slóðir, Frh. á bls. 59 Karl S. Ólafsson, Víðivöllum, er fæddur á Bergi í Eyjum 30. janúar 1915. Foreldrar Ólafur Ingileifsson, formaður og Sigur- jóna Sigurjónsdóttir. Karl byrj- aði sjómennsku með föður sínum 1931. En formennsku 1935 og þá með „Geir Goða.“ Eftir það er hann með „Leif,“ „Mýrdæling,“ „Öldu,“ „Þór,“ „Gísla J. John- sen,“ „Farsæl," „Erling I.“ og „Skúla Fógeta“ er hann átti sjálf- ur að hluta. Síðar er hann með „Gamm II,“ ,,Týr,“ „Emmu II,“ „Guðbjörgu“ og síðast „Isleif I.“ Auk þessa stundaði Karl sjó- mennsku um tíma á togurum, bæði enskum og íslenzkum. Auk sumarsíldveiða fyrirNorðurlandi. Karl var góður sjómaður og fjöl- hæfur við öll verk er að sjó laut. Glöggur og athugull, enda vel kunnur við Eyjar. Hann var góð- ur aflamaður. Karl er nú toll- þjónn í Reykjavík. Steingrímur Björnsson, Kirkju- landi, er fæddur að Kirkjulandi í Vestmannaeyjum 1. febrúar 1912. Foreldrar Björn Finnboga- son, formaður og kona hans Lára Guðjónsdóttir. Með þeim ólst hann upp. Á unga aldri hóf Steingrímur sjómennsku, fyrst á „Unni 111“ með Þorsteini í Laufási, síðar á „Gissuri Hvíta“ með Alexander Gíslasyni í fjölda vertíða. 1939 byrjar Steingrímur formennsku á v.b. „Emmu,“ er hann var með í 4 ár. Síðar er hann með „Hlíðdal 11“ og „Hauk.“ 1943 lét hann í félagi við Kristján bróður sinn og fleiri byggja nýjan 49 lesta bát er hlaut nafnið „Jökull.“ Stýrði Steingrímur honum til árs- loka 1949 er hann seldi sinn hlut. Eftir það er hann með „Týr“ og „Þorgeir Goða II.“ 1952 kaupir hann „Sigrúnu“ ásamt bræðrum Frli. á bls. 59 58 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.