Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Qupperneq 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Qupperneq 25
GuSlaugur Þráinssort, form. starfsmannafélags HafnarfjarSar afhenti formanni B.S.R.B. gjöf allra starfsmannafélaga utan Reykjavíkur. Gjöfin var fundarbjalla. undir orlofsheimili við Hvalf jarð- arströnd, og Geir Hallgrímsson, borgarstjóri afhenti bréf upp á velyrði fyrir lóð handa félags- heimili fyrir BSRB í hinum nýja miðbæ í Kringlumýrarhverfi. Síð- an tók til máls Skúli Þorsteinsson, formaður stéttasambands barna- kennara, en hann afhenti banda- laginu að gjöf málverk af fyrsta formanni BSRB, Sigurði Thorla- cíus, skólastjóra, en hann er sá eini af þeim mönnum er verið hafa formenn bandalagsins, sem látinn er. Síðan kom hver ræðan af annarri, og hver gj öfin af ann- ari, og yrði of langt að telja það allt upp hér, en þessar gjafir, sem ekki hafa verið nefndar hér, voru allar frá aðildarfélögum bandalagsins, og bar þess ljósan vott um þann hlýhug, sem hinn einstöku aðilar innar BSRB bera til heildarsamtaka sinna, og þær þakkir, sem þau vilja sýna for- ustu sinni á merkum tímamótum, og mætti það verða öðrum félög- um hvatning gagnvart sinni heildarforustu. Um BSRB var mikið ritað á afmæli þess, og það að verðleik- um, þessi samtök hafa frá upp- hafi til þessa dags haft að höfuð- viðfangsefni launa- og kjaramál opinberra starfsmanna, og hafa stjórnvöld frá upphafi viður- kenntBSRB sem viðræðuaðila um Kristján Thorlacíus, form. B. S. R. B. VlKINGUR kjaramál starfsmanna ríkis og bæja. Um hin ýmsu baráttumál, og ýmsa þá árangra er náðst hafa, og þau mál, sem enn eru óleyst, er of langt mál til að hægt sé að ræða það hér, þó þess væri að mörgu leyti æskilegt að hægt væri. Farmanna- og fiskimannasam- band Islands dáist af þeim ein- hug og samstarfsvilja er ríkt hefur innan Bandalags starfs- manna ríkis og bæja í aldarfjórð- ung, og einkennt hefur störf þess öll, og svo er árangurinn að sjálf- sögðu eftir því. FFSI þakkar störf BSRB á 25 árum, og árnar þeim allra heilla í framtíðinni, og milli okkar og þeirra þarf að skapast skilningur og vinátta, sem að vísu hefur verið til stað- ar, en þarf að eflast, báðum til trausts og halds. I tilefni af þessu afmæli var gefið út sérstök afmælisútgáfa af Ásgarði, tímariti bandalagsins. Rit þetta er hið fróðlegasta í alla staði, það hefst á ávarpsorðum formanns, Kristjáns Thorlacíus, síðan ritar þar greinar fjármála- ráðherra, Magnús Jónsson, for- menn stjórnmálaflokkanna, þeir Hannibal Valdimarsson,Eysteinn Jónsson, Emil Jónsson og Bjarni Benediktsson. Einnig eiga þar greinar allir fyrrv. formenn BSRB, sem á lífi eru: Lárus Sigurbj örnsson, Guð- jón B. Baldvinsson, Ólafur Björnsson, alþm., Sigurður Ingi- mundarson, alþm., auk núverandi formanns, Kristjáns Thorlacíus. Þar er viðtal við Harald Stein- þórsson, framkvæmdastj. BSRB o.fl., m.a. greinar um hin ýmsu félög innar BSRB. Ábyrgðarmað- ur Ásgarðs er Haraldur Stein- þórsson, kennari. Rit þetta er hið læsilegasta í alla staði og fróð- legt um starfsemi þessara sam- taka. Að endingu endurtökum við okkar beztu árnaðaróskir til BSRB á merkum tímamótum þess. Böðvar' Steinþórsson. 67

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.