Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1994, Blaðsíða 45
VÍKINGUR
og til lífeyrissjóða sjómanna. Skipting
útgreiðslunnar milli fyrirtækja og sjó-
manna leiddi til þess að sjómenn báru
skarðan hlut frá borði, þar sem ekki
var reiknað með fullri þátttöku þeirra í
mngreiðslu í sjóðinn. Ekki var heldur
tekið tillit til ábendinga samtaka sjó-
manna um greiðslur úr Verðjöf-
nunarsjóðnum til lífeyrissjóða sjó-
manna sem leiddu til þess að ekki ein-
ungis fiskimenn, heldur einnig aðrir
félagar, koma til með að njóta
jafngóðs af þessum peningum, þar
sem um var að ræða greiðslur, sem
ekki voru merktar fiskimönnum sér-
staklega.
Á verðjöfnun framtíð
fyrir sér?
Er nokkur þörf fyrir verðjöfnun-
arsjóð, þar sem önnur tæki eru til
staðar sem ná að uppfylla sama mark-
mið, þ.e. að draga úr áhrifum verð-
sveiflna sjávarafurða á þjóðarbúið?
Auðvitað eru til önnur hagstjórnar-
tæki, s.s. gengi og vextir, sem hægt er
að beita til að jafna hina almennu hag-
sveiflu sem orsakast af breytilegu
fiskverði erlendis. En þessi tæki hafa
tvo ókosti sem lítið fer fyrir í verð-
jöfnunarsjóði. í fyrsta lagi hefur geng-
is- eða vaxtabreyting ekki aðeins áhrif
á sjávarútveginn, heldur einnig á aðrar
atvinnugreinar, sem mega kannski
engan veginn við slíkum breytingum.
I öðru lagi eru áhrif af gengis- og
vaxtabreytingum mun hægvirkari en
af verðjöfnun, þar sem hægt er að
segja að áhrifin skili sér samstundis,
að því tilskildu að framboð peninga-
magns sé stillt í samræmi við inn- og
útgreiðslur vegna verðjöfnunar sjáv-
arafurða.
I ljósi reynslunnar má færa fram rök
f>æði með og á móti varðandi áfram-
haldandi verðjöfnun sjávarafurða. Sá
sem þetta skrifar telur að öllu saman-
lögðu að rökin með verðjöfnun vegi
Þyngra á vogarskálunum en mótrökin
°g ígrunda þurfi þann möguleika
gaumgæfilega, hvort ekki sé hægt að
komast að samkomulagi um skilvirk-
an verðjöfnunarsjóð, þar sem hags-
munir útgerðar, fiskvinnslu og fiski-
manna verði tryggðir, þannig að allir
haldi sínum hlut, þegar til útgreiðslu
kemur úr sjóðnum.
Gámur
Ásbjörn RE var aflahæsti togari Granda á síðasta ári, með fjögur þúsund
tonn, mest af karfa. Skiptaverðið á kaifanum var ekki hátt, oftast innan við
30 krónur. Verðið hefur gert allt annað en kæta kappana sem komu með
þennan mikla afla að landi. Á síðasta ári seldi Grandi talsvert af karfa til
ísafjarðar. Fyrir karfann borguðu ísfirðingarnir um 60 krónur fyrir kílóið.
Af þessu má sjá rnuninn á því sem Grandi greiddi og því sem Grandi fékk,
þegar fyrirtækið seldi aflann frá sér.
Með tilkomu farsímans bötnuðu mjög skilyrði sjómanna til að hringja til
sinna nánustu. Útgerðir hafa margskonar aðferðir til að innheimta
símagjöldin af áhöfnunum. Hjá Alla ríka eru menn til dæmis látnir greiða
virðisaukaskattinn af símtölunum og ofan á það allt saman er síðan bætt 20
prósenta álagi. Þeir sjómenn sem Gámur hefur rætt við líkja þessari aðferð
helst við hóteltaxta.
Eimskip er stór olíuinnflytjandi, en það mun vera alsiða að skip þeirra,
sem eru í siglingum til Evrópu, komi hlaðin olíu erlendis frá, olíu sem er
síðan dæll yfir á strandsiglingaskip félagsins.
í vetur hafa netabátar hent miklu magni af fiski. Gámur hefur fregnir af
því að á heilu landsvæðunum þekkist varla lengur að tveggja nátta fiski,
hvað þá eldri, sé landað. Það er sama hversu langar landlegur hafa verið,
samkvæmt því sem bátarnir landa virðist sem fiskurinn gangi eingöngu í
netin síðasta sólarhring fyrir drátt. Þar sem vitað er að þessar aðferðir eru
stundaðar hlýtur að koma að því að málið verði rannsakað.
Lífeyrissjóður sjómanna hefur aðhafst íleira en að kaupa nýtt húsnæði.
Stjó'rn sjóðsins hefur keypt hlutabréf í SR-mjöli fyrir 35 milljónir króna, en
fyrir þá peninga fengust 5 prósent af eignarhluta fyrirtækisins. Ef hámarka
á arð af þessum peningum hlýtur sjóðnum að vera fyrir bestu að sjómenn
fái sem lægst fyrir loðnuna, en ef hugsa á um að sjómenn greiði sem hæst
gjald til sjóðsins er hagur Lífeyrissjóðsins sá að SR greiði sem mest fyrir
loðnuna.
Nú hafa orðið eigendaskipti á Hraðfrystistöðinni í Reykjavík, en Grandi
hefur selt Kvótamarkaðinum húsið. Hér eftir verður ekki verkaður fiskur í
húsinu heldur seldir bílar.
45