Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1997, Síða 27
stöðugleika skipa vegna mismunandi að-
stæðna, svo sem vegna veðurs, hleðslu og
veiðarfæra, sem raskað geta stöðugleika skip-
anna.‘
Ekki skulu hér tíundaðar orsakir þeirra
sjóslysa, sem orðið hafa á síðustu árum, þar
sem stöðugleika skipa hefur verið áfátt að
einu og öðru leyti. Astæða er þó til þess að
nefna hér sérstaklega kæruleysi við frágang á
afla og veiðarfærum. Eru nokkur dæmi þess,
að orsakir sjóslysa megi rekja til þess að afli og
veiðarfæri hafi geymd á þilfari, oft í slæmum
veðrum.
Frágangur á fiski hefur oft verið
óforsvaranlegur, þannig að aflinn hefur kast-
ast til með þeim afleiðingum, að skip hafa
lagst á hliðina og sokkið. I því sambandi ber
eindregið að vara menn við því, af marg
gefnu tilefni, að setja allan aflann í hillur,
þannig að auðvelt sé að láta fiskinn beint í
löndunarmálið. Er í sjálfu sér ekki óeðlilegt,
að menn reyni að létta sér vinnu, en þegar
það er gert með þeim hætti að skipi og áhöfn
er stefnt í hættu, ef eitthvað bregður út af, þá
er ekki hægt að una við slík vinnubrögð.
Augljóst er að gefa þarf þessum málum
sérstakan gaum, enda ætti öllum að vera það
ljóst, hversu þýðingarmikið það er öryggi
áhafna, að stöðugleiki skips sé ætíð fullnægj-
andi.
„Skortur á pólitískum vilja í mars 1984
skipaði samgönguráðherra nefnd níu alþing-
ismanna til að vinna að könnun og tillögu-
gerð um öryggi sjómanna. 1 lok október sama
ár samþykkti nefndin tillögur til samgöngu-
ráðherra.
Ein tillagan er svohljóðandi: „Stöðugleiki
allra eldri skipa verði mældur, svo og þeirra
nýrri, hafi umtalsverðar breytingar verið
gerðar á þeim á byggingartímanum eða síðar.
Prófanir skal gera á þyngd veiðarfærabúnaðar
og settar reglur um frágang afla og í lest og á
þilfari, svo sem um skelfisk og afla sem land-
að er daglega.“
Tillagan nefndarinnar um að mæla
stöðugleika allra eldri skipa hlaut af einhverj-
um ástæðum ekki undirtektir stjórnvalda. í
skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa fyrir árið
1988 er rifjaður upp árangur af rannsóknum
sjóslysa í 25 ár. Þar segir meðal annars:
„Slysum hefúr ekki fækkað ef á heildina er
litið en sumum tegundum slysa hefur fækkað
vegna tillagna til úrbóta sem komið hafa frá
nefndunum og teknar hafa verið til greina.
Þar má helst geta fækkunar slysa við hlera á
togveiðum, fækkun slysa við línu og netaspil,
slysa á mönnum vegna klórbruna, bruna í
skipum o.fl. Á öðrum sviðum hefur ekki
náðst sá árangur sem þurft hefði og mörgum
mannslífum verið fórnað að óþörfu. Þar er
einkum um að ræða skort á pólitískum vilja
til þess að rannsókn færi fram á stöðugleika
allra íslenskra fiskiskipa sem slíkar athuganir
höfðu ekki verið gerðar á. Nauðsyn ber til að
efla stórlega fræðslu til handa skipstjórnar-
mönnum um gildi stöðugleika í öryggi
skipsins og fræðslu fyrir sjómenn um starfið
og hættur þess.
I þeim rannsóknum sem fram hafa farið
kemur skýrt fram að flest dauðaslys hafa
orsakast af skorti á stöðugleika skipa. Annað
hvort byrjunarstöðugleika eða vanþekkingar
skipstjórnarmanna á því hvað stöðugleiki
skips er.“ Ennfremur segir:
„Sú nefnd sem skipuð var árið 1963 komst
að sömu niðurstöðu um orsakir flestra slysa
sem rannsökuð voru og þær nefndir sem
starfað hafa síðan, en ekki hefur verið póli-
tískur vilji fyrir hendi til að gera þær ráðstaf-
anir sem lagt var til af nefndunum að gerðar
yrðu.“ ■
FROZENATSEA
FROM ARCTIC WATERS
SHELL-ON
pboductoficeland
PRODUCT OF iceLAnd
lEYKJAVIKUiraR
AVÍK - SÍMI 55 38383 - FAX 56 82281
GARÐA