Fréttablaðið - 25.07.2009, Side 6
6 25. júlí 2009 LAUGARDAGUR
STÆKKUN EVRÓPUSAMBANDSINS
25. mars 1957
1. janúar 1973
1. janúar 1981
1. janúar 1986
1. janúar 1995
1. maí 2004
1. janúar 2007
Grænlendingar gengu
upphaflega í ESB með
Danmörku árið 1973 en
sögðu sig úr sambandinu
árið 1985 vegna deilna
um fiskveiðiréttindi
þeirra. Þó hafa Græn-
lendingar enn ýmis
viðskiptaleg fríðindi við
lönd ESB. Einnig hafa
þegnar Grænlands ESB-
ríkisborgararétt en mega
ekki kjósa í kosningum til
Evrópuþingsins.
Í Evrópusambandinu eru 27 lönd.
Sambandið á upphaf sitt að rekja til
Kola- og stálbandalags Evrópu, sem
stofnað var árið 1951. Í bandalaginu
voru Ítalía, Frakkland, Vestur-Þýska-
land, Holland, Belgía og Lúxemborg.
Árið 1957 skrifuðu löndin undir
samning um efnahagslega samvinnu
og var þá kominn vísir að ESB.
Árið 1973 gengu Danir, Írar og Bretar
inn í sambandið. Noregur átti að
ganga í sambandið á sama tíma en
aðild var hafnað í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Grikkir gengu í sambandið
árið 1981 og Spánverjar og Portú-
galar fimm árum síðar. Sama ár var
formlegur fáni sambandsins tekinn í
gagnið og eru á honum 12 stjörnur,
fyrir þau aðildarlönd sem voru í
sambandinu árið 1986.
ESB eins og við þekkjum það nú
var stofnað formlega 1. nóvember
1993, með Maastricht-sáttmálan-
um. Í honum er til dæmis kveðið á
sameiginlegan gjaldmiðil, evruna.
Tveimur árum síðar gengu Austurríki,
Svíþjóð og Finnland í sambandið en
þau tvö síðastnefndu voru fyrir í EES.
Árið 2004 var svo stærsta stækkun
ESB þegar Malta, Kýpur, Slóvenía,
Eistland, Lettland, Litháen, Pólland,
Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland
gengu í sambandið.
Þremur árum síðar gengu nýjustu
Rúmenía og Búlgaría inn. Þrjú lönd
bíða enn inngöngu, Króatía, Tyrkland
og Makedónía. Líklegir umsækjendur
næstu árin eru Bosnía og Herse-
góvína, Albanía, Svartfjallaland og
Serbía. Kósovó kæmi einnig til greina
en ESB viðurkennir það ekki sem
sjálfstætt ríki. vidir@frettabladid.is
Stækkun Evrópusambandsins frá 1957
Í sumar mun Brokey, Siglingafélag Reykjavíkur, bjóða upp á
skemmtileg siglinganámskeið og æfngar fyrir börn og fullorðna.
Börn og unglingar:
Fimm daga siglinganámskeið sem fram fer í Nauthólsvík og er fyrir
krakka á aldrinum 10-15 ára.
Námskeiðin standa yfir á milli kl.13:00-16:30 alla virka daga.
Fullorðnir:
Skemmtilegt þriggja kvölda siglinganámskeið þar sem kennt
er á 26 feta seglbát. Farið er yfir það helsta sem hásetar á
seglbát þurfa að kunna.
VILTU LÆRA AÐ SIGLA Í SUMAR
Skráning stendur yfir á www.brokey.is
Nánari upplýsingar í síma 8951551
Fimm innbrot í fyrrinótt
Þrjú innbrot voru í hús í umdæmi
Lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu aðfaranótt föstudags. Einnig var
tilkynnt um tvö innbrot í bíla.
Sparkaði í höfuð lögreglu
Lögregla hafði afskipti af ölvuðum
manni í íbúðahverfi og flutti hann á
brott. Við aksturinn í lögreglubílnum
æstist sá ölvaði og sparkaði í höfuð
annars tveggja lögreglumanna í bíln-
um. Hann slasaðist lítillega en hélt
áfram vaktinni.
Fíkniefni í Hvalfirði
Lögreglan á Borgarnesi og á Akranesi
fóru í sameiginlegt verkefni þegar
bifreið sem ferjaði fíkniefni var stöðv-
uð í Hvalfirði. Lögreglan í Borgarnesi
harðneitar að gefa frekari upplýsingar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNSÝSLA Frumvarp dómsmála-
ráðherra um að bæta við þremur
nýjum sérstökum saksóknurum
við hlið Ólafs Þórs Haukssonar
var samþykkt í gær með atkvæð-
um allra viðstaddra. Allir skulu
þeir uppfylla skilyrði til þess að
vera héraðsdómarar, nema það má
víkja frá aldurshámarkinu, sem
er 70 ár. Lögin öðlast þegar gildi.
Einnig er í frumvarpinu lagt til
að settur verði sérstakur saksókn-
ari yfir málefnum er varða banka-
hrunið en Valtýr Sigurðsson rík-
issaksóknari lýsti sig vanhæfan í
maí síðastliðnum í þeim málum.
Farið verður því með málið eins
og þegar ríkissaksóknari lýsir sig
vanhæfan í einstökum málum. - vsp
Frumvarp samþykkt í gær:
Þrír sérstakir í
viðbót við Ólaf
BANDARÍKIN, AP Húsleit hefur verið
gerð á læknastofu og í geymslu-
rými Conrads Murrey, sem var
einkalæknir
Michaels Jack-
son. Rannsókn
á dauða Jack-
sons beinist
nú aðallega að
Murrey og því
hvort hann hafi
átt þátt í dauða
Jacksons. Mur-
rey var með
söngvaranum
þegar hann dó og reyndi að lífga
hann við. Hann hafði verið ráðinn
sem einkalæknir hans nokkrum
vikum fyrir andlátið.
Lögregla gerði meðal ann-
ars upptæka tvo harða tölvu-
diska, tölvupóst og nokkurt
magn af megrunarlyfjum og
vöðvaslak andi lyfjum. Einnig
fannst uppsagnarbréf frá spítala í
Houston í eigum Murrey. Frekari
upplýsingar hafa ekki verið gefn-
ar. - þeb
Lögregla rannsakar dauða:
Gruna einka-
lækni Jackson
MICHAEL JACKSON
KONGÓ, AP Samkvæmt Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna
hafa um 536 þúsund manns hrak-
ist að heiman í austurhluta Kongó
það sem af er árinu vegna átaka
milli stjórnarhersins og uppreisn-
arhópa Hútúa.
Hútúarnir eru margir hverj-
ir frá nágrannaríkinu Rúanda
og tóku þátt í þjóðarmorðinu þar
árið 1994. Ron Redmond, tals-
maður Flóttamannastofnunarinn-
ar, segir ýmsar sögur ganga af
morðum, nauðgunum og pynting-
um sem Hútúarnir beri ábyrgð á.
Alls eru flóttamenn vegna
átakanna á þessum slóðum orðnir
1,8 milljónir. - gb
Óöldin í Kongó:
Hálf milljón
manns á flótta
Finnst þér að blindir og
heyrnarlausir eigi að greiða
jafnháan skatt og aðrir til
Ríkisútvarpsins?
Já 21%
Nei 79%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú á útihátíð um versl-
unarmannahelgina?
Segðu skoðun þína á visir.is.
ATVINNA Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á þriðju-
dag að greiða flokksstjórum í Vinnuskóla þar í bæ 15
klukkustunda yfirvinnu á tímabilinu júní til júlí. Einn-
ig verður þeim boðið að framlengja ráðningarsamn-
inga sína til 7. ágúst. Þetta var gert til að koma til móts
við kröfur flokksstjóranna sem töldu sig hlunnfarna í
launamálum.
Flokksstjórarnir voru með um 162 þúsund krónur í
mánaðarlaun og engin yfirvinna var í boði. Atvinnu-
leysisbætur eru rétt tæplega 150 þúsund krónur.
Vildu flokksstjórarnir meina að þetta væru afar
ósanngjörn laun þar sem þeir bæru ábyrgð á börnum
á aldrinum 14 til 16 ára. Allir flokksstjórarnir eru
annaðhvort háskólanemar eða útskrifaðir úr háskóla.
Nágrannasveitarfélögin buðu hins vegar töluvert
betri laun. Sömu grunnlaun voru hjá Álftanesi og
Hafnarfirði en í þeim sveitarfélögum var þeim boðin
yfirvinna. Tuttugu tímar á mánuði á Álftanesi og tíu
í Hafnarfirði. Reykvískir flokksstjórar fengu um 170
þúsund krónur á mánuði auk 7.000 króna í matarpen-
ing. Kópavogur greiddi starfsmönnum sínum rétt um
190 þúsund krónur og Mosfellsbær um 166 þúsund.
Auk launa þótti flokksstjórum ósanngjarnt að vera
aðeins ráðnir til 1. ágúst, en starfsmenn Áhaldahúss
Garðabæjar voru ráðnir út ágúst. - vsp
Bæjarráð Garðabæjar ákvað að koma til móts við launakröfur flokksstjóra:
Launabarátta sem skilaði sér
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík-
ur hafnaði í gær frávísunarkröfu
Hollendingsins Peters Rabe í hinu
svokallaða Papeyjarmáli. Því verð-
ur réttað yfir Rabe hér á landi, en
hann er talinn höfuðpaurinn í mál-
inu.
Rabe krafðist frávísunar á þeim
grundvelli að fíkniefnin sem málið
snýst um, ríflega 100 kíló af amf-
etamíni, kannabisi og e-töflum,
hafi verið flutt úr skútunni sem
hann sigldi yfir í gúmmíbát utan
íslenskrar landhelgi. Íslensk lög
næðu því ekki yfir athæfið.
Í niðurstöðu dómara er vísað til
sjöundu greinar almennra hegn-
ingarlaga, þar sem segir að „sé
refsing að einhverju leyti bundin
að lögum við afleiðingar verknað-
ar skuli líta svo á að verkið sé einn-
ig unnið þar sem þessar afleiðing-
ar gerast eða er ætlað að koma
fram“.
Í því ljósi að brot Rabe, að reyna
að koma miklu magni af fíkniefn-
um á markað á Íslandi, beinist
gegn íslenskum hagsmunum, sé
því eðlilegt að rétta yfir honum
hér.
Rabe getur ekki kært þennan
úrskurð til Hæstaréttar, en getur
hins vegar, verði niðurstöðu hér-
aðsdóms í málinu að endingu áfrýj-
að til Hæstaréttar, farið fram á að
frávísunarkrafan verði þá tekin
fyrir á nýjan leik.
Aðalmeðferð í málinu hefst á
mánudag. - sh
Héraðsdómur hafnaði kröfu Hollendings um frávísun í Papeyjarmálinu:
Máli á hendur Rabe ekki vísað frá
PETER RABE Hollendingurinn er talinn
höfuðpaurinn í málinu. Hann hefur
neitað að tjá sig nokkuð um það.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VESTURLANDSVEGUR Eftir áreksturinn
lenti jeppinn á ljósastaur og lenti á
hvolfi. Betur fór þó en á horfðist.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Einn maður slasað-
ist þegar tveir bílar, fólksbíll og
jeppi, skullu saman á Vesturlands-
vegi við Höfðabakkabrú í gær.
Maðurinn slasaðist ekki alvarlega
en var fluttur á slysadeild.
Við áreksturinn fór jeppinn út
af veginum og skall á ljósastaur.
Hann endaði svo á hvolfi við veg-
inn. Ekki fengust upplýsingar um
það hjá lögreglu hversu marg-
ir voru í bílunum né um tildrög
slyssins að öðru leyti. - þeb
Fór betur en á horfðist í slysi:
Lenti á ljósa-
staur og valt
VINNUSKÓLINN Allir flokksstjórar Vinnuskóla Garðabæjar eru
háskólanemar eða með háskólagráðu og fengu 162.017 krónur
á mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
KJÖRKASSINN