Fréttablaðið - 25.07.2009, Side 8
8 25. júlí 2009 LAUGARDAGUR
1 Hversu stóran hlut í HS Orku
keypti kanadíska fyrirtækið
Magma Energy Corporation af
Geysi Green Energy?
2 Hver skoraði jöfnunarmark
KR gegn gríska knattspyrnulið-
inu Larissa?
3 Hver er nýr dómari Gettu
betur-spurningakeppninnar?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 38
■ 28. júní Herinn steypir Zelaya af
stóli og rekur hann í útlegð til Kosta-
ríka eftir að hann hafði reynt að ná
fram stjórnarskrárbreytingu um að
endurkjósa megi forseta.
■ 29. júní Obama Bandaríkjaforseti
segir stjórnarbyltinguna ólöglega.
■ 4. júlí Hondúras rekið úr Sam-
tökum Suður-Ameríkuríkja eftir að
bráðabirgðastjórnin hunsar frest til
að taka við Zelaya aftur í embættið.
■ 5. júlí Að minnsta kosti einn
stuðningsmaður Zelayas lést í mót-
mælum við flugvöllinn í Tegucigalpa
þegar herinn kemur í veg fyrir að
Zelaya snúi heim aftur.
■ 8. júlí Bandaríkjastjórn afturkallar
hernaðaraðstoð við Hondúras.
■ 9. júlí Michaletti og Zelaya fara til
Kostaríka að hitta Oscar Arias forseta.
■ 21. júlí Evrópusambandið aftur-
kallar fjárhagsaðstoð við Hondúras.
■ 23. júlí Samninganefndum mis-
tekst að ná samkomulagi eftir þrjár
samningatilraunir.
■ 25.-26. júlí Zelaya hyggst reyna að
snúa aftur til Hondúras.
ATBURÐARÁSIN
Roberto Micheletti
bráðabirgðaforseti
hafnar tilboði um að
Zelaya verði leiðtogi
þjóðstjórnar.
Bráðabirgðastjórnin
lokar landamærum
til að koma í veg fyrir
að Zelaya snúi heim
frá Esteli.
EL SALVADOR
HONDÚRAS
GVATEMALA
BELÍS
Tegucigalpa
Esteli
Managúa
PANAMA
KOSTARÍKA
San Jose
Zelaya reynir aftur
að snúa heim
Manuel Zelaya hyggst nú um helgina
fara yfir landamærin frá Níkaragva til
Hondúras að endurheimta forseta-
embættið. Stjórnin hótar að handtaka
hann og óttast er að til átaka komi.
NÍKARAGVA, AP Manuel Zelaya hefur
komið sér fyrir í Níkaragva og
ætlar nú um helgina að halda yfir
landamærin til Hondúras. Þar
vonast hann til að endurheimta
forsetaembættið, sem hann var
rekinn úr fyrir mánuði.
Hann hvetur hermenn í Hond-
úras til að sinna ekki fyrirmæl-
um um að handtaka sig og virð-
ist treysta á víðtækan stuðning
almennings.
Á fimmtudaginn ók hann á
jeppa til bæjarins Esteli í Ník-
aragva, aðeins 40 kílómetra suður
af landamærum Hondúras. Strax
í dag eða á morgun stefnir hann
síðan að því að sæta lagi og fara
yfir landamærin.
„Ég er á leiðinni til Hondúras,
og ég vona að flestir íbúar í Hond-
úras geti komist fram hjá eftirliti
hersins, fari til landamæranna og
að þeir óttist ekki hermennina,“
sagði hann á blaðamannafundi á
hóteli sínu í Esteli. „Ég er sterk-
ur. Ég óttast ekki, en ég veit að ég
er í hættu.“
Zelaya segir að enginn árangur
hafi orðið af samningatilraunum,
sem Bandaríkjamenn hafa stað-
ið að.
Zelaya var steypt af stóli eftir
að hann hafði kynnt áform um að
efna til þjóðaratkvæðagreiðslu
um það hvort forseti eigi að fá að
bjóða sig fram til fleiri kjörtíma-
bila.
Bráðabirgðastjórn undir for-
ystu Robertos Micheletti hefur
stjórnað landinu síðan.
Öll ríki á vesturhveli jarðar
hafa fordæmt stjórnarbyltinguna.
Jafnt vinstri- sem hægristjórnir
hafa lýst yfir eindregnum stuðn-
ingi við að Zelaya snúi aftur og
endurheimti forsetaembættið.
Bandaríkjastjórn hefur sagt
að líklega verði Hondúras beitt
refsiaðgerðum ef Zelaya fær
ekki embættið á ný. Á hinn bóg-
inn styður Bandaríkjastjórn ekki
þetta ferðalag Zelayas til Hondúr-
as upp á eigin spýtur. Hætt sé við
átökum.
gudsteinn@frettabladid.is
Zelaya gerir
aðra tilraun
Manuel Zelaya hvetur hermenn til að hunsa fyrirskip-
anir um að handtaka sig. Hann ætlar yfir landamær-
in til Hondúras til að endurheimta forsetaembættið.
LÖGREGLUMÁL Um þrjátíu manna
ferðahópur frá Póllandi greiddi
ekki tjaldsvæðisgjald á Borgar-
firði eystri í gærmorgun. Flýðu
þeir tjaldstæðið áður en þeir voru
rukkaðir, að sögn Lögreglunnar
á Egilsstöðum. Lögreglan reyndi
að sitja fyrir þeim í gær en fyrir-
sátin gekk ekki.
Ferðahópurinn kom með Nor-
rænu á fimmtudag á vegum
pólskrar ferðaskrifstofu, að sögn
lögreglu. Ferðast hann á þremur
hópferðabílum, tveimur gulum
og einum hvítum. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir bif-
reiðanna eru beðnir um að hafa
samband í síma 470-2140. - vsp
Svikulir ferðamenn:
Greiddu ekki
tjaldsvæðisgjald
Þýðingarmiðstöð opnuð
Útibú þýðingarmiðstöðvar utanrík-
isráðuneytisins á Ísafirði hefur hafið
starfsemi. Tveir þýðendur starfa þar
en líklega verður starfsmönnum
fjölgað í haust. 32 starfa hjá þýðing-
armiðstöðinni í Reykjavík, á Akureyri,
Ísafirði og í New York.
VESTFIRÐIR
50%
Ódýrt úr nammibarnum á
LAUGARDÖGUM
Tilboðið
gildir aðeins
á laugardögum
Tilboðið gildir aðeins
á laugardögum
KOSNINGAR Stjórnlagaþing kostar
minnst 362,3 milljónir og mest 442
milljónir samkvæmt frumvarpi
sem Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra lagði fram á þingi í
gær. Gert er ráð fyrir að starfstími
þingsins verði átta til ellefu mán-
uðir. Kostar hver mánuður um 30
milljónir króna auk þess sem stofn-
kostnaður verður um 38 milljónir
króna. Þriðji kostnaðarliðurinn,
um 50 milljónir, er kostnaður við
að útbúa og dreifa kynningarefni
um frambjóðendur.
Þingið á að skipa minnst 25 full-
trúa og mest 31. Ef til þingsins
kjósast minna en 40 prósent af öðru
kyninu verður sex fulltrúum bætt
við. Gert er ráð fyrir að 11,8 millj-
ónir króna fari í launakostnað til
þingfulltrúa á mánuði. Þingmenn
fái því 472 þúsund krónur á mán-
uði ef fulltrúar eru 25. Ef fulltrúar
eru 31 verða þau 381 þúsund krón-
ur, samkvæmt kostnaðaráætlun.
Gert er ráð fyrir að kosið verði
til þingsins samhliða sveitar-
stjórnakosningum árið 2010. Kjör-
gengir eru þeir sem kjörgengir
eru til Alþingis. Forseti Íslands,
alþingismenn, varamenn þeirra og
ráðherrar eru þó ekki kjörgengir.
Þingið, sem á að vera ráðgef-
andi, á að koma saman eigi síðar
en 17. júní 2010 og ljúka störfum
17. febrúar 2011. Getur þingið þó
ákveðið að ljúka störfum fyrr. For-
sætisnefnd stjórnlagaþings skal
hafa eftirlit með því að kostnaður
við þingið rúmist innan fjárlaga.
- vsp
Stjórnlagaþing kostar minnst 362,3 milljónir og mest 442 milljónir:
25 til 31 fulltrúi sitji stjórnlagaþingið
ALÞINGI Laun stjórnlagaþingmanna
verða mest 472 þúsund krónur á
mánuði.
HAAG, AP Vojislav Seselj, leiðtogi
stærsta stjórnmálaflokks Ser-
bíu, var í gær dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi af stríðs-
glæpadómstól
í Haag fyrir að
hafa sýnt rétt-
inum óvirð-
ingu.
Seselj hefur
verið í haldi
dómstólsins
í Haag síðan
árið 2003,
ákærður fyrir
að hafa hvatt serbneska her-
menn í Bosníu og Króatíu til
voðaverka með hatursfullum
ræðum sínum.
Óvirðingin er fólgin í því að
Seselj nafngreindi, í bók sem
hann skrifaði í fangelsinu, vitni
sem höfðu undir dulnefni borið
vitni gegn honum við réttar-
höldin. - gb
Stríðsglæpadómstóll í Haag:
Seselj dæmdur
fyrir óvirðingu
VOJISLAV SESELJ
LANDBÚNAÐUR „Heyskapur hefur
gengið mjög vel sunnanlands
og að mestu leyti um vestan- og
norðanvert landið. Ég veit hins
vegar að uppskeran er minni
norðaustanlands enda var þar
eitthvað um kal í túnum.“
Þetta segir Sigurður Loftsson,
bóndi á Steinsholti í Gnúpverja-
hreppi og formaður Landssam-
bands kúabænda.
Sigurður segir uppskeruna á
sunnanverðu landinu – þar sem
hann þekkir best til – mikla bæði
að magni og gæðum. Heyið sé
gott og sprettan mikil. Þó nokkr-
ir séu farnir að taka annan slátt
og alltaf sé töluvert um að menn
slái túnin þrisvar yfir sumarið.
„Menn eru hættir að tala um
seinni slátt því nokkuð er orðið
um að menn slái þrisvar,“ segir
Sigurður Loftsson bóndi.
- bþs
Heyskapur hefur gengið vel á Suðurlandi:
Mikill fengur að
magni og gæðum
HEYANNIR Á ÁLFTANESI Víðast hvar geta bændur hrósað happi yfir heyfengnum
þetta árið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?