Fréttablaðið - 25.07.2009, Side 26
„Okkur í Taílensk-íslenska félag-
inu langaði til þess að halda mót
fyrir Taílendinga svipað ættar-
mótum Íslendinga,“ segir Phet-
chada Khongchumchuen, formað-
ur Taílensk-íslenska félagsins, um
Taílendingamót sem endurvakið
verður í dag í Grindavík en það
var haldið einu sinni fyrir fimm
árum.
„Taílendinga langar til að
skemmta sér með fjölskyldunni,
öðrum Taílendingum og Íslending-
um giftum Taílendingum,“ segir
Phetchada sem býður þó alla vel-
komna á mótið. „Taílendingamót-
ið er hugsað fyrir fjölskyldur, vini
og vinkonur, fólk úr Reykjavík,
Grindavík og af öllu landinu.“
Skipulagning mótsins hófst í vor
og Phetchada segist renna nokk-
uð blint í sjóinn með fjölda móts-
gesta. „Það gætu komið svona sex-
tíu til sjötíu manns. Ég sendi bréf
til Taílendinga og svo kynnti ég
þetta aðeins á íslensku líka,“ upp-
lýsir hún.
Dagskrá mótsins hefst klukk-
an ellefu þegar Saltfiskssetrið í
Grindavík verður skoðað. „Svo
verður spilaður fótbolti, farið í rat-
leik, hellaskoðun og karókí.“
Á dagskránni er einnig som dam-
salatkeppni þar sem fólk mætir og
gerir som dam-salat sem þekkt er í
taílenskri matargerð. „Og kannski
verður dansað með salatgerðinni.
Vinningshafinn fær 10.000 krónur.
Í som dam-salati er papaja-ávöxt-
ur, tómatar, chilipipar og fisksósa
sett saman. Ef Taílendingar fá ekki
papaja nota þeir stundum rófur,“
útskýrir Phetchada en að hennar
sögn finnst útlendingum som dam-
salat oft vera mjög sterkt.
„Klukkan fimm munu svo allir
borða saman,“ segir Phetchada
en á boðstólum verður taílensk-
ur matur. „Þar verður boðið upp
á grillað svínakjöt og svínaboll-
ur, djúpsteiktar rækjur, núðlur og
vorrúllur, som dam og hrísgrjón.“
Eftir matinn mun taílensk hljóm-
sveit troða upp. „Þá munu allir
dansa og skemmta sér saman.“
martaf@frettabladid.is
Phetchada býður alla velkomna á Taílendingamótið í Grindavík í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Som dam-keppni á Taí-
lendingamóti í Grindavík
Taílendingamót verður endurvakið í dag og fer fram í Grindavík en Taílensk-íslenska félagið stendur fyrir
mótinu. Ýmislegt er á dagskrá, til dæmis som dam-keppni. Fimm ár eru liðin frá síðasta Taílendingamóti.
MÆRUDAGAR standa nú yfir á Húsavík. Áhersla er
lögð á fjölskylduvæna dagskrá þar sem ungir og aldnir
fá að njóta sín. Hafnarmarkaður, myndlistarsýning og
dansleikir eru á meðal þess sem er í boði.
Keppt verður í motocrossi á
Álfsnesi í dag.
Þriðja umferð Íslandsmeist-
aramótsins í motocross fer
fram á keppnissvæði Vélhjóla-
íþróttaklúbbsins í Álfsnesi í dag.
Hátt í hundrað keppendur eru
skráðir til leiks í sex mismunandi
flokkum. Búast má við hörku-
keppni því eins og fram kom í ann-
arri umferð hafa margir bætt sig
frá því í fyrra og baráttan nú harð-
ari en áður. Í öflugasta flokknum
verður eflaust hörð viðureign enda
fremstu ökumenn landsins skráðir
til leiks og fjöldi nýrra ökumanna
sem láta að sér kveða.
Keppni í kvenna- og yngri flokk-
um hefst klukkan 12 og í opnum
flokki klukkan 14.
Þess má geta að leiðin á Álfsnes
frá Reykjavík liggur í gegnum
Mosfellsbæ, beygt er til vinstri
stuttu eftir að komið er fram hjá
nýjasta íbúðarhverfinu áður en
ekið er inn í Kollafjörð, sama
afleggjara og liggur í sorpurðun-
arstöðina.
Nánar á www.motocross.is.
Búist við hörkukeppni
Búist er við harðri viðureign í þriðju umferð motocross. MYND/ÚR EINKASAFNI