Fréttablaðið - 25.07.2009, Page 34
● inni&úti
1. Plastdiskur með blóma-
munstri er tilvalinn í garðpartíið.
Fæst í mörgum litum. Verð 1.190
krónur. Duka.
2. Borðbúnaður
sem kyndir undir
kátínunni í gest-
um. Kökudisk-
ur 4.280 krónur.
Diskur 2.490 krónur.
Kokka.
3. Plastbakki, glös og karafla
í stíl við sólina. Plastbakki á 4.500
krónur. Sagaform-glös, fjögur í
pakka, á 3.500 krónur og karafla á
4.500 krónur. Fæst í Duka.
4. Dúkkulegt kaffisett á pallinn.
Bolli 1.890 krónur. Undirskál
1.250 krónur. Mjólkurkanna 2.990
krónur og sykurkar 1.650
krónur. Kokka.
5. Borðskraut
sem er meðal
annars til þess
fallið að lífga
upp á einlitan
dúk. Duka. Verð
3.284 krónur.
6. Skemmtileg salatáhöld í
sumarsalatið. Tilfinningin er nán-
ast eins og að taka það upp með
puttunum. Duka. Verð 3.490 krónur.
BORÐBÚNAÐUR
sem gleður augu gesta
● Garðveislur eru einhverjar skemmtilegustu samkomur sem um getur og er jafnan létt
yfir fólki sem kemur saman undir berum himni og vætir kverkarnar. Vitanlega er ekki alltaf
hægt að treysta á veðrið en með lopapeysur við höndina má sjá við því. Útiveislur má gera
enn gleði- og girnilegri með því að nostra við umgjörðina um það sem á boðstólum er.
● SVONA ENDAST BLÓMIN BEST Nokkur
kúnst er að halda lífi í afskornum blómum en til þess
eru ýmis ráð. Best er að byrja á því að skáskera alla stilk-
enda með beittum hníf til að opna vatnsæðarnar. Ekki
er gott að klippa þá með skærum því það kremur stilk-
ana og lokar fyrir, að því er kemur fram á heimasíðu
Blómavals. Gott er að stytta greinarnar hæfilega og fjar-
læga öll laufblöð sem gætu lent í vatninu en það dreg-
ur úr hættu á að blómin fúlni. Almenna reglan er að
hafa vatnið við stofuhita og nota blómanæringu en
pakkinn dugar í lítra af vatni. Ef blómanæring er ekki
notuð þarf að skipta um vatn á hverjum degi. - ve
heimili
5
2
3
1
4
6
● KOSTULEG KERTI Sjaldan eða aldrei
hefur matjurtarækt verið eins vinsæl á Ís-
landi og einmitt nú. Þessi skemmtilegu
kerti frá Ginger Rose ættu að smellpassa
inn á heimili þeirra sem hafa fallið fyrir
garðræktinni auk þess að vera fínasta
stofustáss sem mun örugglega vekja at-
hygli. Sjá wwww.
gingerrose.com.
hönnun
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
50%
afsláttur
Mikill raki, kælir húðina og djúpnærir.
Ekkert klístur. Gott eftir sólbruna og rakstur
www.celsus.is Fæst í Apótekum
Lagar magaónot og vanlíðan strax
Eitt hylki eða 2 msk. saf i á dag
www.celsus.is Fæst í Apótekum
25. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR6