Fréttablaðið - 27.07.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.07.2009, Blaðsíða 4
4 27. júlí 2009 MÁNUDAGUR Meira í leiðinniWWW.N1.IS Sími 440 1000 N1 verslanir: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði og Höfn. Föt sem vinna með þér Vinnufötin fást í N1 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 32° 33° 29° 22° 24° 30° 32° 23° 23° 25° 20° 33° 29° 32° 19° 25° 21° 20° Á MORGUN Fremur stíf norðaustlæg átt NV-til, annars hægari. MIÐVIKUDAGUR Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. 16 13 12 14 10 11 10 12 15 14 7 5 9 8 7 6 7 7 11 10 10 7 18 18 12 8 8 11 13 11 9 12 10 14 RIGNING NÆSTU DAGA Upp úr hádegi gengur úrkomusvæði inn á norðaustan- og austanvert landið en það léttir víða til SV- og V-til síðdegis. Á morgun verður hins vegar rigning með köfl um í fl estum landshlut- um en það dregur heldur úr vætunni á miðvikudag. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður GENGIÐ 24.07.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 231,4946 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,57 126,17 206,76 207,76 178,68 179,68 23,997 24,137 20,149 20,267 16,79 16,888 1,3231 1,3309 195,57 196,73 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR SKIPULAGSMÁL Forval er hafið vegna hluta uppbyggingar á bruna- reitnum á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Húsin sem þar stóðu brunnu í apríl 2007. Stefnt er að því að ný hús verði komin í eigu einkaaðila eða útleigu næsta sumar. Reykjavíkurborg keypti lóðirnar og brunarústirnar á horni Austur- strætis og Lækjargötu í nóvemb- er 2007 og maí 2008. Kaupverðið var 583 milljónir króna, en frá því dregst vátrygg- ingarfé vegna brunans. Lóðirnar eru hluti af svoköll- uðum Pósthús- strætisreit, sem afmarkast af Pósthússtræti, Austurstræti, Lækjargötu og Skólabrú. Sam- kvæmt skipulaginu er gert ráð fyrir gönguleið í gegnum miðjan reitinn frá Austurstræti til Skóla- brúar og tengingum út í Lækjar- götu og Pósthússtræti. Þá verður Landfógetagarðurinn endurvakinn í húsaportinu. Húsið að Austurstræti 22, gamla Landsyfirréttarhúsið, verður endurbyggt í upprunalegri mynd. Steypa þarf sameiginlegan kjall- ara allra húsanna og fyrstu hæð á Lækjargötu 2, en húsið sem þar stóð verður sett þar ofan á. Þá er gert ráð fyrir að miðhluti Austur- strætis 20, Svenska húsið og vest- asti hlut þess, Bökunarhúsið, hækki um eina hæð. Húsið er frið- að samkvæmt þjóðminjalögum. Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segir að alls verði settar 500 milljónir króna í verkið á þessu ári. Heildarkostnaður ráð- ist af því hve langt Reykjavíkur- borg fer með verkið. Borgin mun að lágmarki klára ytra byrði hús- anna, en síðan verða þau boðin til kaups eða leigu. Framkvæmdatím- inn verður nýttur til að finna kaup- endur eða leigjendur. Framkvæmdir við Laugaveg 4 og 6 hefjast einnig í haust. Óskar segir að unnið verði samhliða að verkunum. „Þetta er hluti af svo- kölluðu Halland-verkefni, þar sem tengd er saman endurmenntun við endurgerð gamalla húsa. Atvinnu- lausum iðnaðar- og tæknimönnum verður boðin vinna við verkið.“ Borgin hyggst einnig bjóða húsin við Laugaveg út, en byggja í það minnsta upp ytra byrði þeirra. Endanlegur kostnaður við verkið ræðst af því hvenær kaupendur, eða leigjendur, koma inn í rekst- urinn. kolbeinn@frettabladid.is Uppbyggingu lokið við Lækjargötu í vor Forval er hafið vegna uppbyggingar á brunareitnum á horni Austurstrætis og Lækjargötu. Uppbyggingu verður lokið næsta sumar og húsin komin í eigu einkaaðila eða útleigu. Framkvæmdir hefjast einnig við Laugaveg 4 og 6 í haust. LÆKJARGATA OG AUSTURSTÆTI Húsin brunnu í apríl árið 2007. Forval vegna uppsteypu er hafið, en reiknað er með að húsin verði komin í fullan rekstur næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÓSKAR BERGSSON INDLAND, AP Indland hefur sjósett sinn fyrsta kjarorkudrifna kaf- bát og er sjötta landið í heimin- um sem það gerir. Manmohan Singh, forsætisráð- herra Indlands, sjósetti hinn sex þúsund tonna kafbát við form- lega athöfn í gær. Við athöfn- ina sagði Singh að Indland hefði ekki árás í huga með kafbátn- um heldur væri sjórinn að verða mikilvægari í öryggi og vörnum Indlands. Gerðar verða tilraun- ir á kafbátnum næstu árin en fullgerður á hann að geta hæft skotmörk í sjö hundruð kílómetra fjarlægð og taka hundrað sjó- menn. - mmf Indverski herinn: Kjarnorkukaf- bátur sjósettur IRAN, AP Leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Íran, Mir Hossein Mousavi, bað stjórnvöld í gær um að fá að halda minningarathöfn fyrir fórnarlömb átakanna sem brutust út í kjölfar kosninganna 12. júní. Stjórnvöld í Íran hafa þrýst á að fjölskyldur fallinna mótmæl- enda syrgi í einrúmi af ótta við að samkomur hrindi af stað frek- ari mótmælum. Minnst tuttugu mótmælendur létu lífið. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar biðla nú til æðstu klerka í helgu borginni Qom að aðstoða sig í baráttunni. - kbs Stjórnarandstaðan í Íran: Vill minnast hinna látnu FÓLK Söngvarinn Jógvan Hansen söng fyrir Albert II prins af Món- akó í Færeyjum við frumsýningu á myndinni Inuk, um barnaheim- ilið Ummannaq í Grænlandi. Prinsinn var á Grænlandi í apríl og hitti þar fólkið sem vann við gerð myndarinnar. Við það tækifæri var ákveðið að hann myndi vera viðstaddur frumsýn- ingu myndarinnar. Við frumsýningu myndarinnar í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn voru auk Alberts færeyski lög- maðurinn og 300 aðrir gestir. - mmf Jógvan í Færeyjum: Söng fyrir Al- bert af Mónakó JÓGVAN Í SUMARFRÍI Söng fyrir Albert II prins af Mónakó. MYND/FINNUR JUSTINUSSEN UMFERÐ Samkvæmt drögum að frumvarpi til nýrra umferðarlaga verður leyfilegt vínandamagn í blóði ökumanna lækkað verulega, úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill. Þetta þýðir að verði frumvarpið að lögum verður ekki lengur hægt að setjast undir stýri eftir að hafa til dæmis drukkið einn áfengan bjór. Í frumvarpinu er þó gert ráð fyrir því að ökumaður missi ekki ökuréttindi ef hann mælist með 0,2 til 0,49 prómill í blóði sínu við fyrsta brot. Samgönguráð- herra hefur nú frumvarpsdrögin til skoðunar, en þau voru unnin af sérstakri nefnd sem skipuð var til að endurskoða lögin. - sh Breytingar á umferðarlögum: Eftir einn ei aki lengur neinn STJÓRNMÁL Litháenska þingið lýsir yfir fullum stuðningi við aðildar- umsókn Íslands að Evrópusam- bandinu. Utanríkisráðherra Lit- háen, Vygaudas Ušackas, fundaði með Össuri Skarphéðinssyni og Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar á laugardag vegna þessa. Í ályktun þingsins er áhersla lögð á að Litháar hafi ekki gleymt við- urkenningu Íslendinga á sjálfstæði þeirra, 1991. Önnur aðildarlönd eru hvött til að styðja umsókn Íslend- inga. Loks er lýst yfir vilja ríkisins til að deila reynslu sinni af aðildar- viðræðum. - kbs Litháar hafa engu gleymt: Styðja umsókn YFIRLÝSING UM STUÐNING Vygaudas Ušackas og Árni Þór Sigurðsson. KANADA Skemmtiferðaskip hefur lagst að bryggju í Vancouver með dauðan hval á framstefni. Dýrið fannst þegar skemmti- ferðaskipið, Sapphire Princess, undirbjó að leggjast að bryggju eftir ferð frá Alaska. Starfsmenn sjávarútvegsráðuneytis Kanada fjarlægðu hræið af stefninu. Í tilkynningu frá fyrirtækinu Princess Cruise Lines, sem gerir út Sapphire Princess, kemur fram að það viti ekki hvenær eða hvern- ig dýrið festist við skipið. Í til- kynningunni sagði: „Við urðum hissa þegar við uppgötvuðum að dýrið væri fast við skipið, og þykir mjög leitt að þær aðstæður sköp- uðust sem leiddu til dauða hvals- ins. Óráðið er hvernig eða hvenær þetta gerðist, þar sem við höfum strangar reglur um að forðast hvali á stöðum þar sem skipin okkar eru í nágrenni við sjávarlíf.“ Einnig kom fram að fyrirtækið vissi ekki til þess að nokkrir hval- ir hefðu verið í sjónmáli við skip- ið. Að sögn var kanadíska strand- gæslan látin vita þegar hvalurinn fannst. Sapphire Princess er með fjórar sundlaugar, búðir og heilsulindir um borð. Þá siglir hún á sumrin til Alaska en til Mexíkó, Ástralíu og Suður-Kyrrahafsins aðra hluta ársins. - mmf Lagðist að bryggju í Vancouver í Kanada með dauða langreyði á stefninu: Skemmtiferðaskip sigldi á hval HVALUR Á STEFNI Skemmtiferðaskipið Sapphire Princess lagðist að bryggju með hval á framstefni. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.