Fréttablaðið - 27.07.2009, Side 13
Daníel, oftast kallaður Danni,með græjuna góðu sem hann notar við tónsmíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Daníel Þorsteinsson tónlistar-
maður á ekki í vandkvæðum með
að nefna uppáhaldshlutinn sinn,
en það mun vera hljómborð sem
hann keypti í New York. „Ég fann
gripinn í Mannysh, einni helstu
og elstu hljóðfæraverslun í New
York, þar sem við frúin vorum
stödd fyrir nokkrum árum til
að halda upp á afmælin okkar,“
minnist Daníel, eða Danni, eins og
hann er yfirleitt kallaður, um leið
og hann sýnir hljómborðið sem
er af gerðinni Virus og framleitt
í Þýskalandi.
„Þetta var síðasta sinnar teg-
undar í búðinni. Algjör eðalgræja
með góðu sándi og sterk eins og
allt sem frá Þýskalandi kemur,“
segir Danni, en tekur skýrt fram
að ekki sé um safngrip að ræða.
„Þvert á móti þá er tiltölulega
auðvelt að finna svona hljómborð
og á sínum tíma voru þau frekar
ódýr.“ Bætir við að þau hafi þó
sjálfsagt hækkað eitthvað í verði
eftir bankahrun.
Hljómborðið segist Danni helst
nota í tónsmíðar, tölvan hafi ekki
heillað hann sérstaklega hingað
til þótt hann komist ekki af án
hennar. „Nei, ég vil miklu frek-
ar spila þetta á hljómborðið held-
ur en að útsetja einhverja takta í
tölvunni,“ útskýrir hann og nefn-
ir sem dæmi að mörg laga hljóm-
sveitarinnar Sometime, sem hann
er meðlimur í, hafi orðið til út
frá hljómborðsleik. Þar á meðal
smellurinn Catch Me If You Can
og svo nýjasta smáskífa hljóm-
sveitarinnar, Heart of Spades,
sem er nýlega farin að hljóma á
öldum ljósvakans.
Ekki kemur á óvart þegar
blaðamaður uppgötvar við nán-
ari athugun að Virusinn er aðeins
eitt af mörgum hljóðfærum á
heimilinu; þar leynast ýmsir dýr-
gripir. „Ég á meðal annars fjögur
hljómborð til viðbótar, þrjá gítara
og svo trommusett,“ telur Danni
upp, en það síðastnefnda segir
hann hafa fylgt sér frá ferming-
araldri eða um það leyti sem hann
var að stíga sín fyrstu skref í tón-
listariðnaðinum. Um flesta þessa
muni talar hann af mikilli ástríðu
en Virusinn með sínum óviðjafn-
anlega hljómi er þó auðheyrilega
í mestu uppáhaldi hjá eigandan-
um.
roald@frettabladid.is
Eðalgræja frá Þýskalandi
Tónlistarmaðurinn Daníel Þorsteinsson á í fórum sínum forláta hljómborð. Virus kallast það, framleitt í
Þýskalandi og hentar að sögn eigandans vel í tónsmíðar ásamt því að vera til prýðis í stofunnni.
STAGES er yfirskrift listasýningar í París sem hjólreiðakappinn
Lance Armstrong og Nike standa að í fjáröflunarskyni fyrir krabba-
meinsrannsóknir. Meðal verka er þessi mynd eftir Eric White.
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74 – 201 Kópavogi
Sími 515 8700 – www.blikkas.is
Mikið litaúrval
Fr
u
m
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Óseyri 2, Akureyri, 461 1150 • Opið virka daga kl. 12:00-18:00 – laugardaga kl. 12:00-16:00
www.svefn.is
Stillanleg rúm á sumartilboði
Ein besta heilsudýna í heimi
Gerið samanburð