Fréttablaðið - 27.07.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 27.07.2009, Síða 24
16 27. júlí 2009 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Með því að merkja sokka sína vill Bjarni reyna að kynnast mynstri í búferlaflutningum innan heimilisins. Heldurðu að aðrir hunda- eigendur geri hlutina svona? Aðrir hunda- eigendur eiga ekki Bjarna! Hvað er þetta? Uppfinningin mín. Þetta hindrar að þráðlausir símar séu færðir til. Nú fer símtólið aldrei lengra frá símtækinu en sem nemur lengd þessarar snúru. Þú gætir vafið upp á snúruna og kallað hana „síma- snúru“. Heyrðu, hvað veistu um umsóknir um einka- leyfi? Hvernig er að vinna Jóla á jólunum? Hó. Hó. Það er frábært Mjási! Jóli og ég höfum gert samning... Hann fær smákökurnar og ég fæ mjólkina. Frábært! Ég fékk Valentínusardags- gjöf frá öllum í bekknum mínum! Ömurlegt. Ég fékk Valentínusardags- gjöf frá öllum í bekknum mínum. Líka frá stelpun- um. Ó. Ég held að ég sé að verða veikur! Hvernig var í skólanum í dag Solla? Hvernig var í skólanum í dag Hannes? smyrja bílinn hjá Max1 Max1 verðdæmi á ódýrri smurþjónustu Toyota Yaris 1,3 Olía, olíusía og vinna: 9.095 kr. Nissan Almera 1,5 Olía, olíusía og vinna: 9.092 kr. Mazda3 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.370 kr. Ford Focus 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.688 kr. Sparaðu, láttu Smurþjónusta Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Innifalið 2 lítrar af Max1 rúðuvökva Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Fyrir tæpum tveimur mánuðum flutti ég í nýja íbúð. Það gekk voðalega smurt fyrir sig, fyrir utan eitt. Eldhúsborð- ið mitt var of stórt til þess að komast í heilu lagi inn um útidyrnar. Í góða veðrinu sem var þennan dag var ákveðið að geyma borðið bara fyrir utan og ráðast í að taka það í sundur daginn eftir. Það átti víst ekki að vera neitt vandamál. Daginn eftir upphófust vandræðin. Borð- ið var nefnilega með glerplötu, og ég segi frá því vegna þess að á sunnudagsmorgni heyrði ég gríðarleg brothljóð fyrir utan íbúðina. Ég hélt að það hefði orðið árekst- ur miðað við öll lætin en brá frekar mikið þegar ég sá að risastóra glerplatan hafði brotnað í að minnsta kosti tíu þúsund mola. Vandamál númer eitt, en vandræðin end- uðu sko ekki eftir að glerbrotin höfðu verið hreinsuð. Þegar hafist var handa við að reyna að skrúfa borðið í sundur kom í ljós að aðeins of miklum kröftum hafði verið varið í að setja það saman, og skrúfurnar högguðust ekki. Síðustu átta vikur eða svo hefur svo borðið staðið úti og ýmislegt fólk og alls kyns græjur verið fengnar til að freista þess að redda málunum. Það hefur aldrei gengið. Fyrr en nú. Fyrir sameiginlega krafta og aðallega þrjósku mína og mömmu náðist sá merki áfangi loksins um helgina að koma borðinu í sundur, inn í íbúðina og saman aftur. Eina vandamál- ið nú er að borðið fer svo í taugarnar á mér eftir öll vandræðin að ég get varla hugsað mér að setjast niður við það. Saga af eldhúsborði NOKKUR ORÐ Þórunn Elísabet Bogadóttir Ég hélt að það hefði orðið árekstur miðað við öll lætin en brá frekar mikið þegar ég sá að risastóra glerplatan hafði brotnað í að minnsta kosti tíu þúsund mola.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.