Fréttablaðið - 14.08.2009, Side 16
16 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is
og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Smátt og smátt koma afleið-ingar banka- og fjármála-
hrunsins betur í ljós. Ríkis-
reikningur ársins 2008 segir í
raun flest sem segja þarf um
höggið sem ríkissjóður tekur
á sig vegna þess. Hann sýnir
algjöran viðsnúning í rekstri
ríkissjóðs, úr 89 milljarða króna
tekjuafgangi á árinu á undan í
216 milljarða króna halla. Aðrar
tölur tala líka sínu máli, svo
sem þær sem sýna gríðarlega
skuldaukningu hins opinbera og
þunga skuldabyrði þjóðarbúsins
í heild.
Samfélagið allt hefur orðið
fyrir miklu tjóni og verður nú að
axla miklar skuldabyrðar vegna
fjölþættra mistaka sem gerð voru
hér á landi, einkum frá því upp
úr aldamótum og jafnvel fram
yfir bankahrunið. Það er sá raun-
veruleiki sem við þurfum nú öll
að horfast í augu við. Um leið er
mikilvægt að tapa ekki trúnni á
framtíðina því íslenskt samfélag
hefur alla burði til þess að sigr-
ast á erfiðleikunum þótt miklir
séu og í mínum huga er aðeins
eitt orð sem ekki má heyrast,
það er uppgjöf. Með samstöðu
getum við farið í gegnum erfið-
leikana og komið íslensku sam-
félagi á braut uppbyggingar og
framfarasóknar.
Mikið hefur áunnist
Til einföldunar má skipta undan-
förnum mánuðum, misserum og
árum upp í fjögur tímabil: 1)
aðdraganda hrunsins, segjum frá
og með árinu 2002 þegar bank-
arnir voru einkavæddir og til og
með októberbyrjunar 2008. 2)
Tímabil áfallsins sem kom í kjöl-
farið og lýkur með stjórnarskipt-
um 1. febrúar 2009. 3) Millibils-
ástandið sem minnihlutastjórnin
glímdi við og fól í sér fjölþættar
stuðningsaðgerðir til þess að
verja samfélagið og búa sem
best undir kosningar í lok apríl.
4) Að lokum er það tímabil beinna
aðgerða og endurreisnar frá og
með stjórnarskiptum í maí. Á
þeim tíma hefur margt áunnist
og er ástæða til að staldra við
nokkur atriði:
- Víðtækar tekjuöflunar- og
sparnaðaraðgerðir upp á samtals
liðlega 20 milljarða króna til að
aðlaga rekstur ríkissjóðs að gjör-
breyttum veruleika strax í maí
og júní. Í júní var kynnt áætlun
um jöfnuð í rekstri ríkissjóðs á
árunum 2009 til 2013 og skýrsla
lögð fyrir Alþingi ásamt áætlun
um tekjuöflun og sparnað fyrir
árið 2010 og ramma fyrir árin
þar á eftir.
- Gerð stöðugleikasáttmála sem
er mikilvægur til að tryggja sam-
hæft framlag ríkisins, sveitar-
félaganna, aðila vinnumarkaðar-
ins, Bændasamtakanna og fleiri
til endurreisnarstarfsins.
- Samningar íslenskra stjórn-
valda við bresk og hollensk stjórn-
völd í byrjun júní leiddu Icesave-
deiluna til lykta á þann hátt sem
Alþingi fól framkvæmdar valdinu
í desember. Alþingi er nú með
þetta erfiða mál til umfjöllunar.
- Gengið var frá samningum
við Norðurlöndin fjögur í byrjun
júlí um gjaldeyrislán til þess að
byggja upp gjaldeyrisvaraforða
Seðlabankans.
- Tímamótaárangur náðist með
samkomulagi stjórnvalda við
skilanefndir gömlu bankanna
þriggja sem kynnt var 20. júlí.
Einnig er unnið að endurskipu-
lagningu sparisjóðakerfisins.
- Í lok júlí höfðu stjórnvöld
uppfyllt öll skilyrði sem sneru
að fyrstu endurskoðun stjórnar
AGS á áætluninni. Þrátt fyrir það
ákvað AGS að fresta endurskoðun-
inni og voru það vonbrigði, en
öllum má vera ljóst að Icesave-
málið var meginorsök frestunar-
innar.
- Ríkisstjórnin hefur ítrekað
aukið fjárframlög til embætt-
is sérstaks saksóknara og rann-
sóknar hans. Þá hafa aðgerðir
á vegum skattayfirvalda verðið
efldar, m.a. með frumvarpi um
heimild til skattrannsóknarstjóra
til að kyrrsetja eignir.
- Helstu eftirlitsstofnanir fjár-
málakerfisins, Seðlabankinn og
Fjármálaeftirlitið, hafa feng-
ið nýja yfirstjórn og þær verið
efldar.
Fjölmargt annað, sem of langt
mál væri að telja upp, hefur verið
gert og þar má nefna mótun eig-
endastefnu og ákvörðun um fyrir-
komulag eignarhalds ríkisins á
fjármálafyrirtækjum, stofnun
bankasýslu- og eignarumsýslu-
félags.
Skuldir og lífskjör
Þegar fjallað er um þau vanda-
mál sem við tökumst nú á við
er mikilvægt að það sé gert á
málefna legan og upplýstan hátt.
Hafa þarf í huga að Ísland er
ríkt og þróað samfélag með öfl-
uga innviði og gott mennta- og
heilbrigðiskerfi. Ekki má held-
ur gleyma að við eigum öflugt
lífeyrissjóðakerfi og að eignir
lífeyrissjóðanna eru þrátt fyrir
áfall vegna bankahrunsins svip-
aðar eða hærri á mann en olíu-
sjóður Norðmanna er í Noregi. Þá
er gert ráð fyrir að þjóðartekjur á
mann verði innan fárra ára aftur
með þeim mestu í heiminum.
Samanburður við fátæk þriðja-
heimsríki er því óraunhæfur og
fráleitur. Í þeim erfiðleikum sem
steðja að heimilum í landinu er
einnig mikilvægt að halda því
til haga að eitt meginverkefna
stjórnvalda og nýju bankanna er
að tryggja að fólk geti haldið hús-
næði sínu og lífvænleg fyrirtæki
verði áfram í rekstri.
Vísbendingar eru uppi um að
samdráttur landsframleiðslu
verði ívið minni en spáð var og
atvinnuleysisþróun, ef eitthvað
er, heldur hagstæðari. Þá er spáð
um 2-3% hagvexti á ári næstu
árin. Einnig má ekki gleyma
okkar sterku útflutningsgrein-
um: sjávarútvegi, sífellt vaxandi
ferðaþjónustu, nýsköpun, orku-
iðnaði o.fl. sem njóta nú góðs
af gengi krónunnar. Á þessum
sviðum og fleirum eru gríðarleg
tækifæri og oft er það þannig að
þegar kreppir að kvikna fram-
sæknar hugmyndir.
Seðlabankinn áætlar að
heildarskuldir þjóðarbúsins
erlendis muni nema um tvöfaldri
landsframleiðslu í lok þessar árs.
Þó ber að hafa í huga að umtals-
verðar eignir standa þar á móti
og því er hreina skuldastaðan
langt frá því að vera jafn slæm og
þessar tölur gætu gefið til kynna,
eða um 85% af landsframleiðslu.
Ef einungis eru teknar eignir og
skuldir ríkissjóðs fyrir árið 2009
eru hreinar skuldir um 40% af
landframleiðslu og er gert ráð
fyrir að þær muni lækka jafnt og
þétt. Í greinargerðum sem fjár-
málaráðuneytið, Seðlabankinn og
Hagfræðistofnun Háskólans hafa
kynnt að undanförnu í tengslum
við Icesave-málið kemur fram,
jafnvel þó þróunin verði óhag-
stæðari en spáð er, að við höfum
alla burði til þess að komast í
gegnum erfiðleikana.
Þegar tekið er mið af þeim
árangri sem náðst hefur á undan-
förnum mánuðum og þeim mögu-
leikum sem við höfum er engin
ástæða til þess að ætla annað en
að Ísland muni sigrast á erfiðleik-
um sínum og saman mun okkur
takast það.
Höfundur er fjármálaráðherra.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Í DAG | Endurreisn Íslands
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
S
ú var tíðin að því fylgdi smán að þurfa að leita sér aðstoð-
ar vegna hvers kyns vandamála. Fyrir vikið fór fólk með
það sem mannsmorð ef það þurfti á hjálp að halda. Þetta
tíðkaðist við alls konar aðstæður en geðsjúkdómar og
alkóhólismi eru nærtæk dæmi. Meðferð á Vogi var tabú.
Sama gilti um heimsóknir til geðlækna og sálfræðinga. Í þá daga
barðist fólk við fjendur sína uns eitthvað lét undan. Afleiðingarn-
ar gátu orðið hrikalegar.
Þessi tíð er liðin. Fólk veit sem er að ekkert er sjálfsagðara
en að leita sér hjálpar. Það hjálpar ekki aðeins því sjálfu heldur
öllum sem í kring eru. Um leið hefur það gerst að fólk er farið að
tala opinskátt um sjúkdóma sína og hjálpina sem það hefur leitað
sér og fengið. Við það hafa fordómar minnkað. Þeir örfáu sem
ennþá skopast að vandamálum annarra og viðleitni þeirra til að
leita sér aðstoðar eru smáar sálir. Orð slíkra segja ekkert um þá
sem þau beinast að en allt um þá sjálfa.
Nú á íslenska þjóðin í stórkostlegum vanda.
Nokkrir menn sáu til þess.
Og nú þarf íslenska þjóðin á allri þeirri hjálp að halda sem völ
er á. Við vinnum okkur ekki út úr erfiðleikunum ein og óstudd
þótt eflaust sé það ósk einhverra. Alþjóðleg aðstoð er lykill að því
flókna hreinsunar- og endurreisnarstarfi sem þegar er hafið og
standa mun í allmörg ár.
Engin skömm er að því fyrir íslenska þjóð að sækja sér aðstoð
að utan. Þeir einu sem þurfa að skammast sín − og reyndar rúm-
lega það − eru þessir nokkru menn.
Stjórnvöld hafa sýnt að þau ætla að taka á málum af festu og
alvöru. Þótt umdeilt sé hefur Ísland sótt um aðild að Evrópu-
sambandinu og gert milliríkjasamninga um Icesave-reikninga
Landsbankans. Samið hefur verið um lán frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, Norðurlöndunum og fleirum. Unnið er eftir módelum
sjóðsins við endurreisn efnahagslífsins. Erlendir sérfræðingar
hafa veitt ráð við uppbyggingu nýs fjármálakerfis. Ráðgjafi í
rannsókn efnahagsbrota er hér að störfum. Svo dæmi séu tekin.
Þrátt fyrir þetta − og öllu heldur vegna þessa − getum við borið
höfuðið hátt í samfélagi þjóðanna. Við höfum sýnt umheiminum
svo ekki verður um villst að við ætlum að gera það sem þarf svo
við getum aftur staðið á eigin fótum sem fyrst. Um leið verður
vonandi búið svo um hnútana að sagan endurtaki sig ekki. Að fáir
menn geti raskað tilveru heillar þjóðar með braski.
Aðstoð að utan er ekki ókeypis. Um hana er samið og lán þarf
að borga til baka með rentum. Viðsemjendur okkar hafa verið
harðir í horn í taka og afstaða þeirra og skilmálar hafa á stundum
komið á óvart. En framganga þeirra stafar ekki af mannvonsku
heldur hagsmunum. Íslendingar − fyrir utan nokkra menn − ættu
að skilja að lán án sæmilegra trygginga á hvorki að veita né taka.
Íslendingar ættu líka að skilja að lánveitandinn þarf stundum að
hafa vit fyrir lántakandanum.
Sem betur fer þurfum við að hafa fyrir þessari alþjóðlegu
aðstoð. Það styrkir okkur enn frekar í uppbyggingu nýs og betra
samfélags.
Alþjóðleg hjálp er forsenda endurreisnarinnar.
Við getum borið
höfuðið hátt
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Ísland mun sigrast
á erfiðleikum sínum
Samfélagið allt hefur orðið
fyrir miklu tjóni og verður nú
að axla miklar skuldabyrðar
vegna fjölþættra mistaka sem
gerð voru hér á landi, einkum
frá því upp úr aldamótum og
jafnvel fram yfir bankahrunið.
Verst að þeir eru fasistar
Herbert Sveinbjörnsson, formaður
stjórnar Borgarahreyfingarinnar,
birti brot úr stefnuyfirlýsingu
ítölsku grasrótarsamtakanna Frjálsu
hreyfingarinnar á bloggsíðu sinni í
gær. Þótti Herberti sá partur sem
hann birti lýsa því ágætlega hvað
Borgarahreyfingin legði upp með.
Hann upplýsti einnig að Frjálsa
hreyfingin hefði haft samband
við Borgarahreyfinguna og
leitað hófanna með samstarf.
„[S]em væri fínt ef ekki væri
fyrir fasískan undirtón í niður-
lagi stefnuyfirlýsingarinnar. En
sá hluti stefnunnar sem ég
birti hér að neðan er
nokkuð góður.“
Það tókst!
Gengi krónunnar styrktist um 0,86
prósent í gær. Gengisvísitalan
stendur nú í 232,3 stigum. Það
klingdi sjálfsagt í kampavínsglösum á
heimilum þeirra sem spáðu að með
aðildarumsókn að Evrópusamband-
inu myndi krónan ná sér á strik.
Lán eða ekki lán
Að því var vikið á þessum
stað í gær að Björgvin G.
Sigurðsson, fyrrverandi
viðskiptaráðherra, kallaði
það „hugarburð“ sendiherra
Rússlands að íslensk
stjórnvöld hefðu
hafnað láni
frá Rússum
upp á fjóra
milljarða evra í október í fyrra.
Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, tók prúðmannlegar
til orða á heimasíðu sinni í gær
þegar hann sagðist ekki hafa vitað
„um þá skoðun sendiherrans, að
stóru láni Rússa hefði verið hafnað
af þeirri ríkisstjórn, þar sem ég sat
sl. haust.“ Skoðun? Annað hvort
buðu Rússar þetta lán eða ekki
og skiptir engu máli hvað
sendiherra Rússlands finnst
í því sambandi. Björn virðist
með öðrum orðum ekki
mikið trúaðri á fullyrðingar
sendiherrans en Björgvin.
En tekur fram að honum
þyki þær engu að síður
gott fréttaefni.
bergsteinn@frettabladid.is
Bj