Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 40

Fréttablaðið - 14.08.2009, Page 40
28 14. ágúst 2009 FÖSTUDAGURNÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 12 12 16 16 16 L L L G.I. JOE kl. 5.30 - 8 - 10.30 G.I. JOE LÚXUS kl. 8 - 10.30 CROSSING OVER kl. 8 - 10.30 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5 - 8 - 10.10 KARLAR SEM HATA KONUR LÚX kl. 5 ÍSÖLD 3 3D ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 D ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45 ICEAGE 3 ENSKT TAL - ÍSL. TEXTI kl. 3.30 - 5.45 - 8 SÍMI 462 3500 G.I. JOE kl. 5.50 - 8 - 10.10 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9 12 16 L 12 18 16 L STELPURNAR OKKAR kl. 6 - 8 - 10 G.I. JOE kl. 6.30 - 9 FUNNY GAMES kl. 8 - 10.20 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9 ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 5.50 SÍMI 530 1919 12 16 16 16 L MY SISTERS KEEPER kl. 5.30 - 8 - 10.20 CROSSING OVER kl. 5.30 - 8 - 10.30 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5.30 - 8.30 THE HURT LOCKER kl. 8 - 10.45 ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 5.50 SÍMI 551 9000 S.V. MBLÓ.H.T., Rás 2Heimir og Gulli Bítið á Bylgjunni. ATH: Ekki fyrir viðkvæma FRÁ JERRY BRUCKHEIMER ÞEIR ERU NÝJUSTU NJÓSNARAR FBI OG ÞEIR ÞURFA AÐ TAKA HÖNDUM SAMAN TIL AÐ BJARGA HEIMINUM SANDRA BULLOCK RYAN REYNOLDS ANDREW ÞOLIR EKKI YFIRMANN SINN. EN TIL AÐ FÁ STÖÐUHÆKKUN ÞARF HANN AÐ TAKA BÓNORÐI HENNAR BÓNORÐIÐ FRÁ LEIKSTJÓRA „HEAT“ OG „COLLETERAL“ MICHAEL MANN KEMUR EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS „ “ HERE COMES THE BRIBE... FRÁ LEIKSTJÓRA “THE MUMMY” KEMUR EIN FLOTTASTA STÓRMYND SUMARSINS ÁLFABAKKA AKUREYRI KRINGLUNNI G.I. JOE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 12 PUBLIC ENEMIES kl. 5 - 8D - 10:50D 16 PUBLIC ENEMIES kl. 2 - 8 - 10:50 VIP G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 2(3D) - 4(3D) - 6(3D) L G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 1 - 3 L THE PROPOSAL kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 - 10:10 10 HARRY POTTER kl. 5 VIP BRUNO kl. 11 14 THE HANGOVER kl. 8 12 PUBLIC ENEMIES kl. 8:20 - 11 16 G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 2(3D) - 4(3D) - 6(3D) L G-FORCE - 3D M/ Ensk. Tali kl. 6 L THE PROPOSAL kl. 1:30D - 3:40D - 8:20D - 10:40D L HARRY POTTER kl. 2 - 5 - 8 10 BRUNO kl. 11 14 G-FORCE - 3D M/ ísl. Tali kl. 6 L PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 10:50 12 HARRY POTTER kl. 5 7 THE PROPOSAL kl. 8 L FIGHTING kl. 10 12550 Á MERKTAR APPELSÍNUGULU OG 850 Á GRÆNAR SparBíó - bara lúxus Sími: 553 2075 G.I.JOE: THE RISE OF COBRA kl. 2, 4, 5, 8 og 10.20(P) 12 PUBLIC ENEMIES kl. 7 og 10 16 FIGHTING kl. 10.10 14 MY SISTER’S KEEPER kl. 2 og 8 12 ÍSÖLD 3 - Íslenskt tal kl. 2, 4.10 og 6 L - Boston globe 550 kr. í b íó . G i l d i r á a l l ar sýn ingar merk tar með rauðu! POWERSÝNING KL. 10.20 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Leynilegt herteymi er kallað til starfa til að bjarga heiminum frá glæpagengi sem býr yfir stórhættu- legu vopni sem getur eytt öllu sem verður á vegi þess. Líkt og Transformers-myndirnar er G.I. Joe: The Rise of Cobra byggð á samnefndum dótaköll- um frá fyrirtækinu Hasbro. Leikstjóri The Mummy og Van Helsing, Stephen Sommers, er leikstjóri myndar innar og mælt með því að fólk hafi vænting- ar í samræmi við fyrri verk leikstjórans. Í raun er G.I. Joe: The Rise of Cobra bara hávær og grunnhyggin hasarmynd, og sést það best á framleiðslunni; atburðarásin er fyrirsjáanleg, lummuleg samtöl, leikur í samræmi við samtöl- in, hasarinn yfirkeyrður og hvert einasta tækifæri nýtt til að gera bardagaatriðin svöl. Þrátt fyrir það kemur á óvart hversu kjánalega skemmtileg mynd- in er. Flest öll hasaratriðin eru vel gerð og hæfilega mörg, sem hjálpar manni að leiða hugann frá því hversu heimskulegur söguþráðurinn er. G.I. Joe: The Rise of Cobra er enn ein sumar- myndin sem er búin óviljandi hlægilegum samtölum og heiladauðum hasar og eins og með margar aðrar sumarmyndir er hægt að skemmta sér yfir þeim. Gott væri að áhorfendur gerðu sér grein fyrir því að hér er á ferðinni mynd sem er ekki ætlað að rista djúpt. Vignir Jón Vignisson Skemmtilega kjánalegur hasar KVIKMYNDIR G.I. Joe: The Rise of Cobra Leikstjóri: Stephen Sommers. ★★★ Yfirkeyrður hasar, heimskulegur söguþráður og hlægileg samtöl. Skemmtileg ef farið er með réttu hugarfari inn í salinn. „Ég var stangaður af geit,“ segir Hörður Sveinsson ljósmynd- ari. Tilefnið var forsíðumynda- taka Grapevine. „Það var ekkert hræðilegt, bara létt í síðuna. Hún var eitthvað hrædd við myndavél- ina mína og stangaði mig smá.“ Hann segir það í fyrsta skipti sem slíkt hendi sig í starfi, „en vonandi ekki það síðasta.“ Nú, var þetta spennandi lífreynsla? „Já, þetta var ansi skemmtilegt.“ Geitina má sjá á forsíðu Grape- vine, en blaðið kemur út í dag. „Við vorum að taka myndir af hljómsveitinni múm í Húsdýra- garðinum. Okkur gekk eitthvað illa að fá geiturnar að vera með í myndatökunni þannig að við fengum geitanammi og þá urðu þær rosalega æstar. Það var ein þarna í miðri myndatökunni sem var föst uppi á einhverjum steini. Hún var orðin frekar fúl þegar við vorum búin að halda henni og vorum ekkert að hjálpa henni niður. Þannig að hún stangaði mig.“ Hörður gerir þó létt grín að atvikinu og segist ekki vera aumur. Hörður vinnur sem „frílans“ ljósmyndari hjá Grapevine, Mon- itor og fleirum. Hann er í námi í Media Skolen í Viborg í Dan- mörku. „Önnin er ekki nema tíu vikur og svo á maður að vera að vinna á milli.“ Hann á eina önn eftir sem hann ætlar að klára í vetur. Ljósmyndari stangaður af geit HARÐUR AF SÉR Hörður tekur því létt að vera stangaður í síðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR Jói Fel er með haus af hreindýri uppi á vegg í nýju bakaríi sínu. Hreindýrið veiddi Jói sjálfur í fyrra. Bakarinn og sjónvarpskokkurinn Jói Fel opnaði nýtt og glæsilegt bakarí í Garðabæ í gær. Bakarí- ið stendur við Litlatún og að sögn matreiðslumannsins var ekkert til sparað við innréttingar staðarins. „Það eru ekki nema þrír klukku- tímar síðan við opnuðum en mér skilst að það hafi verið mikið að gera hjá stúlkunum síðan. Sjálfur stend ég á haus í framleiðslunni og hef ekkert komist frá ennþá. Þetta er með svipuðu sniði og hin bakaríin, við erum með heitt pasta í hádeginu, risastóran tertukæli, flotta ítalska kaffivél og svo auð- vitað brauðin okkar,“ segir Jói. Mestur hluti innréttinganna var hannaður og smíðaður hér á landi og segir Jói að útkoman sé hreint glæsileg. „Kælarnir, borðin og sófarnir eru allt íslensk hönn- un sem við létum sérsmíða fyrir okkur hér á landi. Málningin er meira að segja íslensk nýjung og kallast kalkmálning. Málararn- ir þurftu að handmála allt rýmið með litlum penslum og voru ekki of kátir yfir því, en útkoman er mjög flott.“ Annað sem mætir gestum bakarísins er stór og voldugur hreindýrshaus sem hangir á veggn- um. Dýrið er kallað Garðar og veiddi Jói það sjálfur í fyrra. „Þetta er karldýr með risastór horn. Ég ætlaði fyrst að hengja hann upp í Holtagörðum en hann passaði ekki inn vegna hornanna, hér er aftur á móti svo hátt til lofts og því endaði hann á veggnum hérna. Hann fékk nafnið Garðar vegna þess að hann prýðir bakaríið hér í Garðabæ og mér skilst á starfstúlkunum að hann hafi vakið þó nokkra athygli meðal viðskiptavina okkar.“ Jói hefur annars í nægu að snú- ast þessa dagana því auk þess sem hann opnaði nýtt bakarí var hann að leggja lokahönd á nýja mat- reiðslubók fyrir Hagkaup og er að hefja upptökur á nýjum mat- reiðsluþáttum. „Það hefur sjaldan verið jafn mikið að gera hjá mér og einmitt núna í kreppunni.“ - sm Hreindýrið Garðar prýðir vegg nýs bakarís Jóa Fel HEFUR Í NÓGU AÐ SNÚAST Matreiðslumeistarinn Jói Fel hefur nóg fyrir stafni í kreppunni, hér er hann ásamt konu sinni Unni Gunnarsdóttur og sést glitta í Garðar í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.