Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1941, Page 3

Samvinnan - 01.03.1941, Page 3
SAMVINNAN 35. árg . 3. hefti Ritstjórar: Jónas Jónsson og Guðl. Rósinkranz. 10 hefti á ári. Kr. 2,50 til kaupfélaga Rvík. marz 1941 Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Afgreiðsla: Edduhúsinu . Sími 2323 Hafnbann á íslandi Mörgum hnyktti við, er þeir heyrðu, að í þýzka rík- isútvarpinu hefði verið tilkynnt algjört hafnbann á ísland. Fólki fannst þetta sem stríðsyfirlýsing, að voldugasta herveldi heimsins hefði nú sagt vopn- lausustu, varnarlausustu og minnstu þjóð heimsins stríð á hendur. Engum gat heldur dulizt, að þetta var alvara, því rétt áður var búið að skjóta niður tvö íslenzk skip alveg fyrirvaralaust og myrða fjölda lslenzkra sjómanna. Allt hafið, já, raunar meira en hafið, hver fjörður og hver vík er lýst hættusvæði, eftir orðalagi hinnar þýzku yfirlýsingar að dæma. Þannig eru nú „vinarkveðjur“ hins ariska Þýzkalands til hinnar litlu, „hrein-arisku“ þjóðar. Vér getum skilið, að það hafi hernaðarlega þýðingu að setja hafnbann áBretland,en að það hafi þýðingu fyrir gang styrjaldarinnar eða úrslit, hvort við, þessir 120 þús- und íslendingar, getum dregið að okkur brýnustu lífsnauðsynj ar eða ekki, fáum vér ekki skilið. Jafnframt því, sem hafnbanni er lýst á landið, láta Þjóðverjar á sér skiljast, með því að lýsa hafnbanni á „dönsku eyjuna ísland“, að hér sé um danska ný- lendu að ræða, sem þeim sjálfum í rauninni beri, af því að þeir hafi hertekið Danmörku. Af þessari yfir- lýsingu er því ljóst, hverja stöðu Hitler ætlar okkur í hinni „nýju Evrópu“. En það er annað að lýsa yfir hafnbanni, heldur en að framfylgja því, enda er það eina von vor. Þjóð- verjar settu algjört hafnbann á Bretland þegar á fyrstu mánuðum styrj aldarinnar, en þrátt fyrir það, hafa skip okkar haldið uppi stöðugum siglingum til Englands, án þess að hafa orðið fyrir verulegum árásum, þar til nú fyrir skemmstu, sem kunnugt er. Skip annarra þjóða og Englendinga sjálfra hafa farið svo þúsundum skiptir til og frá Englandi án þess að verða fyrir árásum. Og vonandi reynist hafn- bannið á ísland ekki haldbetra. Því ekki erum við vel settir, ef ekki er hægt að sigla að og frá landinu. Að vísu er allmikill matarforði nú til í landinu, svo að ekki er ástæða til þess að óttast, þótt siglingar teppist einhvern tíma, og seint munum vér verða sveltir inni, því svo mikil matbjörg er í landinu og við strendur þess. Engin ástæða er því til að örvænta, þótt hafnbann þetta valdi okkur vafalaust miklum örðugleikum. Sjálfsagt er að grípa til sparnaðarráðstafana og láta matarskammtinn endast lengur en til var ætl- ast, enda var hann svo ríflegur, að vel mun það hægt. Við íslendingar höfum kunnað það fyrr að spara, og svo mun enn um flest sveitafólk að minnsta kosti, enda er nauðsyn að kunna það nú, ef verulega þrengir að. Kaupstaðafólki, og þá einkum Reykvíkingum.hefur oft verið borið það á brýn, að þeir spöruðu lítt, og má það vel vera rétt, en ekki trúi ég öðru, en að þeir kunni líka að spara, þegar þeir finna alvöruna og þörfina á sparsemi og fullri aðgæzlu í notkun verð- mætanna. Hafnbannið hefur og að sjálfsögðu áhrif á afkomu atvinnuveganna, því meiri örðugleikum verður bund- ið að koma afurðum okkar á markaðinn en áður, og má því jafnvel búast við einhverri verðlækkun á þeim. Fiskveiðunum stafar þó meiri hætta af hafnbanninu, heldur en landbúnaðinum, því mikill hluti landbún- aðarvaranna selst innanlands, og hafa sölumöguleik- ar þeirra aukizt við dvöl hins brezka hers í landinu. Þrátt fyrir hið nýyfirlýsta hafnbann held ég, að við íslendingar þurfum ekki mjög að kvarta, samanborið við margar aðrar þjóðir, á meðan við verðum ekki fyrir stórfelldum loftárásum, þótt sárt sé að sjá á bak öllum þeim hraustu sonum lands- ins, sem þegar hafa fallið fyrir ofbeldinu. Hve örlagaríkt þetta hafnbann verður fyrir okkur, fer vitanlega eftir því, hvernig „orustan um Atlants- hafið“ fer. Vinni Þjóðverjar hana, verður hafnbann- ið okkur þungbært og örlagaríkt, því þá geta þeir framfylgt hafnbanninu og svelt okkur, ef stríðið stendur í mörg ár, en tapi þeir þessari orustu, verður hafnbannið að engu. Og rétt í því að þessar línur eru skrifaðar, berast fregnir um það, að forsætisráð- herra Bretlands hafi sagt, að hann mundi innan skamms geta fært þjóð sinni þær fréttir, að „orust- an um Atlantshafið“ væri unnin. Gl. R. 35

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.