Samvinnan - 01.03.1941, Page 8
SAMVINNAN
3. HEFTI
Kaupfélag verkamanna á Akureyri
Forvígismaðurinn.
í sambandi við aldarfjórðungsafmæli Kaupfélags
Verkamanna á Akureyri, vildi ég segja fáein orð um
stofnanda félagsins og stjórnanda þess frá fyrstu tíð.
Erlingur Friðjónsson er einn af hinum nafnkunnu
bræðrum frá Sandi í Aðaldal. Hann óx upp í Þing-
eyjarsýslu á þeim árum, þegar háð var hin þráláta
barátta um verzlun héraðsins. Annars vegar var hin
ríka, danska selstöðuverzlun á Húsavík. Hins vegar
Kaupfélag Þingeyinga. Frændur og vinir Erlings
voru á þeim árum einhuga stuðningsmenn kaupfé-
lagsins móti dönsku verzluninni. Hann óx upp í and-
rúmslofti baráttukenndrar samvinnu.
Svo fór Erlingur á búnaðarskólann í Ólafsdal til
Torfa, og var þar í tvö ár. Torfi var þá mikill braut-
ryðjandi í héraðs- og samvinnumálum. Hann var að
öllu samantöldu einhver mesti íslendingur, sem þá
var uppi. í Ólafsdal var lögð stund á að kenna nem-
endum hagnýt vinnubrögð, dugnað, fyrirhyggju og
ráðdeild. Fáir kennarar á íslandi hafa mótað nem-
endur sína jafn örugglega í þjónustu viðreisnarinnar
í landinu, eins og skólastjórinn í Ólafsdal.
Erlingur varð, eins og lærifaðir hans, smiður á
marga hluti, áhugamaður um þjóðlegar framfarir og
eindreginn samvinnumaður. Hann settist að á Akur-
eyri og gerðist þar forkólfur í samtökum hinna varn-
arlausu og sundruðu verkamanna. Þeir gerðu hann
að leiðtoga í margháttuðum félagsmálum. Erlingur
er nú elzti bæjarfulltrúi á Akureyri, og sá, sem á að
baki sér íjölbreytt-
asta starfssrigu.
Hann hefur veriö
eindreginn og ókvik-
ull stuðningsmaður
framfaranna í bæn-
um. í hans tíð hefur
Akureyri orðið hinn
virðulegi höfuðstað-
ur Norðurlands. Og
bæjarstjórnin hefur
átt góðan þátt í
þeim framförum.
Erlingur Friðjóns-
son tók að sér mál-
efni verkamann-
anna í bænum með
einlægni og ósér-
plægni brautryðj -
andans. Hann var forustumaður i verklýðs-
félögunum og í bæjarstjórn. En það var ekki nóg.
Þeir þurftu að eiga sitt samvinnufélag. Erlingur varð
að skapa það og stýra því. Og stjórnin á þessu kaup-
félagi hefur orðið sá þáttur í lífsstarfi hans, sem
mest hefur hlotið af tíma hans og orku. Verður vikið
sérstaklega að því starfi hans í öðrum þætti þessarar
greinar.
Fáir brautryðjendur fá mikla þökk fyrir störf sín.
Svo er um Erling Friðjónsson. Margir verkamenn á
Akureyri hafa farið aðrar og miður
heppilegar leiðir. En Erlingur Friðjóns-
son hefur haldið áfram sína leið og ekki
litið til hægri eða vinstri. Og eftir tutt-
ugu og fimm ár er hann, eins og fyrr, sí-
starfandi fyrir sinn bæ, sitt verka-
mannafélag og sitt kaupfélag. Trú-
mennska hans, einlægni og þolinmæði
við að berjast fyrir málstað, sem er yfir-
gefinn af mörgum, mega gjarna verða
til fyrirmyndar ungum samvinnumönn-
um, sem innan skamms taka við störf-
um og ábyrgð af hinum þýðingarmiklu
brautryðjendum íslenzkrar samvinnu.
J. J.
Erlingur Friðjónsson
Bárujárnsskúrinn, þar sem fyrsta verzlunin var.