Samvinnan - 01.03.1941, Page 10
SAMVINNAN
3. HEFTI
Framh. af síðu 38.
fyrr hafði ég sjálf átt þröskuld til þess að æpa á.
Mér þóttu þessi tíðindi svo stórkostleg, að ég ákvað
að segja Bronson þau. Þess vegna sagði ég við hann,
þegar hann kom að skrifborðinu mínu daginn eftir:
„Nú á ég ekki heima í borginni lengur, Bronson.
Ég hef keypt hús.“
Hann brosti ástúðlega, á sama hátt og hann hafði
brosað, þegar ég sá hann í fyrsta skipti. Hann svaraði,
hlýlegri og aðlaðandi röddu:
„Jæja, litla frú. Hafið þér keypt hús? Ég vona, að
yður farnist vel í því húsi. Mér hefði þótt gaman að
u
Hann ætlaði að segja eitthvað meira, en þá hringdi
síminn. Ég var alltof sæl til þess að hugleiða, hvað
hann átti ósagt, svo sæl, að ég gat í senn unnið verk
mitt og hugsað um hugðarmál mín.
Þessir dagar voru æfintýri líkastir. Ég fór á fætur
fyrir allar aldir, til þess að sjá sólarupprásina, og
þegar ég kom heim, tók ég til við að sáuma glugga-
tjöld, raða bókum og leita að nöfnunum á trjánum í
garðinum og grænu sprotunum, sem gægðust upp úr
brúnni moldinni í blómabeðinu. Á hverjum degi
sprungu út nýir knappar á rósarunnunum, og á
hverju kvöldi gat að líta nýtt sólsetur. Ég get ekki lýst
því, hve hamingjusöm ég var. Ég gaf mér ekki tíma
til þess að matreiða, meðan sólin var að hníga til
viðar, og fram eftir kvöldum gerði ég ekki annað en
að horfa á stjörnurnar tendrast úti í himingeimnum
og bíða eftir því, að tunglið kæmi upp. Það hlýtur að
hafa verið hrifningin og hamingjan, sem gæddu mig
þreki, því að ég nærðist einungis á smurðu brauði og
kakaó, sem ég hitaði úti í garðinum og drakk við
fornfálegt borð hjá eplatrénu.
Len og Lovísa komu og voru hjá mér um helgar,
og barnið kútveltist í grasinu og sleit sundur epla-
blómin, sem fallið höfðu til jarðar. Ég átti hús og
gat boðið til mín gestum, þegar mig fýsti. Ég öðlaðist
sjálfstraust, sem hefði stappað nærri stærilæti, ef
ekki hefði jafn feimin og hlédræg manneskja sem
ég átt hlut að máli.
menn ávaxtað sparifé sitt, og hefur þeim oft
komið það að góðu haldi að eiga dálítinn vara-
sjóð, þegar vel hefur árað, eða þegar þeir hafa
þurft að kaupa sér eitt eða annað sér til bættrar af-
komu. Innlánsdeildin hefur greitt nokkru hærri vexti
en aðrar innlánsstofnanir, og hefur það því verið
nokkur hagur fyrir félagsmenn, en jafnframt fyrir
félagið, sem hefur þannig fengið nokkurt rekstursfé
ódýrara en það hefði getað fengið annarsstaðar.
Síðan innlánsdeildin tók til starfa hefur hún greitt
um 50 þús. kr. í vexti Úthlutaður arður af viðskiptum
Ég keypti ný föt vegna hússins míns: Bláan línkjól,
sem fór vel við augnalit minn, til þess að vera í á
morgnana, bláan kjól úr silki, með breiðu, skarlats-
rauðu belti, til að vera í á kvöldin. Sólin hafði orpið
gullnum blæ á litdauft hárið á mér, blærinn laðað
roða fram í kinnarnar. Mér fannst ég vera ofurlítið
nær því að vera falleg, heldur en nokkru sinni áður
í lífi mínu. Ég held jafnvel, að Bronson hafi veitt at-
hygli þessari breytingu, sem á mér var orðin, því að
hann horfði á mig, þegar ég afhenti honum hand-
ritin, bókstaflega horfði á mig, en það hafði hann
sjaldan gert síðan forðum, að hann kallaði mig litlu
frúna í fyrsta skipti.
Húsið mitt hafði enn djúptækari áhrif á mig. Ef til
vill var það vegna þess, að ég varð að eignast nýja
von, þegar húsið, sem ég hafði lengi þráð, var komið
í eigu mína, ef til vill var það af því, hve oft ég sá
stúlkur og pilta leiðast eftir garðinum, að ég fór að
hugsa meira en áður um ástina og elskhugann, sem
ég hafði aldrei eignazt. Ég ímyndaði mér, að einn góð-
an veðurdag myndi einhver koma gangandi eftir
garðinum til þess að heimsækja mig, fyrst þessi sæg-
ur fólks átti þarna daglega leið um. Þetta var unaðs-
legur draumur. Ég trúði aldrei á þetta, en ég undi
mér við slíka hugóra, þegar ég sat alein úti í garð-
inum í tunglskininu og mér sýndist helzt, að helftin
af æskulýð veraldarinnar gengi tvímenning, hlið við
hlið, eftir vatnsveitugarðinum.
Já, á tunglskinskvöldum fannst mér þessi von ekki
svo fjarstæðukennd. Ég hugsaði aldrei um þess hátt-
ar að deginum. En í glaða sólskini bar það til, að
barið var að dyrum hjá mér.
Ég var með fangið fullt af túlípönum, sem ég ætl-
aði að láta í stóru blómsturkerin hjá arninum. Ég
glopraði blómaknippinu út úr höndunum á mér á
gólfið, þegar ég ætlaði að flýta mér til dyra. Ég tíndi
blómin upp, áður en ég gaf mér tíma til þess að virða
gestinn fyrir mér.
Framh. á næsta hefti.
við félagið og vextir af stofnsjóði nemur samtals 87
þús. kr. í þessi 25 ár, sem félagið hefur starfað. Þetta
hafa félagsmenn sparað með viðskiptum sínum við
félagið.
Félagið hefur verið varkárt og ekki umsvifamikið
til þessa, enda er þetta litla félag á starfssvæði Kaup-
félags Eyfirðinga, stærsta og athafnamesta kaupfé-
lags landsins. Rekstur félagsins hefur þó yerið ör-
uggur, og hagur félagsins er góður. Fasteignir félags-
ins eru metnar á 80 þús. kr„ og stofnsjóður félagsins
og sameignasjóður nema um 95 þús. kr. Gl. R.
42