Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1945, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.04.1945, Qupperneq 23
4. HEFTI SAMVINNAN ANNA FRÁ MOLDNÚPI: „Innan sviga“ „Innan sviga“ heitir ný skáldsaga eftir Halldór Stefánsson. Bókin er ekki neitt stórverk, hvorki á sviói efnis né anda. Það er að segja, hún er ekki löng og söguefnið lágkúrulega illkvittnislegt. Höfundur leiðir fyrst fram á sjónarsviðið umkomu- lausan dreng. Hann lofar í fyrstu ekki svo litlu eftir því, hvernig skapgerð hans er lýst. Hann er rólyndur og ósollhneigður, gæddur sínum sérstæðu hugmynd- um um hlutina umhverfis hann, uppfinningasamur á barnslegan mælikvarða, elskar mest af öllu bláma himinsins og ósnortna tign hafsins. „Hljómar og stef náðu auðveldlega eyrum hans, og frásagnir voru honum sannur veruleiki." Það mætti ætla ,að drengur’ með svona auðsæja listamannshneigð ætti að verða eftirlætisgoð skálds- ins, og með honum ætlaði það að túlka fegurð og samræmi lífsins. En mörgum mun bregða í brún, að hann skuli verða hinn mesti hrakningur sögunnar, sem skáldið hefur á hornum sér út í gegn. Saga lífs hans og dauða renna saman í eitt og verða andláts- saga hans. Uppruna Gvendar, svo er hann jafnan nefndur, er ekki lýst sérlega höfðinglega. Móðir han var sverust að neðan og mjókkaði upp eftir, endaði loks í gráum toppi. Höfuð hennar var, eins og von er til eftir lýs- ingu þessari, ekki sérlega frjótt. Móðurkennd hennar átti rót sína að rekja alla leið niður í dýraríkið. Hana sveið í hjartað, þótt höfuðið gæti ekki ályktað. Fað- erni hans er hulinn leyndardómur. Það eitt fáum við að vita, að hann var getinn í þennan heim eina regn- manneldisráð hér á landi. Má ætla, að það hafi síðan starfað að rannsóknum á fæði þjóðarinnar, þó að almenningi hafi ekki verið birt nema bráðabirgða- skýrsla um árangur þess eða niðurstöður, enn sem komið er. (Sjá: Andvara 1942, bls. 24—36). Ekki verð- ur séð, að það hafi áorkað miklu við löggjafarvald °g landsstjórn til fyrirgreiðslu um útvegun þess varn- ings almenningi til handa, sem sérstök þörf myndi á tíl bættra hollustuhátta. T. d. hafa ávextir verið eins konar bannvara hér um mörg ár, og þegar þeir hafa fengizt, hafa þeir verið tollaðir svo sem væri þeir ulveg sérstaklega viðsjárverður munaður. Hitt mun Þó sönnu nær, að í fæði þjóðarinnar sé ekki eins hiikill hörgull á nokkru bætiefni og því, sem ýmsar tegundir ávaxta eru allra matvæla ríkastar af (C- fjörvi). Eru garðávextir hin helzta uppspretta þessa hér innanlands, en ætla má, að eftir sólarlítil sumur, sem hér koma oft, sé garðauppskeran ekki sérlega hlaðin C-fjörva, þó að rannsóknir hafi að vísu ekki sama haustnótt, þegar ekkert skip var statt þarna við land. Ekki er hægt að renna grun í hugsanir skáldsins. En varla er líklegt, að hann telji Gvend kominn af listamannseðli. Varla getur hann hugsað sér, að list- hneigðin girnist það hold, er hann lýsir í móður Gvendar síns. Þessi konuóskapnaður á þó óskoraðan vilja og viðleitni til þess að hlýða í öllum hlutum settum og viðurkenndum lögmálum þorps síns. Hún er eins og aðrir þorpsbúar, sem lítt taka henni fram, fjötruð í viðjar vanans undir hrammi grimms einokunarkaupmanns aftan úr forneskju, er Jensen heitir (sbr. Bogesen Kiljans). Við fáum fremur ein- falda og ólistræna lýsingu af kaupmanni þessum. Hann ejr um 30 fjórðungar af spiki, en hvers konar form það spik hefur tekið á sig láist skáldinu að lýsa. Sál hans er víst eitthvað ámóta óákveðin, enda er ekki þess að vænta, að þar takist betur til með „sam- setningu frumeindanna.“ Með öllum þessum búnaði um tilkomu Gvendar í heiminn, held ég, að höfundur vilji leitast við að sanna okkur fáfróðum mönnum hið svonefnda Mend- els lögmál, sem er í samræmi við okkar gamla, góða orðtak, að ekki geti komið dúfa úr hrafnseggi. Þetta vissu feður vorir, jafnvel löngu áður en Mendels færði sönnur á það. Það gengur allt stórslysalaust með drenghnokkann, þangað til að sá óheillavænlegi atburður skeður, að hann rambar í kirkju með móður sinni. Þrátt fyrir það, að kirkjan var full af súg, sváfu þar allir nema Gvendur. Hann tekur upp á því, sem sízt skyldi verið hafa, að hlera eftir presti og heyrir sér til mikillar undrunar, að það eru raunar orð, sem presturinn fer með, og meira að segja er hægt að fylgjast með því, sem hann segir. En ekki fæ ég betur séð en höfundur leggi hér fram glögga sönnun fyrir því, að það sé sannleikur, er okkar verið gerðar — eða a. m. k. ekki verið birtar — um mismun í því tilliti eftir árferði. Af framansögðu má ráða, að um sinn er ekki for- göngu að vænta af stjórnarvöldunum til úrbóta þessu málefni. Stuðnings úr sömu átt, svo sem með sann- gjörnum tollaákvæðum eða tollfrelsi á því, sem mestu varðar, er heldur ekki að vænta, fyrr en sterkur al- menningsvilji kúgar þær réttarbætur fram. Menn þurfa því sjálfir að hefjast handa, einir sér eða fleiri saman um það að skapa og umbæta möguleikann til þess, að hægt sé fyrir almenning að færa mataræði sitt í hollustusamlegra horf, og vera jafnframt sam- taka þeim fræðimönnum, sem ábyggilegastar leið- beiningar geta gefið í þessu tilliti, um að útbreiða skilninginn á þörf fyrr umbætur. Og síðast en ekki sízt þurfa menn að verða samtaka um að skapa nýja tízku á þessu sviði, því að geigurinn við það, að breyta til frá venjum umhverfisins, veldur þrálátastri tregðu gegn öllum þörfum umbótum í þessu efni sem öðrum. (Framhald). 127

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.