Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Page 2

Samvinnan - 01.03.1954, Page 2
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími 7080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 40.00. Verð í lausasölu 5 kr. Prentsmiðjan Edda. Efni: Samvinnutryggingar ........ 3 Dráttarvélar .............. 3 Litlafell ................. 4 Fimm menn og sex skip .... 6 Sjónvarp .................. 7 Réttlæti og öryggi ........ 8 Chienniang, eftir Lin Yutang 10 Þrettán skáld í skóla..... 12 Þrjú fræg verk eftir Einar Jónsson................. 15 Viðskiptadeild Háskólans heimsækir SÍS........... 21 Verðlækkunarherferð ...... 22 Skákmeistari ..............23 Sænskt lof um stofnsjóði . . 25 Prosper Mérimée ...........27 Carmen, sögulok........... 28 Marz 1954 XLVIII. árg. 3. 2 ' ‘f ■ " . MEÐ ÞESSU HEFTI er tekin upp sú nýjung í sambandi við útsendingu Samvinnunnar, að blaðið er sent til allra kaupenda í umslögum. Hingað til hefur blaðið verið sent samanbrot- ið, og er það mikill galli, að kaupand- inn skuli fá það brotið, þar sem marg- ir halda ritinu saman og binda það inn. Auk þess var það algengt, að rit- ið væri þvælt og jafnvel skemmt, er það barst til kaupanda, eins og því var áður pakkað inn. VONANDI REYNAST umslögin bót á þessum göllum og leiða til þess, að kaupendur fá ritið óbrotið og óþvælt. Mun afgreiðslan bíða þess með nokk- urri forvitni að heyra, hvort svo verð- ur ekki, og ættu lesendur að láta til sín heyra um það efni. Umslögin, sem notuð eru, kosta allmikið fé, svo að varla verður hægt að nota þau til lengdar, nema þau geri tilætlað gagn. SÚ DEILD SÍS, sem annast inn- flutning á bifreiðum, búvélum og raf- magnsvörum, heitir nú aftur véla- deild, en bar um skeið nafnið búvéla- og bifreiðadeild. Er hún undir fram- kvæmdastjórn Hjalta Pálssonar, og hann veitir einnig Dráttarvélum h.f. forstöðu. Deildin hefur nú byrjað inn- flutning á tveim nýjum bifreiðateg- undum: OPEL bifreiðum frá Þýzka- landi, og koma fyrstu sendiferðabif- reiðarnar á þessu vori, og LEYLAND dieselbifreiðum frá Englandi. Hafa nokkur kaupfélög og Olíufélagið keypt hinar síðarnefndu bifeiðar, en dieselvörubifreiðar þykja mun sparneytnari en benzínvélar. MÖRGUM mun leika forvitni á að lesa kvæðin á bls. 12—14, sem öll eru eftir nemendur úr Menntaskólanum, 16—19 ára unglinga. Mun það vafa- laust gleðja ýmsa, að atómkveðskap- urinn er þó ekki sterkari en þarna kemur fram, og hin hefðbundnari ljóðaform hafa greinilega yfirhönd- ina. — Myndin, sem fylgir greininni, er eftir aðalteiknara skólablaðs Menntaskólans, Jes Þorsteinsson. MYNDIR í þessu hefti eru eftir ýmsa. Jón A. Bjarnason, ísafirði, tók forsíðumyndina af Litlafelli og sést Hafrafell í baksýn. Hinar myndirnar af skipinu og móttöku þess í Reykja- vík tók Vigfús Sigurgeirsson, en hann tók jafnframt kvikmynd af komu skipsins. Myndirnar af viðskipta- nemum í heimsókn hjá SÍS tók Þor- valdur Ágústsson, starfsmaður hjá bókaútgáfunni Norðra. Myndirnar af verkum Einars Jónssonar eru um 30 ára gamlar og voru teknar í Kaup- mannahöfn, en góðfúslega lánaðar af listamanninum. LEIÐRÉTTING JÓN SIGURÐSSON, Yztafelli, skrif- ar grein í síðasta hefti Samvinnunnar um raforkumál. f greininni segir svo: „En ekki var þingið fyrr komið sam- an en stjórnin hafði albúið fjárlaga- frumvarp, þar sem brigður voru á lof- orðunum, og borið við fjárþröng.“ Hér er ekki rétt með farið, og þarf leiðréttingar við. í málefnasamningi flokkanna um stjórnarmyndun segir svo í kaflanum um raforkuframkvæmdir: „í þessu skyni verði lögboðin árleg framlög af ríkisfé aukin um 5—T milljónir króna ....“. í samræmi við þenna samning voru framlög af ríkisfé til raforkufram- kvæmda aukin um 7 milljónir króna í fj árlagafrumvarpi því, sem lagt var fram í byrjun yfirstandandi Alþing- is og nú er orðið að lögum. Var því fjárlagafrumvarpið nákvæmlega í samræmi við stjórnarsamninginn og fyllilega staðið við það, sem heitið var í samningnum um bein fjárframlög ríkissjóðs. Á sama hátt verður auð- vitað staðið við önnur ákvæði stjórn- arsáttmálans. Eysteinn Jónsson.

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.