Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1954, Qupperneq 6

Samvinnan - 01.03.1954, Qupperneq 6
sjálfsögðu framkvæmdastjóri hinnar hraðvaxandi skipadeildar SIS, Hjört- ur Hjartar, framkvæmdastjóri Olíu- félagsins, Jóhann Gunnar Stefánsson og ýmsir fleiri. Þegar íslenzki fáninn hafði verið dreginn að hún og skip- inu hafði verið gefið hið íslenzka nafn sitt, var samstundis byrjað að mála nafnið á skipið, en nafn hinnar sænsku ungfrúar hvarf af því. Þá ávarpaði forstjóri SlS, Vilhjálmur Þór, Bernharð Pálsson skipstjóra nokkrum orðum, fékk honum skipið til stjórnar og varðveizlu og óskaði honum og áhöfn hans alls hins bezta. Þá var hinum sænsku sjómönnum og sér í lagi skipstjóra þeirra, þakkað fyrir að sigla skipinu heilu og höldnu til hins nýja heimalands. Þegar að lokinni þessari athöfn tók hin nýja áhöfn til óspilltra málanna að búa skipið í fyrstu ferð sína, og síðdegis á laugardag flutti það sig að olíubryggju við Örfirisey, tók fyrsta íslenzka farm sinn og sigldi af stað til heimahafnar sinnar á ísafirði. Hin- ir sænsku sjómenn kvöddu „Maud“ sína og létu í Ijósi ánægju sína yfir því, að hún virtist vera í góðum hönd- um. Gengu þeir síðan á land, en fóru Bernharð Pdlsson skipstjári. síðan í boði SÍS og Olíufélagsins í smáferð um bæinn og nágrenni hans, en snæddu að lokum kvöldverð sam- an. Flugu þeir flestir heimleiðis á sunnudagsmorgun. VIÐHÖFN Á ISAFIRÐI. Síðdegis á sunnudag kom Litlafell til Isafjarðar, og var þá fjöldi manna staddur á bryggjunni til að fagna skipinu. Hjörtur Hjartar, fram- kvæmdastjóri flutti þar skörulega ræðu, en skipstjórinn lýsti skipinu. Síðan tók til máls Birgir Finnsson, formaður Kaupfélags Isfirðinga, og bauð hann skipið velkomið fyrir hönd bæjarins og félagsins, en að lokum var hrópað ferfalt húrra fyrir skipinu og áhöfn þess. Eftir þetta var bæjar- búum boðið að skoða skipið og voru menn sammála um, að frágangur þess og fyrirkomulag allt væri hið ágæt- asta. Eftir þetta bauð kaupfélagið áhöfn skipsins, bæjarstjóra, bæjarfógeta og ýmsum öðrum til kvöldverðar að Norðurpólnum. Þar tóku til máls Birgir Finnsson, Hjörtur Hjartar, Jó- hann Gunnar Ölafsson bæjarfógeti, Ketill Guðmundsson kaupfélags- stjóri og færði hann skipinu að gjöf mynd af ísafirði. Skipstjóri þakkaði. Var af öllu auðséð, að almenn ánægja ríkti á ísafirði með komu skipsins og staðsetningu þess þar. LÝSING SKIPSINS. Litlafell er þriggja ára gamalt skip, og hefur fram farið á því klössun sú, (Framh. á bls. 20) Fimm menn og sex skip Margir gestir, sem heimsótt hafa skipadeild SÍS, hafa látið í ljós undrun sína yfir því, að hún skuli ekki vera miklu stærri og fyrir- ferðarmeiri en raun ber vitni. Eins og nú standa sakir stjórnar þessi deild algerlega sex kaupskipum, og þarf öðru hverju að taka leigu- skip til viðbótar. Þó starfa aðeins fimm karlmenn og tvær stúlkur í deildinni! Þess ber að geta, að nokkurn hluta bókhalds og gjald- kerastarfa annast aðalskrifstofa SÍS fyrir deildina, en samt er geysimunur á þessum starfsháttum og þeim skrif- stofubáknum, sem hafa viljað hlaðast utan um útgerð hér á landi. Á þessu ári bætast tvö skip í sam- vinnuflotann, svo að óhjákvæmilega verður starfsfólki skipadeildar eitt- hvað fjölgað, enda varla von að það sé færra en einn maður og ein stúlka fyrir hvert skip! En samt sem áður er rekstur deildarinnar svo hagkvæmur, að til hreinnar fyrirmyndar telst hér á landi. Hjörtur Hjartar hefur nú um árs skeið verið framkvæmdastjóri skipa- deildar og vinnur hann þau störf af dugnaði og festu. Hjörtur er Dýrfirð- ingur að ætt og aðeins 37 ára gamall. Þó á hann að baki sér langan starfs- feril hjá kaupfélögum landsins, — starfaði fyrst í Kaupfélagi Dýrfirð- inga og lauk samhliða námi við Samvinnuskólann 1937. Síðan varð hann kaupfélagsstjóri Önfirðinga á Flateyri og tók eftir það við stjórn Kf. Siglfirðinga. Hann ger- þekkir því vandamál og þarfir kaupfélaganna, sem skipin sigla fyrir, og er staðráðinn í því að reka samvinnuskipin í samvinnu'mda. Eitt sinn, er gestur spurði hann, hvort skipin væru ekki of lítil, svaraði hann: „Ef ætlunin væri einungis að græða á þeim, eru þau vissulega of lítil. En til þess að annast þá þjónustu, sem þeim er ætlað fyrir dreifbýli jafnt sem þéttbýli, eru þau af réttum stærðum.“ Aðrir starfsmenn skipadeildar eru Hans Daníelsen, ungur Norð- maður, sem settist að hér á landi í styrjaldarlok og hefur starfað við deildina frá byrjun, Sveinn Haukur Valdimarsson, Kjartan P. Kjart- ansson og Jóhannes Jörundsson. Starfsstúlkur eru Jóhanna Guðna- dóttir og Katrín Guðjónsdóttir. ] —-----------------------—------------------------------------------- 6

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.