Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Side 11

Samvinnan - 01.01.1959, Side 11
VINNUHERBERGI FYRIR HÚSMÓÐURINA Á fjölmörgum heimilum er aöstaðan þannig-, að nálega ekkert afdrep er fyrir þá mikilvægu starfsemi húsmóðurinn- ar, sem lýtur að saumaskap og viðgerðum á fatnaði og öðru. Margar húsmæður spara þó heimilinu stóra fjárhæð með því að sauma sjálfar á sig fötin og einnig á börnin. Teikningin hér að ofan sýnir herbergi, sem hefur verið gert að vinnuherbergi húsmóðurinnar. Þar er pláss fyrir strauborð, saumavél ásamt vinnuborði, „gína“ til að máta föt á og mjög haglega gerður skápur fyrir snið. Hann er á hjörum að neðan og hurðin fyrir honum verður að vinnuborði, þegar hún er Iátin niður. Lampinn yfir saumavélinni er mjög þægilegur á þann hátt, að húsmóðirin getur látið hann lýsa á hvern þann stað í námunda við saumavélina, sem henni hentar hverju sinni. — Finnst þér erfitt að gera mönnuni til hæfis? — Það læt ég vera, betra en við mætti búast. Kröfurnar eru auðvitað margar og ólíkar. Sumir vilja hafa nýju fötin ,,bara eins og þau gömlu“, en það er ann- ars undravert, hvað bæði ungir og gamlir vilja fylgjast með tízkunni. Það koma til dæmis oft til okkar menn utan af landi, sem fá sér ekki oft föt, en þeir vilja gjarnan, að fötin séu eftir nýj- ustu tízku. Þannig hefur það að minnsta kosti verið síðan ég kom hingað og ég er nú búinn að vera hér síðan um áramótin 1952. Þá var Björn Guðmundsson einn klæðskeri hér, þá nýlega kominn frá Ameríku. Hann fór skömmu síðar, en siðan hafa yfirleitt verið tveir klæðskerar hér. Nú er mcð mér Haukur Ingimund- arson, vestfirzkur að ætt og hinn mætasti maður. Við vinnum þetta í sameiningu, — og það ber ekki á öðru en að það gefizt mjög vel. Auk okkar Hauks vinna hér tveir klæðskerar. Þeir eru við fatasauminn. Svo höfum við tvo pressara og meira en þrjátíu úrvals dömur við saumaskap- inn. Við verzlunina niðri og skrifstofu- störf í sambandi við hana vinna átta manns. Eg sé, að ekki má tefja klæðskerann öllu lengur, því það er kallað á hann úr öllum áttum. en ég spyr hann að lokum að því, livað hafi í upphafi vakið áhuga lians á þessari iðn. — Það var nú aðallega móðir mín, sem hvatti mig til þess að verða klæð- skeri. Eg lærði hjá Andrési Andréssyni, en hætti hjá honum skömmu síðar og hóf störf hér í Gefjun. Harry Frederik- sen, framkvæmdastjóri iðnaðardeildar, átti forgöngu um að ég fór til Svíþjóðar og vann um tíma í fataverksmiðju sænska sambandsins, Kooperativa För- bundet. Þar fékk ég að ganga gegnum verksmiðjuna og vinna það sem ég kærði mig um og ég álít, að ég hafi haft Sií ómetanlegt gagn af því námi. Klæðskerarnir í Gefjun athuga stranga af nýju sportfataefni. Þeir segja, að nú orðið standist fataefnin frá Gefjun alveg samanburð við útlenda framleiðslu. SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.