Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 14

Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 14
Pétur Jónsson ina, skilsemina; í stuttu máli drengskap- inn.“ „Kaupfélögin eiga langa og heillaríka framtíð fyrir höndum, ef meðlimir þeirra hafa þessi þrjú meginatriði jafnan fyrir augum: að leita sannleikans, að haltra eigi til beggja hliða, og að styðja hina fátæku,“ segir Sigurður í Yztafelli. „Og það er ekki einungis í kaupskap og verzlun, að þetta skipulag — samvinna og sjálfsábyrgð — er framkvæmanlegt og hentugt; það er hvarvetna hægt að koma því við, og hvarvetna mun það reynast réttlátara og farsælla en nokkurt annað fyrirkomulag, sem reynt hefur verið,“ segir Benedikt frá Auðnum. „Kaupfélögin ættu að vera um allt land, sitt umhverfis hverja höfn, og öll standa í sambandi, líkt og þjóðfélögin í Sviss eða Ameríku.---------Erindisreka ætti þessi úníón að hafa á fáeinum stöð- um erlendis.--------Hún ætti að hafa eitt eða fleiri gufuskip á stöðugum gangi stöðuverzlunum um land allt. Það tók upp þráðinn frá fyrra sambandinu um útgáfu tímarits til fræðslu og kynningar og nú í miklu stærri stíl, og það stofnaði skóla fyrir samvinnumenn. í þjónustu þess völdust hinir ágætustu menn. Sam- starf samvinnuleiðtogans Hallgríms Kristinssonar og Péturs á Gautlöndum var skuggalaust. Þeir virtu hvor annan og hinir óvenjulegu hæfileikar hvors um sig nutu sín vel í samstarfinu. Var það mikil gæfa fyrir samvinnumenn og þjóð- ina alla. Þegar þessir forustumenn báðir hnigu í valinn með eins árs millibili, skil- uðu þeir Sambandi íslenzkra samvinnu- félaga í hendur þeirra, er við tóku, traustu, viðurkenndu þjóðþrifafyrirtæki. Þeir höfðu lagt grundvöllinn að flestu því, er fram hefur komið, af mikilli fram- sýni, gætni en festu. Þannig greri og blómgaðist samvinnu- hreyfingin allt í kring um Pétur frá Gautlöndum og út frá honum. Páll H. Jónsson, kennari á Laugum: ALDARMINNING Péturs á Gautlöndum IX Jafnframt því sem Kaupfélag Þingey- inga blómgaðist undir stjórn Péturs á Gautlöndum og samherja hans, stunduðu þeir félagar útbreiðslustarfsemi. Kaupfé- lögum fjölgaði. Og fyrir forgöngu Péturs stofnuðu 5 kaupfélög með sér samband árið 1895. Var stofnfundur í Reykjavík og sóttu hann 9 alþingismenn. Tilgangur sambandsins var sá, „að vinna að út- breiðslu og eflingu kaupfélagsskaparins hér á landi, að auka sem mest kunnug- leika og traust hinna ýmsu kaupfélaga sín á milli og að koma á samvinnu milli félaganna í hinum ýmsu áhugamálum þeirra.“ Samband þetta hlaut nafnið „Samband íslenzkra kaupfélaga“. Til þess að ná settu marki skyldi gefið út tímarit, „Tímarit kaupfélaganna“. Pétur Jónsson var kosinn formaður sambandsins og rit- stjóri tímaritsins. Af því komu út tvö hefti, 1896 og 1897. Þá leið þetta samband undir lok. Þessi tvö tímaritshefti Péturs Jónsson- ar hafa ómetanlega sögulega þýðingu. Þau eru glöggur vitnisburður um sam- vinnuleiðtogana í Þingeyjarsýslu. Þau skýra eðli og tilgang kaupfélaganna og þau eru spá inn í framtíðina. „Neyðin hefur kennt oss að spyrna gegn ánauð, ofríki og afvegaleiðslu hinnar dönsku selstöðuverzlunar hjá oss. Hún hefur kennt oss að sameina krafta vora, og það er vonandi, að hún kenni oss að sníða oss stakk eftir vexti,“ segir Pétur. Og enn fremur: „------— eða hvernig færi, ef aldrei væri nein tiltrú til, bara tor- tryggni, sínagandi, kitlandi, kveljandi tortryggni? Þá yrði náttúrlega engin trú- mennska til; því tiltrúin ein og ekkert annað elur upp trúmennskuna, orðheldn- Síðari hluti aftur og fram--------,“ segir Einar í Nesi. „Tímarit kaupfélaganna", undir stjórn Péturs á Gautlöndum, er enn og mun verða játningabók íslenzkra samvinnu- manna. Árið 1902 stofnuðu kaupfélögin í Þing- eyjarsýslum, sem þá voru þrjú, með sér nýtt samband. Var stofnfundur þess í Yztafelli. Enn var Pétur Jónsson kosinn formaður. Var hann það fyrstu 3 árin, síðan tók Steingrímur bróðir hans við for- mennskunni í 5 ár, en þá Pétur allt til æviloka. Samband þetta hét til að byrja með Sambandskaupfélag Þingeyinga; nokkrum árum síðar var nafni þess breytt í Sambandskaupfélag íslands og árið 1909 í Samband íslenzkra samvinnufé- laga. Eins og hið fyrra samband hafði verið fræðslu og kynningarsamband, varð nú þetta hið síðara baráttu-samband. Varð þróun þess og vöxtur hliðstæður vexti og viðgangi hinna elztu kaupfélaga frá byrj- un. Barátta þess fyrir sameiginlegum innkaupum, sameiginlegri sölu innlendra afurða og markaðsleitum á erlendum slóðum var hliðstæð baráttunni gegn sel- X Um margra ára skeið var Pétur Jóns- son umboðsmaður þjóðjarða í héraðinu. Það var mikið starf og krafðist mikilla ferðalaga. Þurfti í sambandi við það mörg vandamál að leysa. Til þess var Pétur rétt kjörinn vegna mildi sinnar, réttlætiskenndar og þekkingar á mönn- um og málefnum. Hann var mannasætt- ir. Sjálfur taldi hann göfugast þeirra starfa, er hann hafði með höndum, að sitja í sáttanefnd. XI Af framanrituðu má glögglega sjá, að Pétri Jónssyni muni hafa orðið tafsamt frá búskapnum á Gautlöndum og uppeldi barna sinna, sem hann vildi þó umfram allt sinna. Fjárhagur hans var oft og tíð- um þröngur og hann var þjakaður af á- hyggjum útaf heimili sínu og hinum margvíslegu, vandasömu trúnaðarstörf- um. Hann skrifaði mikið af blaða- og tíma- ritagreinum um félagsmál, atvinnumál, fjármál og margt fleira. Hann vandaði ritsmíðar sínar og eyddi til þeirra mikl- um tíma. Hann sagði sjálfur, að eigi dygði minna en að þrískrifa hverja grein, ef vel ætti að vera. Framsetning hans var ljós og auðskilin og leit hans að rökum í 10 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.