Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 17

Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 17
hleypt út og skipverjum tilkynnt hvert halda skyldi. Sjóherinn sendi út fréttatilkynningu um að næstu vikur yrði Nautilus við æf- ingar út af vesturströnd Bandaríkjanna. Aðeins örfáir menn vissu hvert ferðinni var heitið. Og þeir hinir sömu biðu með mikilli eftirvæntingu eftir árangrinum. A þeim fáu dögum sem liðnir voru frá því að Anderson skipstjóri kannaði Ber- ingsundið úr flugvél og þar til Nautilus kom þar að. hafði ísinn tekið miklum breytingum. Stórir borgarísjakar, sem brotnað höfðu frá ísbreiðunni við ströncl Canada, voru nú á reki í siglingarleið Nautilusar. Kafbáturinn liafði aðeins siglt um 30 mílur undir ísbreiðunni. þeg- ar bergmálsmælirinn gaf til kynna. að framundan væri borgarís, sem náði 12 faðma niður fyrir yfirborð sjávar. Milli l)otns og jakans voru aðeins 12 faðmar — en þar sem kafbáturinn sjálfur er 8 faðma hár, var ekki vogandi að þröngva lionum í gegn. Var því snúið frá og reynt aftur annars staðar. Þannig gekk það í næstum þrjá daga. Kafbáturinn sigldi á þeirn tíma um 500 niilna vegalengd og gerð var hver tilraunin á fætur annari, þar til Anderson skipstjóri að lokum gafst upp. Beringssundið var orðið fullt af ís. Nautilusi var snúið við og stefnt til Pearl Harbor. Nokkrar vikur liðu þar til reynt var aftur. Skipverjar vissu nú hvað til stóð. en um það voru þeir þögulir sem gröfin. Þrátt fyrir það að flestir þeirra fengu heimfararleyfi, á meðan beðið var eftir hagstæðum skilyrðum til að gera aðra tilraun, var fullyrt að ekki einu sinni eiginkonur þeirra hafi haft minnstu hug- mynd um pólarsiglinguna. Til þess að fylgjast sem nákvæmast með ísnum, var yfirsiglingafræðingur Nautilusar, Shephard Jenks, sendur til Ivodiak-eyjar í Norðuríshafi og dvaldist hann í tvær vikur með gæzlumönnum radarstöðvarinnar þar. Fór hann alloft með flugvél út yfir Beringssund og hafði nákvæmar gætur á öllum hreyfingum borgaríssins. Á meðan var Nautilus enn á ný yfirfarinn hátt og lágt og skip og áhöfn búin undir aðra tilraun. Hinn 23. júlí var svo látið úr höfn. Skipverjar biðu þess nú með spenningi hvernig takast mundi. Þeir gerðu sér nú frekari grein fyrir þeim erfiðleikum og hættum, sem framundan voru. I annað skipti stefndi Nautilus í norð- urátt. Nú átti að reyna á svolítið öðrum stað og var stefnan tekin niður í Barrow- neðansjávardalinn. Samfelld ísbreiða var framundan um það bil 1800 mílna leið. Siglt var með 20 hnúta ferð og gekk allt að óskum fyrsta daginn. Á öðrurn degi gaf bergmálsdýptarmælirinn til kynna, að fvrir stafni væru tindar sem sköguðu hátt upp úr neðansjávarfjall- garðinum og allt upp undir ísbreiðuna. Anderson skipstjóri gaf þegar skipun um að stöðva kafbátinn og lyfta honum um 35 faðma. 15 mínútum síðar var Nautil- us kominn upp fyrir tindana og haldið var áfram á fnllri ferð. Þetta var í eina skiptið á allri ferð- inni, sem eitthvað markvert bar til tíð- inda. Það sem eftir var leið Nautilus léttilega áfrarn eins og fiskur. Yfir kaf- bátnum var víðáttumikil ísbreiðan böð- uð sólskini. En sú hlið íssins var hulin augum skipverja — aftur á móti sáu þeir í sjónvarpstæki þá hliðina, sem að þeim sneri. Þegar líða tók á ferðina, voru menn hættir að gera mun á nóttu eða degi. Þó mátti vita að dagur var, ef heyrðist til brytans í eldhúsinu. en hitt var erfiðara að vita fyrir þá, sem mest voru ruglaðir í tímatalinu, hvort verið var að matreiða hádegis- eða kvöld- verð . . . Bergmálsmælarnir gáfu frá sér hljóð í sífellu. Þeir greindu hinar smæstn líf- verur í sjónum, svo sem rækjur. Þegar siglt var undir vök í ísnum heyrðist „Br- rí-p“, en þegar samfelldur ís var vfir kafbátnum heyrðist „Blip“. Grammó- fónninn gaulaði allan sólarhringinn. Óhjákvæmilega hafði þetta tilbreyt- ingarleysi sín áhrif á skipverja. „Við höfðum plötur með frumskógahljóðum Sjóliðamir á Nautilusi kunnu sér ekki læti, þegar þeir stigu á land í Englandi. á grammófóninum,“ sagði einn þeirra. „Fuglar og svoleiðis — þetta gekk svo lengi að ég var hættur að geta étið. Þetta var bókstaflega að gera mann vitlausan.“ En ekki mátti láta leiðindi hlaupa með sig í gönur. Hér urðu menn að hafa stjórn á skapinu. Til að stvtta sér stund- ir gerðu menn alls konar prakkarastrik, að skólastráka sið. Einna vinsælast var að setja salt út í kaffið og gat enginn ver- ið óhultur fyrir því. Og eitt kvöldið, þeg- ar skipslæknirinn kastaði sér letilega upp í kojuna sína. hafði einhver hugvitssam- ur komið þar fvrir belg fullum af ísköldu vatni . . . Ferðalagið undir ísnum var tilbreytingarlítið og skipverjar urðu að finna sér eitt- hvað til skemmtunar. Hér er spilað og sungið af hjartans lyst. SAMVINNAN 13

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.