Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 18

Samvinnan - 01.01.1959, Qupperneq 18
Ferðinni er lokið og Anclerson skipherra er staddur í Hvíta húsinu. Auðvitað verð- ur hann að byrja á því að segja Eisenliower söguna. Skipverjar urðu því mjög fegnir. þeg- ar Nautilus nálgaðist pólinn. Nær þrír mánuðir voru liðnir, frá því látið var úr höfn í New London og nú fór að síga á seinni hluta ferðarinnar. En um sama leyti urðu siglingafræðingarnir svolítið taugaóstyrkir, „pólardagurinn" var þeirra prófdagur. Tveim klukkustundum áður en skipið átti að vera statt á norðurpólnum, tók einn þeirra eftir því að „Navah 0‘‘ siglingatækið sýndi að stefnan var þrem gráðum of austlæg. Þetta þýddi að siglingatækjunum bar ekki saman. Hvoru skyldi nú trúa? Það var hlutverk siglingafræðinganna að finna það út. Yfirmaður þeirra, Jenks, kvað upp dóminn. Hann fyrir- skipaði breytta stefnu um eina gráðu — síðan athugaði hann alla áttavitana. Að því loknu lét hann breyta stefnunni enn um tvær gráður. Tveim klukkustundum síðar gat liann kallað hróðugur til skip- stjórans: „Póllinn er í 100 metra fjar- lægð, beint af stafni.“ Breið bros færðust yfir ásjónur skip- verjanna. Þeir sem ekki voru á vakt, söfnuðust saman í stjórnklefanum. þar sem Anderson skipstjóri beið með hljóð- nema í hendinni eftir því að geta til- kynnt tíðindin í hátalara skipsins: — „Sunnudagur, 3. ágúst, árið 1958. KI. 23.15 austlægur sumartími. Bandaríski sjóherinn á Norðurpólnum." — Síðan bað hann skipverja hafa yfir bæn í hljóði. Ekki voru samt allir skipverjar sam- ankomnir í stjórnklefanum. Patrick O' Neill tók öllu með róserni. Hann lá og flatmagaði í kojunni sinni frammi í skip- inu. „Þetta var sosum ekki neitt,“ sagði hann seinna. „Annars fór ég illa með þá,“ bætti hann við, „það voru nefnilega tærnar á mér sem fyrstar fóru yfir pól- inn.“ Athöfninn í stjórnkleíanum stóð ekki lengi yfir. Henni lauk með því að And- erson skipstjóri las upp bréf sem hann hafði skrifað Eisenhower forseta og konu hans. Síðan tíndust menn aftur í kojurnar, sumir fóru að hlusta á músik, aðrir að lesa. Margir höfðu tekið með sér námsbækur og lásu þær af kappi. Sumir spjölluðu saman — um London — heimssýninguna í Brilssel — og heim- komuna. Norðurpóllinn er ekki í miðju Ishaf- inu. Þegar Nautilus hafði siglt yfir pól- inn, var siglingin meira en hálfnuð. Finnn dögum síðar kom kafbáturinn til hafnar í Englandi. Áður hafði Anderson skipstjóri verið tekinn upp í þyrilvængju undan ströndum Islands. Þaðan flaug hann rakleiðis til Washington. Þar gekk hann á fund Eisenhowers forseta, sem sæmdi hann heiðursmerki fyrir unn- ið afrek. Öðrum skipverjum var tekið með kostum og kynjum, fyrst í Bret- landi og síðar í New York. Pólarsigling- in — enn eitt af ævintýrum Jules Verne — var orðin að veruleika. Gísli Magnússon, Eyhildarholti: AFMÆLISKVEÐJA TIL ÁRNA HAFSTAÐ Árni Hafstað! Ég minnist þess, að er ég, í æsku, sá þig fyrst, ungan mann en þó fulltíða og 14 SAMVINNAN framaðan og óvenju þroskaðan. líkam- lega og andlega, leit ég upp til þín hærra og miklu meir en annnarra manna í þessu héraði — flestra, ef ekki allra. Margt var það, sem þessu olli. Þú varst höfði hærri en þorri manna. Þú barst þig betur en aðrir. Þú varst snjallari í máli og betur talaður en aðrir ungir menn. Þú varst, í einu orði, meira glæsimenni í sjón og í raun, en maður átti að venjast. Seinna meir, eftir að persónuleg kynni okkar hófust, skildist mér að þú varst ekki aðeins glæsimenni. Mér skildist, að þú varst mikill hugsjónamaður, svo brennandi áhugamaður um ræktun lýðs og lands, að þú sást jafnvel ekki fyrir, — að þú varst um sumt svo langt á undan þínum tíma, að þau hlauzt að gjalda þess að nokkru. Vonir gefa lífinu gildi. Ein bregzt, önn- ur rætist. Ungur varst þú vitni að því, að sá er var minni máttar, bar einatt skarðan hlut frá borði í virðingu og viðskiptum. Það var ekki þér að skapi. Þú gerðist samvinnumaður, heill og óhvikull bar- áttumaður fyrir hugsjón, sem lætur mikl- ar vonir rætast. Árin líða. Þú hefur lagt að baki þrjá aldarfjórðunga. Tíminn ristir rúnir sínar. Hárin hafa gránað. Heilsu hefur förlað og hreysti. Ljós augna þinna hefur dapr- ast. En — enn ert þú beinn í baki og berð höfuðið hátt yfir alla meðalmennsku. Enn lykur víður faðmur þinn um hugðar- efni samtíðar og framtíðar. Enn er þín andlega sjón frán og hvöss. Megi svo verða, Árni, unz yfir lýkur. 1

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.