Samvinnan - 01.01.1959, Síða 20
Erlendur Einarsson:
HUGDETTUR
Á ÁRAMÓTUM
Erlendur Einarsson, forstjóri.
I lok síðustu aldar ritaði kunnur
sænskur prófessor um þróun mann-
kjmsins, efnahags- og menningarlega.
Í þessum riturn sínum komst prófess-
orinn að þeirri niðurstöðu, að það sé
aðeins eitt tímabil sem sé betra fvrir
mannkynið, en það tímabil, sem þá
var lifað á, og þetta tímabil sé fram-
tíðin.
Þessi niðurstaða sænska prófessors-
ins lýsir trú á framtíðina, lýsir bjart-
sýni. Og þessi niðurstaða er ekki út í
bláinn. Sjálf þróunarsaga mannanna
rökstyður þetta. Þrátt fyrir allt hefur
mannkyninu miðað fram á við, þótt
mörgum finnist að hinar efnislegu
framfarir hafi orðið meiri en þær and-
legu, sérstaklega upp á síðkastið. Fáir
munu hafa spáð því á 19. öld, að
mennirnir ættu eftir að ná svo miklu
valdi yfir efninu, sem raun ber nú
vitni á 20. öldinni. í þessu sambandi
kemst maður þó ekki hjá að hugsa til
franska rithöfundarins Jules Verne,
sem skrifaði hin skemmtilegu ævintýri
um flugferðir, neðansjávarsiglingar,
sjónvarp og margt fleira athyglisvert.
Þessi ævintýri eru nú orðin að veru-
leika að meira eða minna leyti. Eitt
af ævintýrum Verne á þó eftir að
rætast, ævintýrið um íslenzka bónd-
ann, sem fór niður í iður jarðar gegn-
um op á Snæfellsjökli. Þrátt fvrir öll
vísindin og tæknina er vart hægt að
hugsa sér að þetta ævintýri eigi eftir
að rætast. En hvaða ævintýri eiga
ekki eftir að ske á komandi árum?
Ferðir til tunglsins og stjarnanna virð-
ast vera á næstu grösum.
Nú er ekki meiningin í þeirn hug-
dettum, sem hér er varpað fram, að
spá fram í tímann fyrir mannkynið,
sem býr á móður jörð. Það læt ég eftir
hinum æðri spámönnum. Þess í stað
verða hér settar fram sundurlausar
hugsanir, sem skutu upp kollinum um
áramótin, hugsanir, sem snerta okkar
litlu þjóð, sem bjT norður við heim-
skautsbaug.
A áramótum skrifa stjórnmálaleið-
togarnir yfirlitsgreinar um stjórn-
málaviðhorfið. I þessum greinum
kennir margra grasa, sem eðlilegt er.
Sjaldan eru foringjarnir sammála,
enda varla við því að búast. Um ára-
mót eru gerðir upp reikningar, tölur
eru birtar, sem sýna árangur ársins.
Tölurnar eru nauðsynlegar til þess að
mæla árangurinn, en koma þó ekki að
fullu gagni, nema eitthvað sé til þess
að miða við, og með því að bera sam-
an árin fáum við ljósari mynd af á-
standinu á hverjum áramótum.
Á þessum áramótum höfum við
fengið að heyra boðskap stjórnmála-
leiðtoganna og við höfum einnig lesið
nokkrar áramótatölur um þjóðarbú-
skapinn á liðna árinu. Þegar við svo
reynum að draga upp mynd af efna-
hagsmálaástandi þjóðarinnar, byggða
á okkar eigin reynslu og þekkingu að
viðbættu því sem við lesum á gaml-
ársdag, kemur ýmislegt enn skýrara í
ljós. — Og hvernig eru þá horfurnar
þegar við lítum fram á nýtt ár?
Áramótaspádómar manna hljóta
að verða mismunandi. Bjartsýni og
svartsýni hlýtur að skiptast á. Þeg-
ar á heildina er litið, hlýtur bjartsýn-
in þó að verða yfirsterkari á þessum
áramótum. Islenzka þjóðin hefur ríka
ástæðu til þess að þakka fyrir hagstætt
ár. Náttúran var gjöful á liðna árinu,
þrátt fyrir óhagstætt tíðarfar í vissum
landshlutum. Framleiðsla sjávaraf-
urða og landbúnaðarvara óx verulega
frá árinu áður. Nóg var að starfa og
nokkur skortur á íslenzku fólki til
framleiðslustarfa, bæði til sjávar og
sveita. Alhliða uppbygging hélt áfram.
Margir fluttu á liðna árinu í n}''' og
fullkomnari híbýli. Þjóðin eignaðist ný
framleiðslutæki í verksmiðjum, raf-
orkuverum, skipum, vinnslustöðvum
og vélum. Allt er þetta grundvöllur
undir betra líf á komandi árum og ber
vott um stórhug og framkvæmdaþrá
þjóðarinnar.
I áramótamyndinni eru því margir
bjartir fletir. Því miður eru skuggarnir
nokkuð áberandi líka, og þegar við at-
hugum myndina nánar sjáum við. að
fyrir framan okkur er abstrakt mynd.
— Þrátt fyrir björtu fletina ber mest
á svörtum sauð verðbólgunnar, sem
hefur þrifizt vel í góðærinu og ógnar
nú enn einu sinni á áramótum íslenzku
efnahagslífi.
Barátta stjórnmálamannanna hlýt-
ur á hinu nýbyrjaða ári að snúast um
það framar öllu öðru að ráða niður-
lögum svarta sauðsins. Ef hún gerir
það ekki, er hún óábyrg og neikvæð.
Því er ekki að neita, að við þessa ó-
freskju hefur verið barizt undanfarin
ár og á s. I. ári var gerð merkileg til-
raun til þess að koma efnahagsmálun-
um í betra horf. Þjóðin bar hins vegar
ekki gæfu til að snúa alveg við á verð-
bólgubrautinni og tilraunin bar því
ekki fullan árangur vegna kauphækk-
ana og víxláhrifa þeirra. Á hinn bóginn
var stigið mikilvægt skref og auðveld-
ar það nokkuð nauðsynlegar aðgerðir,
sem framundan eru.
Þrátt fyrir efnahagsmálaöngþveitið
og hina skaðlegu stétta- og stjórn-
málatogstreitu ber þjóðinni að líta
björtum augum fram á hið nýbyrjaða
ár. Uppbygging undanfarinna ára
skapar mikla möguleika fyrir aukinni
16 SAMVINNAN